Helga Vala segir Davíð fáfróðan um mótmælin: „Vitinu virðist naumt skammtað“

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir skrif í Morg­un­blað­inu um mót­mælin í Banda­ríkj­unum. Hún segir Davíð Oddsson rit­stjóra ekki hafa skiln­ing á rétt­inda­bar­áttu svartra og lög­reglu­of­beldi.

Helga Vala segir Davíð fáfróðan um mótmælin: „Vitinu virðist naumt skammtað“
Helga Vala Helga­dóttir og Davíð Oddsson Þing­mað­ur­inn segir rit­stjór­ann kasta fram sora huga síns til að fá athygli.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóra, vera „örvænt­ing­ar­fullan fyrr­ver­andi valda­mann“ sem dreifi „þröng­sýnum, hat­urs­fullum og and­styggi­legum skoð­unum“. Þetta skrifar hún í grein í Morg­un­blað­inu, sem Davíð rit­stýrir, í dag.

Í Stak­steinum blaðs­ins í gær er hæðst að því að engin mót­mæli hafi farið fram, hvorki í Banda­ríkj­unum né á Aust­ur­velli, vegna mik­ils fjölda skotárása í Chicago um liðna helgi. Er aug­ljóst af skrif­unum að þau eru sett í sam­hengi við útbreidd og fjöl­menn mót­mæli í Banda­ríkj­unum síð­ustu daga vegna morðs­ins á George Floyd, og gert lítið úr þeim. Stak­steinar eru ómerktir og því lík­legt að Davíð eða meðrit­stjóri hans Haraldur Johann­es­sen haldi um penna.

Í grein­inni segir Helga Vala óvand­aða fjöl­miðlaum­fjöllun geta verið meið­andi og afvega­leið­andi. „Höfundur einn, sem ítrekað ritar í Morg­un­blaðið, ger­ist iðu­lega sekur um rök­þurrð og afvega­leiðslu í skrifum sínum,“ skrifar hún. „Slík er ásókn hans í stund­ar­at­hygli, enda gleymdur mörgum, að hann gerir allt sem hann getur til að kasta fram sora huga síns bara til að vekja umræðu og fá þá athygli sem hann þráir mest af öllu. Sneyptur var hann sendur í útlegð frá opin­berum störfum eftir afglöp sín í Seðla­banka Íslands. En sægreifar, sem byggja auð sinn á sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar, réðu hann til starfa svo hann fær að rita mola er kall­ast Stak­steinar.“

Hún segir þekk­ing­ar­leysi höf­und­ar­ins á bar­áttu svarts fólks í Banda­ríkj­unum opin­ber­ast í pistl­inum. „Vitinu virð­ist naumt skammtað þar sem gert er lítið úr mót­mælum þar í landi sem og á fjöl­mennum sam­stöðu­mót­mælum á Aust­ur­velli. Höfundur skilur yfir­leitt ekki mót­mæli, og alls ekki að þau mót­mæli sem nú eiga sér stað vegna morðs lög­reglu­manns á George Floyd snú­ast um annað og meira en það ein­staka morð. Höfundur hefði betur spurt ein­hverja af þeim afbragðs­blaða­mönnum er starfa á Morg­un­blað­inu svo hann yrði sér ekki til háð­ungar en því miður valdi hann í stað­inn að ausa út fáfræði sinni í steinum blaðs­ins,“ skrifar hún.

Mótmælin hafa staðið yfir um öll Banda­ríkin í hátt á aðra viku. „Mótmælin, og sam­stöðu­mót­mælin sem breið­ast nú út um heim­inn, eru vegna ofbeldis, ras­isma og mis­réttis gagn­vart mörgum kyn­slóðum svartra íbúa lands­ins. Ræturnar liggja í marg­ít­rek­uðu ofbeldi lög­regl­unnar gagn­vart svörtu fólki í Banda­ríkj­unum. Þannig er svart fólk þrefalt lík­legra til að láta lífið af völdum lög­reglu en hvítt fólk þrátt fyrir að vera aðeins um 13 pró­sent íbúa. Þá verður að hafa í huga að umtals­vert fleira svart fólk er drepið af lög­reglu þar í landi fyrir það eitt að vera á röngum tíma á vegi lög­regl­unnar en nærri fimm­falt fleiri eru drepin af lög­reglu þar sem þau eru óvopnuð á ferð. Þess vegna er mót­mælt,“ skrifar Helga Vala.

„Vonandi nær hann að lifa bjart­ari tíma en þann sem hann nú lifir“

„Stak­steinar Morg­un­blaðs­ins voru í eina tíð hvöss lína flokks­eig­enda­fé­lags Sjálf­stæð­is­flokks­ins,“ skrifar hún að lokum. „Þeir voru ekki endi­lega sann­leikselsk­andi eða rétt­sýnir enda fyrst og fremst póli­tískur og oft ósvíf­inn vöndur flokks­ins og því skemmti­efni þeim sem hafa gaman af póli­tískum dansi. Það er liðin tíð. Í dag birt­ast stein­arnir okkur sem aumur þráður til að dreifa þröng­sýnum, hat­urs­fullum og and­styggi­legum skoð­unum örvænt­ing­ar­fulls fyrr­ver­andi valda­manns sem neitar að sætta sig við að hans tími er löngu lið­inn. Vonandi nær hann að lifa bjart­ari tíma en þann sem hann nú lifir. Bit­ur­leik­inn er aldrei góður ferða­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn misrétti, ofbeldi og niðurlægingu
Erlent#BlackLivesMatter

Rísa upp gegn mis­rétti, ofbeldi og nið­ur­læg­ingu

Mótmælin vegna dauða George Floyd hafa varpað kast­ljósi á elsta og rót­grón­asta vanda­mál Banda­ríkj­anna. Aðgerða­sinnar og skipu­leggj­endur mót­mæla segja að komið sé að löngu tíma­bæru upp­gjöri við þá kyn­þátta­hyggju sem gegn­sýrir allt dag­legt líf og póli­tík vest­an­hafs. Banda­ríska lög­reglan er sögð órjúf­an­legur hluti af kerfi sem hefur frá upp­hafi nið­ur­lægt blökku­fólk og beitt það skipu­lögðu póli­tísku ofbeldi fyrir hönd hvíta meiri­hlut­ans.
Elliði varar við því að íslenska lögreglan gæti þurft að vígbúast
Fréttir#BlackLivesMatter

Elliði varar við því að íslenska lög­reglan gæti þurft að víg­bú­ast

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um ofbeldi almennra borg­ara gegn lög­regl­unni vöktu hörð við­brögð. Hann áréttar áhyggjur sínar af stöðu íslensku lög­regl­unnar og varar við því að hún gæti þurft að vopn­bú­ast enn frekar. Afbrota­fræð­ingur bendir á að ekk­ert styðji full­yrð­ingar Elliða um vax­andi nei­kvæðni í garð lög­reglu, sem þurfi að fara var­lega í vald­beit­ingu gagn­vart minni­hluta­hópum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár