Þegar við hættum að trúa á almannavarnir

Nið­ur­stöður nýrrar könn­unar á vegum Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands sýna að ótti við far­ald­ur­inn hefur auk­ist á meðan hlýðni við til­mæli hefur minnkað. Færri trúa hlýðni náung­ans við til­mæli. Færri trúa á virkni almanna­varna.

Þegar við hættum að trúa á almannavarnir
Dr. Jón Gunnar Bernburg Jón Gunnar segir trú fólks á sótt­varn­ar­að­gerðum skipta miklu máli, en félags­hóp­ur­inn hafi einnig áhrif á reglu­hlýðni. Mynd: KRISTINN INGVARSSON

Síðustu mán­uði hafa rann­sak­endur á vegum Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands staðið fyrir dag­legri könnun á afstöðu Íslend­inga til þátta sem tengj­ast COVID-19 far­aldr­inum. Nið­ur­stöð­urnar eru aðgengi­legar á vef Félags­vís­inda­stofn­unar og sýna að Íslend­ingar hafa meiri áhyggjur af far­aldr­inum í seinni bylgju en fyrri bylgju, en eru síður lík­legir til að fylgja til­mælum Land­læknis og almanna­varna núna en í fyrri bylgju. Könnunin hefur verið send út dag­lega frá því snemma í far­aldr­inum og mælir fyrir breyt­ingum á afstöðu Íslend­inga með tím­anum. Hægt er að skoða nið­ur­stöður sem lýsa afstöðu fólks dag frá degi, en einnig má skoða hana út frá bak­grunns­þáttum á borð við kyn, aldur og menntun. Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við dr. Jón Gunnar Bernburg, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, sem er í hópi þeirra sem stóðu að könn­un­inni.

Litla gula hæna almannavarna

Í fyrri bylgju kóf­s­ins var slag­orðið „Við erum öll almanna­varnir“ á allra vörum. Það var í tísku …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár