Upplýsingafundur Almannavarna - Greina meiri kvíða hjá barnshafandi konum

Fimmtíu barns­haf­andi konur hafa veikst af Covid-19 á land­inu öllu í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Brýnt er að konur leiti sér und­an­bragða­laust heil­brg­iðis­þjón­ustu á með­göngu ef þær greina veik­indi eða önnur vanda­mál hjá sér. Hulda Hjart­ar­dóttir yfir­læknir fæð­ing­ar­deildar Land­spít­ala segir að starfs­fólk þar greini meiri kvíða hjá barns­haf­andi konum.

Greina má auk­inn kvíða hjá barns­haf­andi konum og aðstand­endum þeirra vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 far­ald­ur­inn og hertar sótt­varn­ar­reglur hafa haft á fæð­ing­ar­þjón­ustu. Engu að síður hefur ekki þurft að taka fyrir að aðstand­endur fái að vera við­staddir fæð­ingar og von­andi kemur ekki til þess.

Þetta sagði Hulda Hjart­ar­dótti, yfir­læknir fæð­ing­ar­þjón­ustu Land­spít­ala, á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Hún var þar gestur fund­ar­ins en á fund­inum voru einnig Alma Möller land­lækn­ir, Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir og Víð­ir Reyn­is­son yf­ir­lög­reglu­þjónn sem fóru yf­ir stöðu Covid-19-far­ald­urs­ins hér á landi. Sjá má upp­töku af fund­inum í spil­ar­anum hér að ofan. 

Fimtíu konur hafa smit­ast af Covid-19 á meðan á með­göngu stendur í far­aldr­inum frá upp­hafi, á land­inu öllu. Hulda greindi einnig frá því að konur hafi þurft að fæða börn sín veikar af Covid-19. Það sé vissu­lega mikið álag fyrir verð­andi mæð­urnar, fyrir aðstand­endur sem hafa ekki fengið að vera við­staddir og fyrir starfs­fólk fæð­ing­ar­deilda en engu að síður séu það bara úrlausn­ar­efni sem séu leyst eins og í annarri umönnun og heil­brigð­is­þjón­ustu. Hún brýndi konur mjög ein­dregið til að leita til heil­brigð­is­starfs­fólk greini þær veik­indi hjá sér á með­göngu og alls ekki forð­ast það með neinum hætti. Það sé afar brýnt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár