Vandræðahús í Vesturbænum logar: „Maður hefur horft fram á máttleysi borgaryfirvalda“

Grunur er á sak­næmu athæfi, þar sem þrír ein­stak­lingar eru í haldi lög­reglu og fjórir eru á slysa­deild, eftir elds­voða í Vest­ur­bænum. Nágrannar lýsa yfir langvar­andi áhyggjum af ástandi húss­ins á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og fyrr­ver­andi íbúi kvart­aði undan því í frétt Stund­ar­innar fyrir fjórum árum.

„Ég og aðrir nágrannar höfum spáð þó nokkuð lengi að það yrði kveikt í á end­anum,“ segir íbúi í nágrenni húss­ins á horni Vest­ur­götu og Bræðra­borg­ar­stígs í Vesturbæ Reykja­víkur, sem hefur staðið í björtu báli frá því um klukkan þrjú í dag. 

Húsið, Bræðra­borg­ar­stígur 1, er for­skalað timb­ur­hús, með steypu­húð, sem þykir sér­stak­lega vara­samt ef eldur kemur upp. Það er í eigu starfs­manna­leigu og hafa meðal ann­ars erlendir verka­menn hafst þar við. 

Lög­reglan hefur girt svæðið umhverfis hús­inu af til þess að vernda störf slökkvi­liðs, en  fjöldi fólks hefur safn­ast saman til þess að fylgj­ast með.

„Þetta minnir mig á reyktan sil­ung,“ sagði maður um miðjan aldur við félaga sinn, er þeir stóðu ásýndar ásamt tveimur ungum drengjum. 

Þrír handteknir - fjórir á slysadeild

Samkvæmt til­kynn­ingu lög­reglu hafa fjórir verið fluttir á slysa­deild og þrír íbúar húss­ins verið hand­teknir vegna gruns um sak­næmt athæfi. Þrír ein­stak­lingar hopp­uðu út um glugga af efstu hæð í hús­inu, sam­kvæmt sjón­ar­votti. Fyrstu til­kynn­ingar um eld­inn bár­ust klukkan 15:15, en klukku­tíma síðar bar reyk yfir Vest­ur­bæ­inn og mið­borg­ina. Sjón­ar­vottur á vett­vangi full­yrti við Stundina að lög­reglan hefði haft afskipti í hús­næð­inu fyrr í dag, áður en eld­ur­inn bloss­aði upp.

Um er að ræða sama hús og hýsti áður Leik­skól­ann 101, sem var lokað árið 2013 eftir að mynd­bands­upp­taka birt­ist af starfs­manni beita barn harð­ræði, meðal ann­ars með því að refsa barni með því að loka það inni.

Lögreglan oft á vettvang

Íbúi í nágrenn­inu, sem Stundin ræddi við á vett­vangi, seg­ist hafa búist við áföllum í hús­inu síð­ustu ár.

„Það hefur verið víta­verður sóða­skapur og ógeð í þessu húsi, svo það kemur engum neitt á óvart sem hér býr. Maður hefur horft fram á mátt­leysi borg­ar­yf­ir­valda til að gera nokkuð í því sem blasir hér við öllum sem fram hjá fara að þetta hús er í algjörri nið­ur­níðslu og hirðu­leysi. Það hefur verið ekk­ert við­hald hér árum saman. Það hafa verið útköll frá lög­reglu til þess að sinna fólki hér sem er í neyslu. Það er ekk­ert sem neinn getur gert,“ sagði eldri maður sem vildi ekki koma fram undir nafni af ótta við íbúa húss­ins.

Starfs­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, Benjamin Julian, segir á Facebook síðu sinni að íbúar húss­ins hefðu verið starfs­menn til­tek­innar starfs­manna­leigu: „Í þessu húsi búa menn sem vinna hjá arf­taka Menn í vinnu -- Seiglu ehf. Ömur­legur harm­leikur. Það þarf miklu, miklu strang­ara aðhald með þessu ógeðs­lega rekstr­ar­formi.“

Kona sem býr í hverf­inu sagði: „Ég hef heyrt að löggan hafi þurft að hafa afskipti af hús­inu áður. Ég bara vona að eng­inn hafi verið þarna inni.“

Stundin fjall­aði um aðstæður í hús­næð­inu árið 2015. Fyrr­ver­andi íbúi kvart­aði þá undan raka, myglu og slæ­legum frá­gangi. 

„Raf­magnið í hús­inu ber merki um mikið fúsk, snúrur hanga niður af veggjum og er illa gengið frá,“ sagði hann í frétt Stund­ar­innar fyrir fjórum árum.

Íbúinn, Jóhannes Ingi­bjarts­son, lýsti því að á annarri og þriðju hæð húss­ins væri búið að inn­rétta fjöl­mörg her­bergi sem fólk, nær ein­göngu útlend­ingar, leigði dýrum dómi. Jóhannes sgaði í sam­tali við Stundina að hann hefði verið eini Íslend­ing­ur­inn sem bjó í hús­inu og hefði hann leigt lítið her­bergi á 90 þús­und krónur á mán­uði.

Sjá einnig: Kvartar undan „óhæfum manna­bú­stað“ í Vest­ur­bænum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bruninn á Bræðraborgarstíg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár