Nýjustu tölur um hrossafjölda hérlendis eru frá 2017 en þá voru 64.679 hross í lýðveldinu. Íslenski hesturinn hefur rúmlega 40 grunnliti og yfir hundrað litaafbrigði; korgjarpur, moldóttur, rauðvindóttur, tvístjörnóttur, nösóttur, dökkjarpur, litföróttur sléttuskjóttur o.s.frv. Rauður og brúnn eru þó algengustu litir íslenska hestsins... en hvað liturinn heitir á þeim fremsta, sem ég mætti á Eyrarbakka nú í morgun, hef ég ekki hugmynd um.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir