Grunur um undirbúning hryðjuverka á Íslandi

Tveir íslenskir menn á þrí­tugs­aldri hafa verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, grun­aðir um að hafa und­ir­búið hryðju­verka­árás á Íslandi.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra og Sveinn Ingiberg Magnússon, yfirlögregluþjónn hjá Héraðssaksóknara, á upplýisngafundi lögreglu í dag.
Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra og Sveinn Ingiberg Magn­ús­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara, á upp­lý­isnga­fundi lög­reglu í dag. Mynd: Skjáskot: RÚV

Fjór­menn­ing­arnir sem lög­regla hand­tók í gær og afstýrði þannig hættu­á­standi eru grun­aðir um að hafa staðað að und­ir­bún­ingi hryðju­verka. Tveir þeirra, Íslend­ingar á þrí­tugs­aldri, hafa verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald, annar í eina viku og hinn í tvær vikur. Rannsókn lög­reglu snýst meðal ann­ars um að kanna hvort menn­irnir tengj­ast öfga­sam­tökum.

Þetta er meðal þess sem fram kom á upp­lýs­inga­fundi lög­regl­unnar vegna aðgerða sér­sveitar lög­reglu af mönn­unum í gær.

„Samfélag okkar er örugg­ara en það var, “ sagði Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á fund­inum. Ásamt honum voru Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, og Sveinn Ingiberg Magn­ús­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara, til svara á fund­inum.

Rann­sóknin hefur staðið yfir í nokkrar vikur og nýlegar upp­lýs­ingar vöktu grun um að búast mætti við hryðju­verka­árás á stofn­anir sam­fé­lags­ins. Karl Steinar sagði að ýmsar stofn­anir sam­fé­lags­ins væru undir. Aðspurður hvort árás­irnar hefðu átt að bein­ast gegn Alþingi og lög­reglu svar­aði hann: „Það má ætla það.“

Grunaðir um vopnaframleiðslu með þrívíddarprenturum

Lög­reglan hand­tók í gær fjóra ein­stak­linga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í tengslum við yfir­stand­andi rann­sókn. Samkvæmt til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra er rann­sóknin í höndum emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra sem hefur það hlut­verk að rann­saka öll þau brot sem snúa að land­ráði, broti gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu stjórn­völdum þess. Rann­sóknin snýr meðal ann­ars að skipu­lagðri glæp­a­starf­semi og viða­miklum vopna­laga­brotum.

RÚV greindi frá því í hádeg­inu að fjór­menn­ing­arnir væru grun­aðir um fram­leiðslu vopna og taldir hættu­legir. Vopna­fram­leiðslan fór fram með þrí­vídd­ar­prent­urum.

Fram kom í máli Karls Steinars að lög­reglan hefur lagt hald á tugi skot­vopna og þús­undir skot­færa. Þá eru menn­irnir grun­aðir um fram­leiðslu og sölu skot­vopna, sum þeirra hálf­sjálf­virk. Rannsókn lög­reglu felst meðal ann­ars í því að kom­ast að því hvað hefur orðið um vopnin sem menn­irnir hafa fram­leitt. Auk þess er verið að kanna hvort vopn hafa verið flutt til lands­ins.

Þetta er í fyrsta sinn sem rann­sókn af þessu tagi fer fram hér á landi. Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur verið upp­lýst um rann­sókn­ina en hefur ekki komið saman til fundar enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár