Fimm milljarða framkvæmdin sem enginn vill tala um

Kjörnir full­trúar í stjórn Sorpu vilja ekki tjá sig. Nýr fram­kvæmda­stjóri Sorpu vill ekki ræða for­tíð­ina, en sporin hræða. Sorpa reisir nú gas- og jarð­gerð­ar­stöð á sama grunni og gert var í Noregi, þar sem stöð var lokað vegna meng­unar og mis­heppn­aðrar mark­aðs­á­ætl­unar.

Fimm milljarða framkvæmdin sem enginn vill tala um
Dagur B. Egg­erts­son, Birkir Jón Jónsson, Líf Magneu­dóttir og Ármann Kr. Ólafsson Ekkert af því stjórn­mála­fólki sem situr í stjórn Sorpu eða fer með eign­ar­hlut Sorpu fyrir sitt sveit­ar­fé­lag vildi ræða við Stundina vegna bygg­ingar gas- og jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa ábyrgst lán fyrir Sorpu fyrir mörg hund­ruð millj­ónir króna.

Fram­kvæmdir við nýja gas- og jarð­gerða­stöð Sorpu hafa kostað íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um 5,3 millj­arða króna. Tæknin sem notuð verður til að end­ur­vinna sorpið kemur frá danska fyr­ir­tæk­inu Aikan A/S sem varð hlut­skarp­ast í útboði um verkið. For­svars­menn hjá virtu þýsku fyr­ir­tæki segja tækni fyr­ir­tæk­is­ins úrelda og að litlar líkur séu á því að hún muni nokkurn tím­ann virka almenni­lega. Sam­bæri­leg verk­smiðja sem byggð var á tækni Aikan var reist í Elverum í Noregi árið 2006 en henni var lokað fimm árum síðar án þess að kom­ast nokkurn tím­ann almenni­lega í gagnið. Skatt­greið­endur ytra eru enn að borga ævin­týrið niður.

Málefni Sorpu hafa verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í fréttum und­an­farin miss­eri. Aðallega er það fjár­hags­staða fyr­ir­tæk­is­ins en mikla athygli vakti þegar í ljós kom að kostn­aður við upp­bygg­ingu nýrrar gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar Sorpu hafði reynst veru­lega van­á­ætl­aður. Var það meðal ann­ars vegna klaufa­legra bók­halds­mistaka.

Í dag er staðan sú að heild­ar­kostn­aður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár