Ríkisstjórnin afléttir stimpilgjöldum af stórútgerðum

Stjórn­ar­and­staðan fór hörðum orðum um for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar þegar stimp­il­gjöld á stór skip voru afnumin með lögum. Aðgerðin var kölluð sum­ar­gjöf til stór­út­gerð­ar­innar á meðan stimp­il­gjöld eru enn við lýði í fast­eigna­kaupum ein­stak­linga.

Ríkisstjórnin afléttir stimpilgjöldum af stórútgerðum
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur Bjarni Bene­dikts­son lagði fram stjórn­ar­frum­varp um afnám á stimp­il­gjöldum vegna eigna­yf­ir­færslu stærri skipa. Mynd: Davíð Þór

„Er það virki­lega svo að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír telji það vera for­gangs­mál í miðjum heims­far­aldri að lækka hér skatta á fyr­ir­tæki sem kaupa stór skip?“ spurði Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, við atkvæða­greiðslu á Alþingi í gær.

Lög sem afnema stimp­il­gjöld sem varða eigna­yf­ir­færslu skipa voru sam­þykkt í gær og fór stjórn­ar­and­staðan hörðum orðum um for­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar. Þingmenn Við­reisnar og Flokks fólks­ins sögðu til­efni til að afnema öll stimp­il­gjöld, til dæmis þau sem snúa að kaupum ungs fólks á sinni fyrstu fast­eign.

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar bentu á að laga­breyt­ingin sner­ist ein­göngu um stimp­il­gjöld á stór skip og þar af leið­andi stærstu útgerð­irnar, þar sem nú þegar væri ekk­ert stimp­il­gjald á smærri skip. „Með vísan til sjón­ar­miða um jafn­ræði atvinnu­greina er talið rétt að ekki verði lengur inn­heimt stimp­il­gjald vegna skjala er varða eigna­yf­ir­færslu skipa yfir fimm brúttó­tonnum,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram. „Slík breyt­ing er jafn­framt í sam­ræmi við það reglu­verk sem fyr­ir­finnst á Norð­ur­lönd­unum varð­andi stimp­il­gjöld, en þar tak­markast stimp­il­gjöld almennt við fast­eigna­við­skipti.“

Samkvæmt frum­varp­inu eiga breyt­ing­arnar að hafa óveru­leg áhrif á afkomu rík­is­sjóðs. „Hins vegar ættu þær breyt­ingar sem stefnt er að með frum­varp­inu að hafa jákvæð áhrif á hags­muna­að­ila,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

„Hvergi er talað um „rekstr­ar­um­hverfi“ sjó­manna eða umhyggju fyrir störfum sjó­manna“

Sjó­manna­sam­band Íslands og VM, félag vél­stjóra og málm­tækni­manna, mót­mæltu einnig laga­setn­ing­unni og sagði að vernda þyrfti störf íslenskra sjó­manna sem eiga lífs­við­ur­væri sitt undir öruggu rekstr­ar­um­hverfi skip­anna. „Með því að aflétta stimp­il­gjaldi er útgerð­inni gert kleift að flagga skipum út og inn af íslenskri skipa­skrá að eigin geð­þótta og stefna afkomu sjó­manna í stór­hættu,“ segir í umsögn þeirra. „Hvergi er talað um „rekstr­ar­um­hverfi“ sjó­manna eða umhyggju fyrir störfum sjó­manna í frum­varp­inu. Í ljósi þess sem fram kemur í „Sam­herj­a­skjöl­unum“ svoköll­uðu ætti Alþingi að fara sér afar hægt í þessum efnum.“

Gáfu börnum sínum Samherja 

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar fóru hörðum orðum um málið þegar atkvæði voru greidd í gær. „Það vakti mikla athygli í sam­fé­lag­inu og reis upp hneyksl­un­ar­alda á dög­unum þegar upp­lýst var um fyr­ir­fram­greiddan arf eig­enda stærsta og öfl­ug­asta útgerð­ar­fé­lags lands­ins til niðja sinna,“ sagði Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Vísaði hann þar til þess að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, Helga Steinunn Guð­munds­dóttir, hafa afsalað sér hluta­bréfa­eign sinni í Samherja hf. til barna sinna, Baldvins og Kötlu Þor­steins­barna. Hið sama hafa þau Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og eig­in­kona hans, Kolbrún Ing­ólfs­dóttir, gert en börn þeirra, Dagný Linda, Halldór Örn, Kristján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn, hafa tekið við hlut for­eldra sinna. Enn er ólokið rann­sókn á mútu­greiðslum dótt­ur­fé­lags Samherja í Namibíu og aðkomu þeirra Þor­steins og Krist­jáns þar.

„Fyr­ir­fram­greiddur arfur á fyr­ir­fram­greiddum arði, svim­andi upp­hæðir,“ sagði Guð­mundur Andri. „Einn tals­manna stjórn­ar­liðs­ins í sjáv­ar­út­vegs­málum komst ágæt­lega að orði þegar að hún sagði, hátt­virtur þing­maður, að hér væri um að ræða sum­ar­gjöf þess­ara eig­enda til sinna niðja. Hér greiðum við atkvæði um það hvort við ætlum að taka þátt í því að rík­is­stjórn Íslands gefi stór­út­gerð­inni í land­inu þessa sum­ar­gjöf.“

Ágúst Ólafur Ágústs­sonÞing­mað­ur­inn segir rík­is­stjórn­ina for­gangs­raða í þágu stór­út­gerð­ar­innar.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, sam­flokks­maður Guð­mundar Andra, sagð­ist stundum verða hálf orð­laus yfir því sem gerð­ist í þingsalnum. „Þetta er nú kannski eitt af þeim augna­blikum. Er það virki­lega svo að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír telji það vera for­gangs­mál í miðjum heims­far­aldri að lækka hér skatta á fyr­ir­tæki sem kaupa stór skip? Um það snýst þetta. Það er verið að lækka hér skatta hjá þeim fyr­ir­tækjum, stór­út­gerð­inni, þegar hún er að kaupa stór skip. Þetta er ofan í þá stað­reynd að veiði­leyfagjöld hafa lækkað um helm­ing síðan þessi rík­is­stjórn tók við,“ sagði Ágúst Ólafur.

Önnur stimpilgjöld enn í gildi

„Þetta er sér­kenni­leg for­gangs­röðun en sýnir svo vel hvaða hags­munir ráða alltaf hér,“ bætti hann við. „Þessir sömu rík­is­stjórn­ar­flokkar hik­uðu ekki við að fella hér til­lögu sem mundi gera náms­mönnum kleift að njóta atvinnu­leys­is­bóta í sumar. Það var ekk­ert mál fyrir Vinstri græna, Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. En þegar kemur að því að lækka skatta á stór­út­gerð­ina, þá flýgur það í gegn með met­hraða og hvað þá í miðjum heims­far­aldri, herra for­seti. Þetta er hneyksli og að sjálf­sögðu segi ég nei.“

„En þegar kemur að því að lækka skatta á stór­út­gerð­ina, þá flýgur það í gegn með met­hraða“

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, sagði að frekar hefði verið til­efni til að afnema stimp­il­gjald á fast­eigna­kaup og þá sér­stak­lega ungt fólk sem er að kaupa sér sína fyrstu íbúð. Eins og stendur fær sá hópur afslátt og greiðir hálft stimp­il­gjald.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, sagði aug­ljóst að í þessu máli væru sér­hags­munir teknir fram yfir almanna­hags­muni. „Ekki síst á þessum tímum skiptir það miklu máli að við hugsum um heild­ina en ekki ein­göngu sér­hags­muni, eins og mér finnst birt­ast í þessu máli,“ sagði hún. „Við í Viðreisn höfum lagt til sér­stak­lega að afnema stimp­il­gjöldin og það mun hjálpa heim­il­unum og þeim sem standa í fast­eigna­kaupum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár