Þegar fjöllin gengu og fólkið dó í hrönnum

Fyrir 100 árum, þann 16. des­em­ber 1920, varð einn mann­skæð­asti jarð­skjálfti sög­unnar í Kína. Einmitt þá áttu sér stað ógur­legar róstur í land­inu.

Þegar fjöllin gengu og fólkið dó í hrönnum

Það var laust fyrir klukkan 10 að kvöldi 16. des­em­ber 1920. Hátt uppi í fjalls­hlíð í Haiyuan-hér­aði í Kína var hellir, þar sem hafði lengi verið manna­byggð. Fjöllin á þessum slóðum umkringja djúpa dali og þau eru gljúp og sund­ur­sprungin og í sumum þorpum bjuggu fleiri íbúar í hellum en húsum. Sá til­tekni hellir sem hér er nefndur til sögu var hins vegar nokkuð frá öðrum manna­bú­stöðum, enda vildu þeir 300 menn sem höfðu safn­ast inn í hann þetta kvöld fá að vera í friði.

Við hell­is­munn­ann var korn­ungur varð­maður sem gætti þess vand­lega að engir væru að snigl­ast við hell­inn sem ekki ættu þangað erindi, en það var reyndar lítil hætta á því. Það var kalt í lofti, hiti nálægt frost­marki og ill­yrmis­legur vindur gnauð­aði og blés þurrum leir og fok­mold úr gróð­ur­lít­illi fjalls­hlíð­inni. Það var orðið dimmt en rykið í vind­inum jók á myrkrið.

Dyra­vörð­ur­inn heyrði …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár