Tap af reglulegri starfsemi útgáfufélags Fréttablaðsins var 326 milljónir í fyrra

Alls hefur reglu­leg starf­semi Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið og heldur úti ýmsum öðrum miðlum, skilað um 1,3 millj­arða króna tapi á þremur árum. Við­skipta­vild sam­steypunnar skrapp saman um rúm­lega hálfan millj­arð króna á árinu 2021.

Helgi Magnússon er aðaleigandi og stjórnarformaður Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins. Mynd: Samsett

Tap af reglu­legri starf­semi fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs var 325,7 millj­ónir króna í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi félags­ins. Heild­ar­tapið var 252,5 millj­ónir króna en þar munar mestu um að tekju­skattsinn­eign vegna taps árs­ins var bók­færð sem tekjur upp á 73 millj­ónir króna. Upp­safnað skatta­legt tap nýt­ist ekki nema að fyr­ir­tæki skila hagn­aði.

Þessi nið­ur­staða er dekkri en sú mynd sem dregin var upp af rekstri Torgs í frétt í Frétta­blað­inu í mars síð­ast­liðnum, þar sem tap fyr­ir­tæk­is­ins var sagt 240 millj­ónir króna.

Tekjur Torgs, sem gefur út Frétta­­blað­ið, sem og vef­miðl­ana dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hring­braut.is og fretta­bla­did.is og rekur sjón­­varps­­stöð­ina Hring­braut, juk­ust um 380 millj­ónir króna og voru um 2,4 millj­arðar króna.

Á árunum 2019 og 2020 var millj­arðs króna tap af reglu­legri starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Sam­an­lagt hefur því verið rúm­lega 1,3 millj­arða króna tap af henni á þremur árum. Heild­ar­tap, þegar búið er að taka til­lit til þeirrar tekju­skattsinn­eignar sem skap­að­ist vegna taps­ins á þessum árum, var tæp­lega 1,1 millj­arður króna.

Ábending gerð um mat á viðskiptavild

Miklar breyt­ingar urðu á virði eigna Torgs á síð­asta ári. Þær voru tæp­lega 1,3 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót en höfðu verið um 1,8 millj­arðar króna í árs­lok 2020. Þar munar lang­mest um að áður­nefnd tekju­skattsinn­eign var tekju­færð og að við­skipta­vild sam­steypunnar lækk­aði um 545,6 millj­ónir króna í fyrra, í 398,2 millj­ónir króna.

Í skýr­ingum með árs­reikn­ingnum kemur fram að við­skipta­vild upp á 480 millj­ónir króna hafi verið seld á árinu. Ekki er frekar greint frá því hvað fólst í þeirri fram­kvæmd.

[adspot]Í áritun end­ur­skoð­anda Torgs er ábend­ing um mat á við­skipta­vild félags­ins, án þess þó að end­ur­skoð­and­inn geri fyr­ir­vara við álit sitt. Þar er vísað skýr­ingu í reikn­ingnum sem fjallar um óvissu varð­andi mat á við­skipta­vild. Í þeirri skýr­ingu segir: „Á árinu 2021 var tap á rekstri félags­ins en þó um helm­ingi minna en árið áður. Eftir end­ur­skipu­lagn­ingu rekstr­ar­ins árið 2020 hefur afkoman farið batn­andi. Áætlun árs­ins 2022 gerir ráð fyrir jafn­vægi í rekstri félags­ins og að hagn­aður verði á rekstr­inum vegna þeirra aðgerða sem hefur verið gripið til. Fram­kvæmt var virð­is­rýrn­un­ar­próf á óefn­is­legum eignum félags­ins í árs­lok 2021 og stóð­ust eign­irnar prófið. Virð­is­rýrn­un­ar­próf er byggt á áætl­unum sem sýna bæt­ingu á afkomu félags­ins. Í ljósi þess að virð­is­rýrn­un­ar­próf er byggt á áætl­unum um hagnað í fram­tíð­inni sem mögu­lega ganga ekki eftir er óvissa tengd mati á óefn­is­legum eignum.“

Skuldir Torgs dróg­ust líka umtals­vert saman á síð­asta ári, úr 1,5 millj­arði króna í 913 millj­ónir króna. Þar munar mestu um að skuld við tengdan aðila, eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins, voru lækk­aðar úr 440 millj­ónum króna í 106 millj­ónir króna.

Helgi Magn­ús­son á nán­ast allt fyr­ir­tækið

Torg er í eigu tveggja félaga, Hof­­­garða ehf. og HFB-77 ehf. Eig­andi fyrr­­­nefnda félags­­­ins er fjár­­­­­fest­ir­inn Helgi Magn­ús­­­son og hann á 82 pró­­­sent í því síð­­­­­ar­­­nefnda. Helgi er auk þess stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Torgs. Aðrir eig­endur þess eru Sig­­­urður Arn­gríms­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­skipta­­­fé­lagi Helga til margra ára, Jón G. Þór­is­­­son, fyrr­ver­andi rit­­­stjóri Frétta­­­blaðs­ins, og Guð­­­­­­­mundur Örn Jóhanns­­­­­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­­­­­varps­­­­­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­­­­­kvæmda­­­­­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­­­­­mála og dag­­­­­­­­skrár­­­­­­­­gerðar hjá Torg­i. Hlutur ann­­arra en Helga er hverf­andi.

[links]Hóp­­ur­inn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaup­verðið var trún­­­að­­­ar­­­mál en í árs­­­reikn­ingi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­­­­­ónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félags­­­ins.

Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 millj­­ónir króna í lok árs 2020 og aftur um 300 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Með nýju hluta­fjár­­aukn­ing­unni er ljóst að settir hafa verið 1,5 millj­­arðar króna í kaup á Torgi og hluta­fjár­­aukn­ingar frá því að Helgi og sam­­starfs­­menn hans komu að rekstr­inum fyrir tæp­lega þremur árum síð­an.

Opnað á að hætta prentum á Fréttablaðinu

Flagg­­­skipið í útgáfu Torgs er Frétta­­­blað­ið. Útgáfu­­­dögum þess var fækkað úr sex í fimm á viku á árinu 2020 þegar hætt var með mán­u­­­dags­út­­­­­gáfu blaðs­ins. Auk þess hefur dreif­ing frí­­blaðs­ins dreg­ist saman úr 80 í 75 þús­und ein­tök á dag.

Lestur Frétta­­­blaðs­ins mæld­ist 30 pró­­­sent í febr­úar 2022. Hann hefur dalað jafnt og þétt und­an­farin ár en í apríl 2007 var hann 65,2 pró­­­sent og hélst yfir 50 pró­­­sent þangað til í des­em­ber 2015. Síð­­­sum­­­­­ars 2018 fór lest­­­ur­inn svo undir 40 pró­­­sent í fyrsta sinn og í jan­úar 2022 fór hann í fyrsta sinn undir 30 pró­sent. Hann mælist nú 27 pró­sent.

Í ald­­­­ur­s­hópnum 18 til 49 ára mælist lest­­­­ur­inn nú 18,1 pró­­­­sent og er nú tæp­lega þriðj­ungur þess sem hann var fyrir tólf árum. Aldrei hafa færri undir fimm­tugu lesið Frétta­blaðið.

Jón Þórisson, for­stjóri Torgs, sagði í við­tali við Frétta­blaðið í byrjun síð­asta mán­aðar að fyr­ir­tækið þyrfti að „horfast í augu við það að á ein­hverjum tíma­punkti í fram­tíð­inni mun Frétta­blað­ið, sem ber ægis­hjálm yfir aðra miðla hér á landi hvað varðar útbreiðslu og lest­ur, hætta að koma út á prent­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár