Brynjar vill vita um kostnað við fyrirspurnir Pírata

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, spyr alla ráð­herra hver kostn­aður ráðu­neyta hafi verið við að svara fyr­ir­spurnum Pírata.

Brynjar vill vita um kostnað við fyrirspurnir Pírata
Brynjar Níelsson Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks vill vita um kostnað við fyr­ir­spurnir Pírata. Mynd: Pressphotos

Tíu fyr­ir­spurnum Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, var dreift á Alþingi í dag. Beinir hann fyr­ir­spurnum sínum til allra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar og vill vita hver kostn­aður ráðu­neyt­anna hafi verið af því að svara fyr­ir­spurnum frá þing­mönnum Pírata.

Brynjar hefur verið gagn­rýn­inn á stjórn­mál Pírata og segir þá kæfa þingið í fyr­ir­spurnum. Fyr­ir­spurn hans nú til ráð­herr­anna tíu er í þremur liðum. „Hversu margir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins koma að því að und­ir­búa skrif­leg svör við fyr­ir­spurnum þing­manna og hver er áætl­aður heild­ar­fjöldi vinnu­stunda sem í það hefur farið árlega síð­ast­liðin fimm ár?“ spyr hann í fyrsta lagi.

Þá spyr Brynjar um heild­ar­kostnað ráðu­neyt­anna við skrif­leg svör við fyr­ir­spurnum frá þing­flokki Pírata á yfir­stand­andi þingi og hversu margar vinnu­stundir starfs­manna hafi farið í að svara þeim. „Hvað eru fyr­ir­spurnir til skrif­legs svars frá hverjum þing­manni í þing­flokki Pírata hátt hlut­fall slíkra fyr­ir­spurna til ráð­herra?“ spyr hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár