Norska fjármálaeftirlitið íhugar að sekta fyrrum viðskiptabanka Samherja um sex milljarða

DNB-bankinn verður mögulega sektaður um rúma 6 milljarða króna fyrir að hafa ekki fylgt lögum og reglum um peninga­þvætti nægilega vel. Fjármála­eftirlitið gerði rannsókn á bankanum eftir að sagt var frá viðskiptum Samherja í gegnum hann sem leiddi til þess að útgerðar­félagið hætti sem viðskipta­vinur DNB.

Setja sektina í samhengi við Namibíumál
Setja sekt­ina í sam­hengi við Namib­íu­mál Norskir fjöl­miðlar setja sekt­ina ætl­uðu sem DNB þarf kannski að greiða í sam­hengi við Namib­íu­mál Samherja. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Björgólfur Jóhanns­son eru for­stjórar félags­ins. Mynd: Vísir/Sigurjón

Norska fjármála­eftirlitið íhugar að sekta norska DNB-bankann um ríflega 6 milljarða íslenskra króna, 400 milljónir norskra króna, fyrir að hafa ekki fylgt reglu­verki um varnir gegn peninga­þvætti nægilega vel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DNB til norsku kaup­hallarinnar í morgun. Fjármála­eftirlitið gerði athugun á peningaþvættis­vörnum bankans í febrúar í ár og vann skýrslu um málið sem nú liggur fyrir.  

Skýrslan var gerð í kjölfar þess að Stundin, Kveikur, Al Jazeera og Wikileaks greindu frá í nóvember að Samherji hefði notað banka­reikninga sína hjá DNB í viðskiptum sínum í Namibíu sem nú eru til rannsókn og meðal annars flutt fé í skatta­skjól. Í tengslum við fréttir af sektar­greiðslunni mögulegu er málið sett í samhengi við Samherja­málið í norskum fjöl­miðlum, meðal annars í Dagens Næringsliv. 

Sagði upp viðskiptum við Samherja

Eins og greint var frá í fyrra sagði DNB upp viðskiptum við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár