Útgáfufélag Morgunblaðsins telur frumvarp Lilju fresta vanda fjölmiðla en ekki leysa hann

Stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækin skil­uðu umsögnum um frum­varps­drög sem fram­lengja styrkja­kerfi við fjöl­miðla. Árvakur vill fá stærri hluta styrkj­anna og að gripið verði til ann­arra aðgerða til að bæta stöðu fjöl­miðla. Bænda­sam­tökin eru ánægð með kerfið.

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins vill að þakið á styrkja­greiðslum rík­is­sjóðs til einka­rek­inna fjöl­miðla verði hækkað svo stærri fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, þar á meðal Árvakur, fái hærri upp­hæð í styrki en styrkir til minni fjöl­miðla drag­ist saman. Þá vill útgáfu­fé­lagið að gripið verði til marg­hátt­aðra aðgerða til tryggja sann­gjarnt rekstr­ar­um­hverfi á fjöl­miðla­mark­aði og að fjöl­miðlum verði veittur óbeinn stuðn­ingur með skatta­lækk­unum. „Ef veita á beinan rekstr­ar­stuðn­ing þarf að horfa til þess að hann sé ein­faldur, sann­gjarn og nýt­ist til að styðja við raun­veru­lega fjöl­miðlun hér á landi en sé ekki svo rýr eða með svo lágu þaki að hann nýt­ist lítið eða skekki jafn­vel sam­keppn­is­stöð­una, eins og raunin er við núver­andi fyr­ir­komu­lag.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Árvakurs um fyr­ir­liggj­andi frum­varps­drög Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um fram­leng­ingu á gild­is­tíma styrkja­kerfis við einka­rekna fjöl­miðla, þannig að styrkir verði greiddir út á árunum 2023 og 2024. Gert er ráð fyrir að árlegur kostn­aður rík­is­sjóðs verði allt að 400 millj­ónir króna á ári og að lögin taki gildi 1. jan­úar næst­kom­andi.

Sam­kvæmt drög­unum er stefna stjórn­valda að innan þess­ara ára verði „lagt fram nýtt frum­varp til fimm ára sem sé í takt við þá þróun sem er að verða á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Þannig verður Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla.“

Ekki er til­greint hvað eigi að fel­ast í hinu nýja frum­varpi til fimm ára en heim­ildir Kjarn­ans herma að stefnt sé að því að leggja það fram næsta vor.

Vilja meira til stærstu fjölmiðlanna

Í umsögn Árvakurs er til­urð styrkja­kerf­is­ins ekki gagn­rýnd, heldur mun frekar hvernig upp­hæð­inni sem sé til skipt­anna sé ráð­stafað af of litlu leyti til útgáfu­fé­lags­ins. Síðast gerði þakið sem sett er á styrki til ein­stakra fjöl­miðla það að verkum að Árvakur, Sýn og Torg, þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, fengu 67 millj­ónir króna hvert en hinir 22 fjöl­miðl­arnir sem upp­fylltu skil­yrði fyrir styrkjum skiptu því sem eftir stóð á milli sín. Alls fóru 53 pró­sent þeirra 381 millj­óna króna sem greiddir voru í styrki til þess­ara þriggja fyr­ir­tækja. Ef þakið yrði hækkað myndi stærri hluti af styrkj­unum fara til þeirra þriggja stærstu. Að mati Árvakurs skekkja regl­urnar um þakið sam­keppn­is­stöðu á fjöl­miðla­mark­aði.

[adspot]Í umsögn­inni er sett fram gagn­rýni á að styrkja­kerfið sé ein­ungis fram­lengt í tvö ár, sem dragi úr fyr­ir­sjá­an­leika í rekstri fjöl­miðla. „Þá er þetta sér­stak­lega óheppi­legt þegar um er að ræða rík­is­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla því að með skömmum gild­is­tíma eru þessi mál til stöðugrar umfjöll­unar sem getur sett frjálsa fjöl­miðla í óheppi­lega stöðu gagn­vart stjórn­völdum, sen hafa verður í huga að meðal mik­il­vægra hlut­verka frjálsra fjöl­miðla er að veita stjórn­völdum aðhald.“

Fresta vanda fjölmiðla frekar en að leysa hann

Í sam­an­tekt um umsögn Árvakurs segir að frum­varpið breyti litlu fyrir einka­rekna fjöl­miðla frá því sem verið hefur „enda virð­ist ætl­unin með því fremur að fresta því að taka á vanda fjöl­miðla en að leysa hann.“ For­svars­menn Árvakurs gang­ast þó við að stuðn­ing­ur­inn, verði hann fram­lengdur, gagn­ist fjöl­miðlum, en mis­mikið.

Verulegt áhyggju­efni sé hvernig stjórn­völd og Alþingi hafi nálg­ast það að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. „Margt er hægt að gera til að bæta rekstr­ar­um­hverfið fyrir utan að veita beina styrki. Ríkið getur hætt að keppa við einka­rekna fjöl­miðla á aug­lýs­inga­mark­aði, ríkið getur leyft aug­lýs­ingar áfengis, sem almenn­ingur hefur hvort eð er sér hvar­vetna á net­inu, og ríkið getur lagt sig fram um að jafna aðstöðu erlendra miðla sem not­aðir eru hér á landi og inn­lendra miðla. Ekkert af fyrr­greindu getur talist stuðn­ingur, miklu frekar að tryggja sann­gjarnt rekstr­ar­um­hverfi. Ríkið getur veitt óbeinan stuðn­ing eins og algengt er erlendis, svo sem með því að fella niður virð­is­auka­skatt af áskriftum prent­miðla og með þvi að afnema í heild eða hluta trygg­inga­gjald hjá starfs­mönnum fjöl­miðla. Ef veita á beinan rekstr­ar­stuðn­ing þarf að horfa til þess að hann sé ein­faldur, sann­gjarn og nýt­ist til að styðja við raun­veru­lega fjöl­miðlun hér á landi en sé ekki svo rýr eða með svo lágu þaki að hann nýt­ist lítið eða skekki jafn­vel sam­keppn­is­stöð­una, eins og raunin er við núver­andi fyr­ir­komu­lag.“

Undir umsögn­ina ritar Haraldur Johann­es­sen, annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, og Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins. Sig­ur­björn er faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.

Ætti að fylgja verðlagsbreytingum

Nokkrar aðrar umsagnir bár­ust í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda vegna frum­varps­drag­anna. Í umsögn Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, er ekki lýst stuðn­ingi né and­stöðu við meg­in­til­gang frum­varps­ins, að greiða út styrki til einka­rekna fjöl­miðla. Þar eru hins vegar gerðar nokkrar athuga­semdir við umsagn­ar­frest, kröfur um öflun álits sér­fróðra aðila, kröfu um grein­ar­gerð um ráð­stöfun styrk­fjár, frá­drátt­ar­bærni ann­arra styrkja og heild­ar­fjár­hæð stuðn­ings. Varðandi síð­ast­nefnda atriðið þá snýst athuga­semdin um að heild­ar­upp­hæðin sem sé til úthlut­unar, allt að 400 millj­ónum króna, hækki ekki í takti við verð­lag í land­inu. Á sama tíma hækki greiðslur til RÚV hins vegar í slíkum takti. Verði fjár­laga­frum­varpið 2023 sam­þykkt í þeirri mynd sem það var lagt fram muni greiðslur úr rík­is­sjóði til RÚV hafa auk­ist um 720 millj­ónir króna á tveimur árum vegna verð­lags­breyt­inga. „Það er nær tvö­föld sú fjár­hæð sem nemur heild­ar­stuðn­ingi við einka­rekna miðla eins og hann var fyrir árið 2021.“

Undir umsögn Torgs ritar Jón Þórisson, for­stjóri félags­ins og fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins.

Í umsögn Sýnar, sem rekur frétta­stofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgj­unnar, er lítið fjallað um efn­is­at­riði frum­varps­ins og mestu plássi eytt í aðrar aðgerðir sem gætu aðal­lega gagn­ast einka­reknum afþrey­ing­ar­miðlum, meðal ann­ars þeirra sem heyra undir Sýn.

Áherslan er aðal­lega á að rök­styðja hvatn­ingu til stjórn­valda til að ljúka vinnu við skatt­lagn­ingu erlendra efnis- og streym­isveitna. Bent er á að kvaðir, til dæmis skattur, hafi þegar verið lagðar á erlendar efn­isveitur í tólf ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og áform til staðar um að setja slíkar á í fimm til við­bótar..

Í nið­ur­lagi umsagnar Sýnar er því beint til stjórn­valda að ljúka vinnu við skatt­lagn­ingu erlendra efnis- og streym­isveitna. „Skattféð mætti síðan nýta til að jafna sam­keppn­is­stöð­una, sem og til að gæta að verndun íslenskrar tungu með því að fram­leiða enn meira af inn­lendu gæða sjón­varps­efni.“

Undir umsögn­ina skrifar Páll Ásgríms­son, lög­fræð­ingur hjá Sýn.

Bændasamtökin himinlifandi með styrkjakerfið

Jákvæð­asta umsögnin kom frá Bænda­sam­tökum Íslands. Þau eru ekki atvinnu­greina­flokkuð sem útgáfu­starf­semi heldur sem hags­muna­sam­tök en hafa fengið rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði vegna útgáfu Bænda­blaðs­ins. Hann var 16,8 millj­ónir króna í ár, eða 4,4 millj­ónum krónum meira en sam­tökin fengu í greiðslur í fyrra. Enginn einn aðili jók styrkja­greiðslur sínar meira milli ára.

[links]Rit­stjórn Bænda­blaðs­ins heyrir undir útgáfu- og kynn­ing­ar­svið Bænda­sam­taka Íslands. Á heima­síðu Bænda­sam­tak­anna segir að hlut­verk þeirra sé að vera „málsvari bænda og gæta hags­muna þeirra í hví­vetna“. Meg­in­mark­mið þeirra sé að „beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstr­ar­skil­yrðum í land­bún­aði auk þess að miðla upp­lýs­ingum og sinna fræðslu til sinna félags­manna.“ Bænda­blaðið er sent end­ur­gjalds­laust á öll lög­býli á Íslandi.

Lög­fræð­ingur sam­tak­anna, sem skrifar umsögn­ina, er hæstá­nægður með frum­varps­drögin og segir að það þurfi vart að fjöl­yrða hversu mik­il­vægt Bænda­blaðið sé allri umræðu og upp­lýs­ingu þjóð­ar­innar. „Rekstr­ar­um­hverfi prent­mið­ils á borð við Bænda­blaðið hefur verið afar erfitt síð­ustu árin vegna gríð­ar­legra hækk­ana á gjalda­hlið­inni sem erfitt eða jafn­vel ómögu­legt er að mæta á tekju­hlið­inni. Því er stuðn­ing­ur­inn sem hér um ræðir lyk­il­at­riði í því að hægt sé að halda úti vand­aðri og upp­lýstri umræðu um land­búnað sem er einn af grunnatvinnu­vegum lands­ins.“

Eina gagn­rýnin sem sett er fram er sú að fjár­hæð stuðn­ings­ins úr rík­is­sjóði end­ur­spegli ekki verð­lags­hækk­anir milli ára.

Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­­­ar­­­stuðn­­­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samkeppni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár