Donald Trump í Flórída í dag Frá­far­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, við kom­una til Flórída.

Trump ei meir: Biden er forseti

Joe Biden er form­lega orð­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Donald Trump er kom­inn til Flórída. Biden mun snúa mörgum lyk­ilá­kvörð­unum Trumps strax á fyrstu klukku­stundum for­seta­tíðar sinnar.

Joe Biden er nú form­lega orð­inn for­seti Banda­ríkj­anna eftir inn­setn­ing­ar­at­höfn þar sem stjörnur eins og Lady Gaga og Jennifer Lopez sungu banda­rísk ætt­jarð­ar­lög.

Donald Trump, nú fyrr­ver­andi for­seti, er kom­inn til Flórída. Hann er fyrsti Banda­ríkja­for­set­inn í 150 ár til þess að neita að vera við­staddur inn­setn­ingu eft­ir­manns síns. Mike Pence vara­for­seti var hins vegar við­staddur.

Um leið er Kamala Harris fyrsti kven­kyns vara­for­seti Banda­ríkj­anna.

„Þetta er dagur Banda­ríkj­anna. Þetta er dagur lýð­ræð­is­ins. Dagur sögu og vonar,“ sagði Biden við inn­setn­ing­una. Hann sagði þetta ekki dagur fram­bjóð­and­ans, heldur lýð­ræð­is­ins. „Við höfum lært aftur að lýð­ræðið er dýr­mætt.“

„Ég mun berj­ast jafn­öt­ul­lega fyrir þau sem kusu mig ekki eins og þau sem kusu mig.“
Joe Biden
Inn­setn­ing­ar­ræða 20. jan­úar 2021

Biden fjall­aði um lofts­lags­vand­ann í ræðu sinni og sagði plánet­una gráta á hjálp. Hann boð­aði sátta­stjórn­mál og sam­heldni og var­aði við öfga­hyggju. „Stjórn­mál þurfa ekki að vera log­andi eldur sem eyðir öllu sem á veg­inum verður,“ sagði hann. „Ég heiti ykkur þessu, að ég verð for­seti allra Banda­ríkja­manna. Ég mun berj­ast jafn­öt­ul­lega fyrir þau sem kusu mig ekki eins og þau sem kusu mig.“

Inn­setn­ing­ar­ræða Bidens var upp­gjör við Trump­tím­ann, sem hann lét þó ónefndan.

„Ég mun verja lýð­ræðið. Ég mun verja stjórn­ar­skrána. Ég mun vernda Banda­ríkin,“ sagði hann. „Saman munum við skrifa nýja banda­ríska sögu. Um von, en ekki ótta. Um sam­heldni, en ekki sund­grung. Sögu af ljósi, en ekki myrkri. Sögu af vel­sæmi og virð­ingu. Ást og heilun. Mik­il­feng­leika og góð­mennsku. Megi þetta verða sagan sem sem leiðir okkur, sagan sem gefur okkur inn­blástur og segir kom­andi kyn­slóðum að við svöruðum kalli sög­unnar, að við mættum augna­blik­inu, að lýð­ræðið, vonin og sann­leik­ur­inn dóu ekki á okkar vakt.“

Barack Obama og Kamala HarrisFor­set­inn fyrr­ver­andi heilsar Kamölu Harris, vara­for­seta.

Þótt Donald Trump sé ekki lengur for­seti gætir áhrifa hans enn. Hann hefur skipað fjölda emb­ætt­is­manna og fært til í starfi og skip­aði þrjá dóm­ara í Hæsta­rétt. 

Joe Biden hefur hins vegar þegar tekið til við að snúa mörgum ákvörð­unum Trumps. Á fyrstu klukku­stundum for­seta­tíðar sinnar mun hann und­ir­rita 17 for­seta­til­skip­anir, valda­úr­ræði sem Trump hefur beitt í mun meira mæli en for­verar hans.

Biden hefur hætt við úrgöngu Banda­ríkj­anna úr Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni (WHO) og ákveðið að Anthony Fauci verði for­maður sendi­nefndar Banda­ríkj­anna þar. 

Biden hefur einnig ákveðið að Banda­ríkin verði aðilar að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um bar­áttu gegn lofts­lags­málum, sem tekur þó 30 daga að fram­fylgja. Hann snýr að auki um 100 ákvörð­unum Trumps í umhverf­is­málum.

Ferða­banni gegn íbúum sjö múslima­ríkja verður afétt og hætt verður að beina fjár­magni neyð­ar­sjóða til upp­bygg­ingar á vegg við landa­mærin að Mexíkó.

Fyrir utan þessar ákvarð­anir hefur Biden skipu­lagt næstu vikur með þema­dögum. Á mánu­dag í næstu viku verður þemað „kaupum amer­ískt“, þar sem auknar kröfur verða gerðar til rík­is­stofn­ana um að kaupa banda­rískar vörur. Á þriðju­dag verður hafin bar­átta til að útrýma einka­reknum fang­elsum, á mið­viku­dag verður lofts­lags­váin á dag­skrá með end­ur­reisn ráð­gjafa­ráðs um vís­indi og tækni og á fimmtu­dag verða heil­brigð­is­mál í brennid­epli og þar á meðal aðstoð við þung­un­ar­rof. Loks verður á föstu­dag í næstu viku hafin breyt­ing á með­höndlun inn­flytj­enda­mála, meðal ann­ars stofnun starfs­hóps um sam­ein­ingu fjöl­skyldna sem hafa verið aðskildar af banda­rískum yfir­völdum í valda­tíð Trumps.

Emb­ætt­is­vígslanLady Gaga flytur þjóð­söng­inn með verð­andi for­seta í bak­grunni.
Farinn af valda­stóliDonald Trump nefndi Joe Biden ekki á nafn í kveðju­ræðu sinni. Hér er Trump við kom­una til Flórída, á leið­inni á Mar-a-Lago golf­klúbb­inn í Palm Beach.
Lent í FlórídaMelania Trump og eig­in­maður hennar, Donald, nýlent í Flórída. Melania braut blað í sögu for­seta­emb­ætt­is­ins, eins og eig­in­maður hennar, þegar hún kaus að kynna ekki híbýli Hvíta húss­ins fyrir eig­in­konu nýs for­seta.
Inn­setn­ing­ar­ræða BidensJoe Biden for­seti gerði upp við for­seta­tíð Donalds Trumps og boð­aði and­stæð gildi: Sam­heldni, lýð­ræði og eigið lít­il­læti.
Inn­setn­ing­ar­at­höfninJoe Biden var svar­inn í emb­ætti skömmu fyrir fimm í dag.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár