Seðlabankinn dregur upp sviðsmyndir af áfallinu á Íslandi

Lands­fram­leiðsla dregst saman um tvö og hálft til fimm pró­sent, sam­kvæmt sviðs­myndum Seðla­bank­ans. „Pen­ing­arnir hverfa ekki,“ segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri, sem spáir til­færslu á neyslu.

Á blaðamannafundinum í morgun Ásgeir Jónsson segir að sparnaður fólks í sóttkví og samkomubanni leiði ekki til þess að peningar hverfi.

Seðla­bank­inn hefur teiknað upp sviðs­myndir af áfall­inu fyrir íslenskt efna­hags­líf vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, sem sýnir allt að 5% sam­drátt í lands­fram­leiðslu, eða nei­kvæðan hag­vöxt sem því nemur.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sló hins vegar bjartan tón á blaða­manna­fundi bank­ans í morgun.

Seðla­bank­inn telur sig ekki geta spáð fyrir um ástandið í núver­andi aðstæðum. Þess í stað eru dregnar upp sviðs­myndir, sem ekki eru spár. „Þetta er í sjálfu sér ekki spá, það er bara verið að athuga hvernig áfallið kemur í gegn,“ sagði Ásgeir.

Allt að 7% atvinnuleysi á árinu

Í dekkri sviðs­mynd­inni er gert ráð fyrir að atvinnu­leysi verði 7%, en ekki 4,2% eins og spáð hafði verið fyrir far­ald­ur­inn, en mild­ari sviðs­myndin sýnir 5,7% atvinnu­leysi að með­al­tali innan árs­ins. Í sviðs­mynd­inni er gert ráð fyrir að aðgerðir stjórn­valda við að halda fólki í vinnu beri árangur. Atvinnu­leysi getur orðið tölu­vert meira en 7% innan árs­ins, þar sem talan er með­al­tal fyrir árið.

Þá er gert ráð fyrir að verð­bólga minnki um 0,4% frá fyrri spá, úr 1,9% í 1,5%, vegna lækk­unar á verði hrá­vöru á heims­mark­aði og minni vexti launa.

Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans, skor­aði á fólk að halda í von­ina. „Þótt efna­hags­horfur séu að versna veru­lega og þær séu dökkar, megum við ekki missa alla von. Þjóð­ar­bú­skap­ur­inn mun ná sér aftur á strik þegar þessi óáran gengur yfir. Allar þessar sviðs­myndir sem við erum að skoða gera ráð fyrir að hag­vöxtur muni verða ágætur aftur strax á næsta ári.“

Einka­neysla lækkar sam­kvæmt sviðs­mynd­unum um allt að 3,8% í stað þess að vaxa um 2,4%, eins og gert hafði verið ráð fyrir áður. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri gerir hins vegar ráð fyrir því að sparn­að­ur­inn skili sér aftur með frestaðri neyslu.

Þjóðin sparar í sóttkví

Ásgeir sagði í morgun að pen­ing­arnir, sem fólk spar­aði, hyrfu ekki.

„Við skulum hafa í huga að þegar í raun­inni öll þjóðin er komin í sótt­kví, að þeir pen­ingar sem spar­ast þegar fólk hættir að fara út að borða, þegar fólk hættir að láta eftir sér, fara til útlanda eða eitt­hvað álíka, þeir hverfa ekki. Þeir spar­ast. Þetta er um færslu á neyslu að ræða.“

Hann taldi fyr­ir­séð að hag­vöxtur tæki við sér að nýju og að fólk myndi eyða þeim pen­ingum sem það hefði sparað í sótt­kví og sam­komu­banni.

„Ef það kemur ein­hver tími þar sem ein­hver getur ekki eytt pen­ingum, pen­ing­arnir hverfa ekki, þeir koma aftur, inn í kerfið. Það er ekk­ert sem segir mér neitt annað en að fólk haldi áfram að ferð­ast, fólk haldi áfram að láta eftir sér, um leið og þetta er gengið yfir. Þannig að ein­hverju leyti, þótt það sé sam­dráttur núna, þá er þetta færsla á neyslu. Sam­drátt­ur­inn núna kemur fram í auknum hag­vexti aðeins síðar, þegar pen­ing­arnir fara aftur út í kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár