Heima­landið umturn­að­ist Þegar Bethania flutti til Argent­ínu árið 2007 grun­aði hana ekki að heima­land hennar ætti eftir að umturn­ast á næstu árum. Mynd: Jón Bjarki

Skammast sín fyrir að hafa það betra en fólkið sitt heima

Heima­land Mariu Bethaniu Medinu Padrón hefur umturn­ast á síð­ast­liðnum árum. Almenn fátækt, hungur og vöru­skortur eru þar dag­legt brauð enda gjald­mið­ill­inn einskis virði. Hún finnur fyrir sam­visku­biti yfir því að geta lítið hjálpað fólk­inu sínu sem er þar.

Nagandi sam­visku­bit hefur elt hana Mariu Bethaniu Medinu Padrón á röndum síð­ast­liðin ár. Það á það til að kvikna við hvers­dags­leg­ustu athafnir eins og þegar hún hittir vini sína á kaffi­húsi eða fær sér eitt­hvað gott að borða. Gæði hún sér á ís á sól­ríkum degi þá gerir hún hvað hún getur til þess að leyna því fyrir fólk­inu sínu heima. Annað væri enda varla við hæfi. Í heima­land­inu er ís algjör mun­að­ar­vara, eitt­hvað sem fáir geta leyft sér en marga dreymir um, eins og á raunar við um svo margt annað. Þar var verð­bólgan 53 milljón pró­sent á árunum 2016–2019 og níu af hverjum tíu íbúum lifa undir fáækt­ar­mörkum.

Vöru­skortur dag­legt brauðÓða­verð­bólgan hefur verið svo mikil í Venes­ú­ela á síð­ustu árum að gjald­mið­ill­inn er svo gott sem verð­laus. Vöru­skortur er dag­legt brauð og níu af hverjum tíu íbúum lands­ins lifa við hung­ur­mörk.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár