Öryggi stúdenta ótryggt í vaxandi atvinnuleysi

Félags­efna­hags­legar afleið­ingar Covid-krepp­unnar hafa snert þús­undir lands­manna und­an­farið ár. Í vax­andi atvinnu­leysi stendur náms­fólk utan þess örygg­is­nets sem aðrir sam­fé­lags­hópar geta stólað á.

Öryggi stúdenta ótryggt í vaxandi atvinnuleysi

Íslenskt náms­fólk er ekki tryggt fyrir atvinnu­leysi og efna­hags­þreng­ingum þrátt fyrir að gjöld af vinnu­fram­lagi þeirra renni í atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð. Ein­stak­lingur sem vinnur 100% starf með námi á ekki rétt á greiðslum úr atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði missi hann skyndi­lega vinn­una. Á sama tíma hefur náms­lána­kerfið verið gagn­rýnt fyrir tak­mark­aða fram­færslu, lágt frí­tekju­mark og engan sveigj­an­leika. Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við stúd­enta sem ber­ast í bökkum vegna erf­iðrar fjár­hags­stöðu. Þrjár þeirra segja efna­hags­legan veru­leika náms­ins hafa gert þær fjár­hags­lega háðar mökum sínum.

Réttarleysi stúdenta í efnahagshremmingum 

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spurði út í stöðu stúd­enta í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í vik­unni. „Það sem er kannski merki­leg­ast er að það kemur fram hjá stúd­entum að frá 1. jan­úar 2010 hafa stúd­ent­ar, með lögum um atvinnu­leys­is­bóta­rétt, greitt 4 millj­arða í atvinnu­leys­is­trygg­inga­gjöld án nokk­urs bóta­rétt­ar, 4 millj­arðar er nið­ur­staða útreikn­inga og þess vegna gera stúd­entar skýrar kröfur um sann­gjörn og viðun­andi kjör hjá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár