Bæta þarf fjórum milljörðum króna í endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar

Á milli umræðna um fjár­lög hefur rík­is­stjórnin ákveðið að bæta fimm millj­örðum króna í útgjöld vegna flótta­manna og fjóra millj­arða króna í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar, sem verða rúm­lega þrisvar sinnum hærri en áður var reiknað með.

Breytingatillögur ríkisstjórnarinnar á fjárlagafrumvarpinu milli umræðna liggja fyrir.
Breyt­inga­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar á fjár­laga­frum­varp­inu milli umræðna liggja fyrir. Mynd: Bára Huld Beck

Útgjöld rík­is­sjóðs munu hækka um 50,6 millj­arða króna frá því sem gert var ráð í fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þegar það var lagt fram í sept­em­ber. Því er ljóst að útgjöld rík­is­sjóðs munu rjúfa 1.300 millj­arða króna múr­inn.

Hin auknu útgjöld skipt­ast niður á nokkra mis­mun­andi mála­flokka. Athygli vekur að mála­flokk­ur­inn nýsköpun, rann­sóknir og þekk­ing­ar­greinar þarf að fá 5,5 millj­arða króna til við­bótar við þá 14,4 millj­arða króna sem reiknað var með að láta renna til hans í fjár­laga­frum­varp­inu í sept­em­ber. Það er aukn­ing um 38,2 pró­sent á fram­lögum til þess mála­flokks.

Stóra ástæðan er sú að sú að end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á Íslandi kalla á fjóra millj­arða króna umfram þann rúm­lega 1,7 millj­arð króna sem ætl­aður var í þær í sept­em­ber. Framlög til mála­flokks­ins verða því rúm­lega þrisvar sinnum meiri en rík­is­stjórnin reikn­aði með fyrir rúmum tveimur mán­uðum síðan.

Sá kostn­aður kemur til við­bótar við það fjár­magn sem þarf að sækja á fjár­auka­lögum til að greiða til kvik­mynda­fram­leið­enda, aðal­lega erlendra, fyrir að vinna verk­efnin sín á Íslandi. Kjarninn greindi frá því fyrr í nóv­em­ber að það þurfi að sækja tæp­lega 1,8 millj­arð króna þar til við­bótar við þann tæp­lega 1,5 millj­arð króna sem gert var ráð fyrir að eyða af opin­beru fé í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar í ár á gild­andi fjár­lögum. Kostn­aður vegna end­ur­greiðsln­anna er því rúm­lega tvö­faldur það sem hann var áætl­aður í ár og verður sam­an­lagt, að óbreyttu, um 5,7 millj­arðar króna á næsta ári.

[adspot]Ástæða þessa er ákvörðun stjórn­valda að hækka end­ur­greiðslu vegna fram­leiðslu­kostn­aðar kvik­mynda­fram­leið­enda úr 25 í 35 pró­sent fyrir stærri verk­efni. Rík­is­stjórnin sam­þykkti frum­varp Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, um málið í maí og það var afgreitt sem lög frá Alþingi um miðjan júní. Innan kvik­mynda­geirans er almennt talið að fram­lagn­ingu frum­varps­ins hafi verið flýtt til að tryggja að fram­leiðsla á fjórðu þátta­röð True Detective færi fram hér á landi, en umfang þess er metið á níu til tíu millj­arða króna. Ef efri mörk þess bils verður nið­ur­staðan munu 3,5 millj­arðar króna af þeim 5,7 millj­örðum sem rík­is­sjóður telur sig þurfa að greiða í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á næsta ári renna til banda­ríska fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins HBO.

Styrkir vegna rannsókna og þróunar aukast líka

Þá þarf að sækja 1,3 millj­arð króna til við­bótar við það sem áður var áætlað vegna upp­færslu á áætlun um styrki til fyr­ir­tækja vegna rann­sókna og þró­unar.

Nýsköp­un­ar­verk­efni sem hlotið hafa ­stað­fest­ingu frá Rannís eiga rétt á sér­stökum skatt­frá­drætti vegna rann­sókna og þró­un­ar. Með opin­berum stuðn­ingi er átt við skatt­frá­drátt og styrki frá opin­berum aðil­um, sam­an­lagt. Njóti verk­efnið opin­berra styrkja hafa þeir áhrif á fjár­hæð skatt­frá­dráttar sem fæst end­ur­greidd­ur. End­­­ur­greiðslu­hlut­­­fallið er 35 pró­­­sent í til­­­viki lít­illa og með­­­al­stórra fyr­ir­tækja, en 25 pró­­­sent í til­­­viki stórra fyr­ir­tækja. Há­­mark skatta­frá­­­dráttar er 385 millj­­­ónir króna hjá litlum og með­­­al­stórum fyr­ir­tækjum og 275 millj­­­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækj­u­m.

Í fjár­­laga­frum­varpi næsta árs var gengið út frá því að end­­ur­greiðslu vegna rann­­sóknar og þró­unar yrði 11,8 millj­­arðar króna, en hún verður þá vænt­an­lega 13,1 millj­arður króna. Sam­kvæmt frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son hefur lagt fram og dreift var á þingi fyrr í þessum mán­uði, á ekki að gera end­ur­greiðsl­urnar var­an­legar heldur fram­lengja þær út árið 2025. Þar segir að búast megi við því að kostn­aður rík­is­sjóðs verði 14,5 millj­arðar króna árið 2024 og 15,3 millj­arðar króna árið 2025.

Stuðn­ings­kerfi við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki er til skoð­unar og úttektar af Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­inni (OECD) og er nið­ur­stöðu hennar að vænta á árinu 2023.

Fimm milljarða aukning vegna flóttafólks

Þá er lagt til að fram­lög til félags-, hús­næðis- og trygg­inga­mála hækki um 3,7 millj­arða króna en þar af fari 1,1 millj­arðar króna til að hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna öryrkja í 200 þús­und krónur á mán­uði.

Alls er gert ráð fyrir að hækkun vegna ýmissa verk­efna sem tengj­ast fjölgun flótta­fólks og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, ásamt stuðn­ingi við Úkraínu, nemi um fimm millj­arða króna, en sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi var reiknað með rúm­lega 1,3 millj­örðum króna í mála­flokk­inn. Því er um gríð­ar­lega aukn­ingu að ræða.

Hún kemur til við­bótar við þá 1,4 millj­arð króna sem þarf að sækja á fjár­auka­lögum í ár til að mæta ýmsum útgjöldum sem tengj­ast fjölgun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, flótta­fólks og mál­efnum Úkra­ínu. Til við­bótar við þá upp­hæð er gert ráð fyrir að ráð­stafa 3,2 millj­örðum króna úr almennum vara­sjóði vegna fjölgun flótta­fólks og umsókna um alþjóð­lega vernd. Heild­ar­aukn­ing það sem af er árs­ins nemur því um 4,6 millj­örðum króna, en á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins sóttu alls 3.467 um vernd hér­lend­is. Það eru rúm­lega þrisvar sinnum fleiri en hafa áður sótt um vernd á Íslandi innan heils árs. Lang­flest­ir, eða 58 pró­sent allra umsækj­enda, koma frá Úkra­ínu eftir boð íslenskra stjórn­valda þar um. Þá eru 22 pró­sent umsækj­enda frá Venes­ú­ela, sem koma hingað á grund­velli ákvörð­unar stjórn­valda þar um frá árinu 2018. Því koma átta af hverjum tíu umsækj­endum um vernd frá þessum tveimur lönd­um.

Stærstur hlutinn í heilbrigðismál

Ekki kemur mikið á óvart að stærstur hluti við­bót­ar­út­gjalda sem bæt­ast við fjár­laga­frum­varpið milli umræðna á að rata í heil­brigð­is­mál, eða 12,2 millj­arðar króna til við­bótar við það sem þegar ratar þangað. Þar af fara 4,3 millj­arðar króna í Land­spít­al­ann, Sjúkra­húsið á Akureyri og heilsu­gæsl­una.

[links]Í umsögnum Land­spít­al­ans um fjár­laga­frum­varpið kom skýrt fram að honum vant­aði millj­arða króna í rekstur sinn umfram þá 85 millj­arða króna sem þegar var búið að heita til rekst­urs hans á þessu ári í frum­varp­inu. Þar kom raunar fram að spít­al­inn glímdi við und­ir­liggj­andi rekstr­ar­vanda og að hann þyrfti að skerða þjón­ustu sína ef hann fengi ekki meira fjár­magn á næsta ári. Við­bót­ar­fram­lag til Land­spít­al­ans, Sjúkra­húss­ins á Akureyri og heilsu­gæsl­unnar er því áætlað um 7,5 pró­sent hærra en það sem ætlað er til end­ur­greiðslu vegna kvik­mynda­gerðar.

Hálfur milljarður til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi

Lög­reglan fær 900 millj­ónir króna aukin fram­lög til að ná mark­miðum um við­bragðs­tíma, máls­með­ferð­ar­harða og örygg­is­stig og hálfan millj­arð króna hækkun „í aðgerðir gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.“

Millj­arður króna fer í til­lögu um stuðn­ing við kaup bíla­leiga á hrein­orku­bílum og 550 millj­ónir króna af mál­efna­sviði umhverf­is­mála verður flutt til að styrkja Orkusjóð tíma­bundið í tengslu við aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum og 150 millj­ónir króna tíma­bundið til þriggja ára í jarð­hita­leit­ar­á­tak.

Þá er lagt til að styrkja Land­helg­is­gæsl­una með 600 millj­óna króna hækkun, meðal ann­ars vegna auk­ins elds­neytis­kostn­aðar, end­ur­nýj­unar bún­aðar og leigu nýs flug­skýlis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlög2023

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár