Bændur geti selt heimaslátrað kjöt

Til­rauna­verk­efni hefst í haust þar sem leitað verður leiða til að heim­ila sauð­fjár­bændum að mark­aðs­setja lamba- og kinda­kjöt sem þeir slátra heima á sínum bæjum.

Bændur geti selt heimaslátrað kjöt
Heimila heima­slátrun Guðfinna Harpa og Kristján Þór und­ir­rit­uðu samn­ing­inn.

Til­rauna­verk­efni hefst í haust þar sem unnið verður að því að auð­velda sauð­fjár­bændum að slátra sauðfé sjálfir heima á bæjum og mark­aðs­setja það til neyt­enda. Það er óheim­ilt í dag, allt lamba- og kinda­kjöt sem sett er á markað verður að vera af sauðfé sem slátrað hefur verið í vott­uðum slát­ur­húsum. Bændur hafa þó haft heim­ild til að slátra heima hjá sér til eigin nota en ekki til sölu.

Kristján Þór Júl­í­us­son land­bún­að­ar­ráð­herra og Guðfinna Harpa Árna­dóttir, for­maður Samtaka sauð­fjár­bænda, und­ir­rit­uðu sam­komu­lag um til­rauna­verk­efnið í gær. Með því á að leita leiða til að bæta afkomu sauð­fjár­bænda, hvetja til nýsköp­unar og vöru­þró­unar og auka verð­mæta­sköpun í grein­inni.

Lengi hefur verið kallað eftir því af hálfu sauð­fjár­bænda að leiðir til að þeir geti slátrað heima og selt beint frá býli yrðu kann­aðar, bæði vegna auk­innar kröfu neyt­enda um slík við­skipti en einnig til að auka verð­mæta­sköpun á sauð­fjár­bú­unum. Afkoma sauð­fjár­búa hefur verið bæði sveiflu­kennd en einnig rýr árum saman og þannig hefur afurða­verð lækkað ár frá ári síð­ustu ár. Verk­efnið er ein þeirra leiða sem fara á til að reyna að bregð­ast við þeirri stöðu.

Til þess að hægt verði að mark­aðs­setja kjöt sem slátrað hefur verið heima á bæjum þarf að upp­fylla ákvæði um mat­væla­ör­yggi, dýra­vel­ferð og holl­ustu­hætti. Bændur munu sjálfir slátra fé heima við en dýra­læknar á vegum Mat­væla­stofn­unar munu sinna opin­beru eft­ir­liti með gæðum. Kjöt af því sauðfé sem verður slátrað í til­rauna­verk­efn­inu verður ekki mark­aðs­sett enda aðeins um til­raun að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár