Á heimsvísu

Ferðalög hafa verið sett í nýtt sam­hengi á tímum kór­óna­veiru. Páll Stef­áns­son heldur áfram með röð mynda­þátta úr ýmsum heims­hornum.

Á heimsvísu
Augna­blikið fest Þessi Kín­verska kona, ein af þeim 20 millj­ónum ferða­manna sem heim­sækja París ár hvert. Hún pass­aði upp á að strá­setja augn­ar­blikið þegar hún hitti á Eiffel turn­inn á ferð sinni um stór­borg­ina. Mynd: Páll Stefánsson

Hvert er lengsta áætl­un­ar­flug í heimi? Hér kemur smá hjálp: Þetta er inn­an­lands­flug milli tveggja borga sem byrja á P. Flugið tekur sextán og hálfan tíma og er 15.715 kíló­metra langt, sem sagt 11 hringir í kringum Ísland. 

Nú í vik­unni byrj­aði flug­fé­lagið Air Tahiti Nui að fljúga Dream­liner-þotum sínum non-stop milli Parísar og fylk­is­höf­uð­borg­ar­innar Pepe'ete á Tahítí. Áður var alltaf milli­lent í Los Angeles, en nú er það ekki í boði vegna ferða­banns Banda­ríkj­anna á Evrópu – og ekki er hægt að breyta milli­lend­ing­unni til Kanada, sem  hefur alveg lokað. Það er svo­lítið kald­hæðn­is­legt að íbúar þess­arar frið­sælu Kyrra­hafs­eyjar lenda í ferða­banni af því að Evrópu er lokað, en íbú­arnir eru jú með franskt vega­bréf, tækni­lega Evr­ópu­búar. 

Nú á tímum COVID-1, eru fáar atvinnu­greinar sem fara eins illa út úr þessu ástandi og ferða­manna­iðn­að­ur­inn, sem er risa, risa stór á heims­vísu. Einn af hverjum tíu jarð­ar­búum hefur við­ur­væri sitt af túrisma. Engin atvinnu­grein hefur vaxið hraðar á síð­ustu tíu árum og af öllum störfum sem hafa skap­ast í heim­inum und­an­farin ára­tug eru 20% tengd ferða­manna­iðn­að­inum. 

Við stærsta guðs­húsiðIstanbúl er fimmta fjöl­sóttasta borg í heimi, en þessir brasil­ísku ferða­menn pössuðu upp á að hafa guðs­húsið Hagia Sofía í bak­grunni, enda enn þá eitt stærsta guðs­hús í heimi, þrátt fyrir að vera byggt árið 537, fyrir tæp­lega 1.500 árum.
Nakti kúrek­innMaður veit ekki hvað hann gerir núna, Nakti kúrek­inn sem hefur sett svip sinn á Times-torg svo lengi sem elstu menn muna, nú þegar öllu er skellt í lás í New York-borg. En stór­borgin er í fjórða sæti yfir mest heim­sóttu borgir ver­aldar.

Frakk­land er það land sem flestir sækja heim, en þangað komu tæpar 90 millj­ónir ferða­manna árið 2018, Spánn var númer tvö með 83 millj­ónir, meðan 80 millj­ónir heim­sóttu Banda­ríkin.

París var sú borg sem næst­flestir komu til, en tæp­lega 20 millj­ónir komu þar við árið 2018. London fylgdi fast á eftir. Sú borg sem flestir heim­sóttu er Bangkok, höf­uð­borg Taílands, en þangað komu 23 millj­ónir ferða­langa. Til sam­an­burðar komu 2,3 millj­ónir ferða­manna hingað heim það sama ár – sem var met. Þeim fækk­aði um 300 þús­und í fyrra, fyrst og fremst út af falli WOW. 

Hvernig sem árið fer, þá fer illa fyrir ferða­manna­iðn­að­inum, bæði hér heima og á heims­vísu, það er deg­inum ljós­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár