Dómsmálaráðherra segir viðbúið að lögregla handtaki fólk fyrir mistök

Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag um verk­lag lög­reglu og sér­sveitar vegna ábend­inga frá almenn­ingi þar sem vopn koma við sögu. Ástæðan er útkall lög­reglu um helg­ina þar sem vopn­aður maður reynd­ust vera börn í kúreka­leik.

„Við búum í samfélagi þar sem að vopnaburður er að verða víðtækari heldur en hann hefur verið áður,“ sagði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
„Við búum í sam­fé­lagi þar sem að vopna­burður er að verða víð­tæk­ari heldur en hann hefur verið áður,“ sagði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag um verk­lag lög­reglu og sér­sveitar vegna ábend­inga frá almenn­ingi þar sem vopn koma við sögu. Ástæðan er útkall lög­reglu um helg­ina þar sem vopn­aður maður reynd­ust vera börn í kúreka­leik.

Lögreglu barst til­kynn­ing um vopn­aðan mann í Kópavogi á laug­ar­dag. Sérsveit lög­regl­unnar hand­tók mann vegna máls­ins en fljótt kom í ljós að um mis­skiln­ing var að ræða. Manninum og fjöl­skyldu hans var brugðið og var veitt áfalla­hjálp í kjöl­farið. Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra um verk­lag lög­reglu í málum sem þessum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

[adspot]„Barn stendur við eld­hús­glugg­ann heima hjá sér, heyrir hróp og köll og fer út. Þar horfir það upp á svart­klæddan, víg­bú­inn mann beina að föður þess hríð­skota­byssu og skipa honum að leggj­ast í jörð­ina. Sérsveit hefur fylgt sér að hús­inu og miðað vél­byssum í and­lit bæði fjöl­skyldu­föð­ur­ins og að móð­ur­inni. Svart­klæddir sér­sveit­ar­menn­irnir öskra spurn­ingum að fjöl­skyld­unni. Faðirinn er settur í hand­járn og barnið horfir á eftir föður sínum þar sem hann er leiddur niður inn­keyrsl­una og inn í lög­reglu­bíl. Svo kemur í ljós að þetta var allt mis­skiln­ingur.“

Þannig lýsir Arndís Anna, þing­maður Pírata, upp­lifun barns að aðgerðum lög­reglu.

„Gríðarlegt áfall og engu barni bjóðandi“

„Tilefni útkalls­ins var að sést hafði til barns í kúreka­leik með vinum sínum. Barnið var komið heim til sín og farið að snúa sér að öðru. Sem betur fer var engin hætta á ferð og fjöl­skyldan gat borðað kvöld­mat saman, heil á húfi, lík­am­lega,“ sagði Arndís Anna í fyrsta óund­ir­búna fyr­ir­spurn­ar­tíma vetr­ar­ins á Alþingi í dag. Hún bað þing­heim að setja sig í spor barns sem horfir upp á sér­sveit lög­reglu koma heim til þess og beina skot­vopnum að því og fjöl­skyldu þess. „Að upp­lifa við­líka inn­rás á heim­ili sitt, svæði sem á að heita öruggt, er aug­ljós­lega gríð­ar­legt áfall og engu barni bjóð­andi.“

Beindi hún fyr­ir­spurn sinni að dóms­mála­ráð­herra og spurði hann hvort lög­regla og sér­sveit hennar fylgdu ákveðnu verk­lagi þegar brugð­ist er við ábend­ingum frá almenn­ingi.

„Í kjöl­far þess­ara atburða og í sam­hengi við önnur alvar­leg atvik sem orðið hafa á síð­ustu vikum og mán­uðum þar sem sér­sveit lög­regl­unnar og börn koma við sögu vil ég beina þeirri spurn­ingu til hæst­virts dóms­mála­ráð­herra hvort ekki séu fyrir hendi ein­hverjar verk­lags­reglur sem lög­regla og sér­sveit hennar fylgja þegar brugð­ist er við ábend­ingum frá almenn­ingi og hvort í ráðu­neyt­inu sé ein­hver vinna í gangi við end­ur­skoðun á þeim?“ spurði Arndís Anna.

Búum í samfélagi þar sem vopnaburður er að verða víðtækari

Verk­lags­reglur hjá lög­regl­unni þegar gripið er til vopna eru mjög ítar­legar að sögn dóms­mála­ráð­herra. Hann sagð­ist ekki þekkja ein­stök dæmi. „En þetta dæmi sem hér var lýst er sorg­legt en við getum alltaf átt von á því að slíkt hendi,“ sagði dóms­mála­ráð­herra.

„Við búum í sam­fé­lagi þar sem að vopna­burður er að verða víð­tæk­ari heldur en hann hefur verið áður,“ hélt ráð­herr­ann áfram og vís­aði í fjölda útkalla þar sem bregð­ast þarf við vopna­burði.

Jón gerði öryggi lög­reglu­manna einnig að umtals­efni og sagði að við aðstæður sem þessar sé öryggi þeirra líka ógnað. „Lög­reglu­menn eiga líka sínar fjöl­skyldur. Lög­reglu­menn vilja líka koma heilir heim úr sinni vinnu. Og ég bið bara um skiln­ing fyrir það fólk sem vinnur þessi mik­il­vægu störf í sam­fé­lag­inu, skiln­ing á aðstæðum þeirra.“

Manninum og fjölskyldu veitt áfallahjálp

Í til­kynn­ingu lög­reglu frá því á laug­ar­dag segir að fljót­lega eftir hand­töku manns­ins hafi komið í ljós að um mis­tök væru að ræða. Manninum og fjöl­skyldu hans hafi að vonum verið brugðið við aðgerðir lög­reglu og kallað var eftir áfalla­hjálp til að takast á við „þessa óþægi­legu atburði dags­ins“, líkt og sagði í til­kynn­ingu lög­reglu.

Jón sagði að ekki verði hjá því kom­ist að mis­tök, líkt og urðu á laug­ar­dag, geti átt sér stað í hita leiks­ins. „Auðvitað er það okkar mark­mið með þjálfun og verk­lags­reglum að tak­marka slíkt eins og hægt er,“ sagði Jón.

Verk­lags­reglur eru í end­ur­skoðun að sögn dóms­mála­ráð­herra og er sú vinna gerð í náinni sam­vinnu við lög­reglu, sem er, að sögn ráð­herra, mjög umhugað um að hafa strangt og öfl­ugt reglu­verk í kringum vopna­burð lög­regl­unnar.

Arndís Anna sagði það hryggja hana að heyra að mis­tök eins og þessi geti alltaf átt sér stað. „Það gleður mig hins vegar að heyra að það sé ein­hvers konar vinna í gangi í ráðu­neyt­inu við end­ur­skoðun á þessum verk­lags­reglum. Það er að sjálf­sögðu hlut­verk lög­regl­unnar að bregð­ast við til­kynn­ingum sem henni ber­ast en það má ekki bara vera ein­hvern veg­inn eða eftir hend­ingu hverju sinni. Það hlýtur að vera grund­vall­ar­at­riði að í störfum eina aðil­ans sem hefur lögum sam­kvæmt heim­ild til að beita almenna borg­ara við­líka valdi gildi skýrar reglur um þá vald­beit­ingu og að lög­reglan fái við­hlít­andi þjálfun,“ sagði Arndís Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár