Skopmyndateiknari Morgunblaðsins segist vita um lækningu við Covid: „Ég er náttúrulega ekki læknir“

Óson með­ferð, sem talin er skað­leg af heil­brigð­is­yf­ir­völdum, er sögð lækna Covid-19 smit í skop­mynd í Morg­un­blað­inu í dag. Teikn­ar­inn Helgi Sig­urðs­son vísar í mynd­bönd umdeilds læknis, en seg­ist ekki ætla í stríð við þrí­eykið, heil­brigð­is­ráð­herra eða Kára Stef­áns­son.

Skopmyndateiknari Morgunblaðsins segist vita um lækningu við Covid: „Ég er náttúrulega ekki læknir“
Skopmynd Helga Sig Skopmynd sem segir óson lækna Covid birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Mynd: Skopmynd sem birtist í Morgunblaðinu í dag

Óson­með­ferð er sögð lækna Covid-19 smit í skop­mynd sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Notkun efn­is­ins er skað­leg, að mati heil­brigð­is­yf­ir­valda á heims­vísu, en höf­undur skop­mynd­ar­innar segir ljóst af mynd­böndum á net­inu að hún virki.

Skop­myndin er eftir Helga Sig­urðs­son og er hún af umdeildum banda­rískum lækni, Robert Rowen, sem not­ast við gas­teg­und­ina óson til að lækna ýmsa kvilla og sjúk­dóma. Á mynd­inni er netslóð á YouTube síðu Roberts þar sem má finna fjölda mynd­banda þar sem skjól­stæð­ingar Roberts lýsa því hvernig með­ferð hans hafi lagað ýmis heilsu­vanda­mál þeirra. Undir skop­mynd­inni stendur svo: „Covid lækn­ing sem fellur ekki að heims­mynd­inni.“

Segir Rowen að aðferðin virki meðal ann­ars á krabba­mein, Alzheimer, Park­in­son og nú nýverið á Covid-19. Með­ferðin virkar þannig að gas­teg­und­inni óson er sprautað í fólk og á gasið að drepa bakt­er­íur og vírusa. Þekkt er að óson getur virkað gegn bakt­er­íum og vírusum, en það vinnur einnig skaða á lík­am­anum og við­ur­kenndar vís­inda­rann­sóknir hafa ekki náð að stað­festa virkni með­ferð­anna.

Robert RowenLækn­ir­inn birtir mynd­bönd á YouTube og segir óson lækna Covid-19.

Meðferð Rowen er ekki sam­þykkt neins staðar í heim­inum og hefur lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna ítrekað sent út til­kynn­ingar þess efnis að hún geti verið skað­leg. Þá er með­ferðin bönnuð sem lækn­is­með­ferð í Banda­ríkj­unum. Þá segir lyf­stofn­unin að engar vís­inda­legar sann­anir sýni fram á virkni óson með­ferðar. Fólk hefur lát­ist við að nýta sér þessa með­ferð víða um heim og hafa yfir­völd víða um heim hand­tekið fólk sem stundar þessa með­ferð.

Rowen rekur lækna­stofu sína ásamt eig­in­konu sinni, en hún starfar einnig þar sem læknir. Aðsetur lækna­stof­unnar er í Santa Rosa í Kali­forn­íu­ríki Banda­ríkj­anna. Í lok febr­úar á þessu ári voru þau hjónin hand­tekin og ákærð fyrir skatt­svik. Segja skatt­yf­ir­völd að hjónin hafi komið um 544 millj­ónum íslenskra króna undan skatti. 

Í sam­tali við Stundina segir Helgi Sig­urðs­son, skop­mynda­teikn­ari Morg­un­blaðs­ins, að hann hafi horft á fjöl­mörg mynd­bönd á heima­síðu Rowen. Segir hann að þar sjá­ist hvar aðferð hans hafi læknað meðal ann­ars ein­stak­ling smit­aðan af Covid-19.

„Það kemur þarna maður sem kemur þarna inn og er með Covid-19, það er búið að stað­festa það. Það er bara hægt að skoða það á þess­ari síðu. Maðurinn stendur svo upp og er bara hress.“

Vill benda á þetta þrátt fyrir að vera ekki læknir

Helgi segir einnig að þessi aðferð sé vel þekkt í Evrópu og sé búið að not­ast við hana í yfir 100 ár. „Það er verið að reyna halda honum niðri af því hann er að nota aðferð sem búið er að nota í Evrópu í yfir 100 ár. Tesla var einn af þeim fyrstu til að reyna nota þessa aðferð. Svo var þetta notað í víg­völlum í Fyrri heims­styrj­öld­inni til að sótt­hreinsa sár og annað. Þetta verður til við eld­ingar í gufu­hvolf­inu og er talið vera nátt­úru­legt sótt­hreins­andi efni. Ég er nátt­úru­lega ekki læknir, ég er bara að benda á þetta.“

„Ég er nátt­úru­lega ekki læknir, ég er bara að benda á þetta“

Bretar próf­uðu að not­ast við óson gas á Queen Alex­andra her­spít­al­anum í London í fyrri heims­styrj­öld­inni á sár. Var gas­inu spreyjað á sár og sótt­hreins­aði það sárið. Hins vegar skað­aði það lík­amsvef sjúk­lings­ins það mikið að ekki var not­ast við þessa aðferð oftar.

Í sam­tali við Stundina segir Ágúst Kvaran, pró­fessor í efna­fræði við Háskóla Íslands, að óson sé mjög oxandi efni sem er fljótt að brjóta niður önnur efni sem það kom­ist í snert­ingu við. „Óson er mjög fljótt að brjóta niður hluti, meðal ann­ars prótein og fitu í lík­am­anum. Það getur alveg brotið niður veirur líka, en það er þá ekki það eina sem það brýtur niður í lík­am­anum á sama tíma.“

Trúir að meðferðin virki gegn Covid-19

Helgi seg­ist eftir að hafa horft á mynd­bönd á YouTube síðu Rowen að það sé aug­ljóst að með­ferðin virki þar sem við­brögð fólks sjá­ist greini­lega.

„Ég bara vísa það sem er á vef­síð­unni, það er bara auð­séð að fólkið er ekk­ert að ljúga. Við erum nátt­úru­lega gædd þeim eig­in­leikum að getað lesið úr svip­brigðum, radd­blæ og við­brögðum fólks. Ef það er eitt­hvað til sem getur gefið okkur leið út úr þessu Covid, þeir sem eru með Covid. Ég ætla ekk­ert að fara í stríð við Kára Stef­áns­son eða þrí­eykið eða Svandísi Svav­ars­dóttur eða þig eða neitt. Ég er bara að benda á þetta.“

„Ég ætla ekk­ert að fara í stríð við Kára Stef­áns­son eða þrí­eykið“

Spurður hver til­gangur mynd­ar­innar væri segir Helgi að hann vildi bara koma af stað jákvæðri umræðu. „Það eru nátt­úru­lega ákveðin öfl sem eru ekki hrifin af svona alt­ernative aðferðum, þó að þetta hafi nú komið á undan öllu hinu.“

Vill að notkun óson verði skoðuð á Íslandi

Þegar blaða­maður Stund­ar­innar benti Helga á að engar vís­inda­legar rann­sóknir sýni fram á að óson virki, eins og Rowen haldi fram að það geri í mynd­böndum sínum, segir hann að það sé hægt að sjá að þessi aðferð virki á fólk­inu sem fari í með­ferð til hans.

„Það er bara hægt að sjá það á fólk­inu sem fær þetta með­ferð. Menn eru alltaf að rann­saka eitt­hvað, en það er aldrei horft á hvort það virkar eða ekki skil­urðu. Ég ætla ekk­ert að fara dýpra í þetta, ég er eng­inn sér­fræð­ingur í þessu. Ef fólk treystir þessum vís­inda­mönnum og krabba­meins­læknum þá gerir það bara það.“

Aðspurður hvort það sé ábyrg hegðun á tímum Covid-19 að birta skop­mynd af þessu tagi segir hann að það eigi að skoða þennan mögu­leika þar sem þetta gæti verið raun­hæft tól í bar­átt­unni við Covid-19 hér á landi.

„Er kannski hægt að fá svona tæki hérna á vegum yfir­valda, er það mögu­leiki?“

„Ég hef enga þekk­ingu á að verja þetta, standa í ein­hverjum pan­elu­við­ræðum við ein­hverja sér­fræð­inga og gera mig af fífli. Þetta er ekk­ert ábyrgð­ar­hluti, það er ekk­ert verið að bjóða upp á þetta. Ef það kemur upp svona umræða upp á milli fólks sem þekkir inn á þetta. Ef það síðan kemur í ljós að þetta sé raun­hæfur mögu­leiki þá getum við prófað þetta. Í stað­inn fyrir að bíða eftir ein­hverju bólu­efni í 6 mán­uði eða 12 mán­uði, það er eitt­hvað fólk hérna veikt. Er kannski hægt að fá svona tæki hérna á vegum yfir­valda, er það mögu­leiki? Hugs­an­lega getur þetta hjálpað fólki og ég hef trú á því að þetta sé í lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár