Seðlabankastjóri skýtur niður hugmynd Ragnars Þórs og Vilhjálms

„Ekki sér­stak­lega góð hug­mynd“ að frysta verð­trygg­ing­una vegna COVID-19, segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Seðlabankastjóri skýtur niður hugmynd Ragnars Þórs og Vilhjálms
Ósammála Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Vil­hjálmur Birg­is­son lögðu til taf­ar­lausa fryst­ingu verð­tryggðra lána, en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri telur það ekki góða hug­mynd.

„Svarið er: Nei. Það er ekki skyn­sam­leg ráð­stöfun,“ sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri á blaða­manna­fundi í morgun um hug­myndir þess efnis að frysta verð­trygg­ingu og koma þannig í veg fyrir hækkun hús­næð­is­lána.

Meðal þeirra sem lagt hafa fram hug­mynd­ina eru Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Vil­hjálmur Birg­is­son, vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Ragnar og Vil­hjálmur sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu 12. mars síð­ast­lið­inn og vildu „frysta taf­ar­laust vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar og koma þannig til móts við heim­ilin í land­inu sem eru með verð­tryggð hús­næð­is­lán“.

Seðla­banka­stjóri telur hug­mynd­ina óráð­lega. „Í fyrsta lagi erum við ekki að sjá að það sé að koma mikil verð­bólga. Í öðru lagi, vextir hafa verið að lækka veru­lega. Meðal ann­ars þeir vextir sem heim­ilin greiða,“ sagði hann.

Að hans mati myndu kaup Seðla­bank­ans á rík­is­skulda­bréfum og magn­bundin íhlutun lækka vexti. „Að því leyti má líta á aðgerðir okkar á aðgerðir til handa heim­il­unum.“

Seðla­bank­inn hefur ekki birt efna­hags­spá vegna far­ald­urs­ins, en hins vegar kynnti aðal­hag­fræð­ingur bank­ans tvær sviðs­myndir í morgun. Báðar gerðu þær ráð fyrir að verð­bólga myndi lækka, úr fyrri spá um 1,9 pró­sent verð­bólgu í 1,5 pró­sent verð­bólgu, sem leiðir af sér sam­svar­andi hækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána.

„Við teljum engin efni til þess að setja þak á verð­trygg­ingu þegar við búumst ekki við verð­bólgu og þegar orðið hafa gríð­ar­legar vaxta­lækk­anir í gegnum kerfið sem eru að lækka útgjöld heim­il­anna,“ sagði Ásgeir í morgun.

Þá til­tók hann að kaup­máttur launa hefði hækkað mikið síð­ustu ár. „Kaup­máttur launa er búinn að hækk a um 35 pró­sent á síð­ustu sjö árum. Við munum reyna að varð­veita þennan kaup­mátt. Tryggja það að við séum ekki að sjá kaup­mátt heim­il­anna minnka. Ég vona að það heppn­ist.“

Hann úrskurð­aði end­an­lega að hug­myndin væri ekki góð. „Ég myndi ekki segja að það sé sér­stak­lega góð hug­mynd.“

Auk Ragnars Þórs og Vil­hjálms ályktaði mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands um helg­ina að „verð­trygg­ing lána verði fryst tíma­bundið þannig að mögu­leg aukin verð­bólga birt­ist ekki í hækkun á verð­tryggðum höf­uð­stóli hús­næð­is­lána og auk­inni greiðslu­byrði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár