Mynd: Heiða Helgadóttir

Reis upp úr myrkrinu

Þegar Alex Guð­jóns­son leit­aði á bráða­mót­töku með djúpan skurð á hendi og höf­uðið fullt af rang­hug­myndum grun­aði hann ekki að geð­klof­a­grein­ing yrði upp­hafið að nýju og betra lífi. Í gegnum sér­stakt úrræði fyrir ungt fólk með alvar­lega geð­sjúk­dóma komst hann aftur út á atvinnu­markað. Í dag er hann búinn að fá fast­ráðn­ingu í Borg­ar­leik­hús­inu, eigin íbúð og er útskrif­aður úr lang­tíma­úr­ræði.

„Ég hitti Alex fyrst til þess að bjóða honum aðstoð við fjár­málin en hann urraði á mig,“ segir Valur Bjarna­son félags­ráð­gjafi, sem starf­aði lengi vel á Laugarás, með­ferð­ar­geð­deild Land­spít­al­ans fyrir ungt fólk á aldr­inum 18 til 25 ára með alvar­lega geð­rofs­sjúk­dóma á byrj­un­ar­stigi. Þar tók Valur á móti Alex Guð­jóns­syni, ungum strák sem glímdi við alvar­leg veik­indi vegna geð­klofa. Alex lenti á geð­deild eftir sjálfs­vígstil­raun sem var til­komin vegna rang­hug­mynda og dvaldi mán­uðum saman inni á lok­aðri deild. Í gegnum úrræði sem Valur tók þátt í að inn­leiða á Laug­ar­ási átti Alex eftir að öðl­ast annað og betra líf.

Úrræðið sem um ræðir byggir á IPS-hug­mynda­fræð­inni og krefst þess að heil­brigð­is­kerfið, félags­ráð­gjafi og atvinnu­ráð­gjafi vinni saman að því marki að koma ungu fólki með alvar­lega geð­sjúk­dóma aftur út á atvinnu­markað og í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár