Forgangsverkefni lögreglu að berjast gegn umfangsmiklu peningaþvætti

Talið er nærri öruggt að umfangs­mikið pen­inga­þvætti fari fram á Íslandi og er það eitt af for­gangs­verk­efnum lög­reglu að berj­ast gegn fjár­mögnun á brota­starf­semi og pen­inga­þvætti.

Í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra um skipu­lagða brota­starf­semi segir að pen­inga­þvætti sé alvar­legur vandi í íslensku sam­fé­lagi og sést það ekki síst á mik­illi fjölgun slíkra mála.

Skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem sér um að rann­saka meint pen­inga­þvætti, fékk alls 2.033 ábend­ingar í fyrra. Það er 23,5 pró­sent fleiri ábend­ingar en árið áður og 70 pró­sent fleiri en árið 2018. Alls var pen­inga­þvætti rann­sakað í 250 málum í fyrra, sam­an­borið við 16 mál árið 2017. Algegnt er að pen­inga­þvætti sé rann­sakað sam­hliða öðrum brotum, svo sem í tengslum við þjófnað, fjár­svik, fjár­drátt og fíkni­efna­brot.

Fjölgun mála rakin til bætts regluverks

[links]Pen­inga­þvætt­is­varnir íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa verið hertar á und­an­förnum árum eftir að hafa verið í ólagi árum saman og því má rekja fjölgun mála til bætts reglu­verks. Ástæður þess að ráð­ist var í að bæta reglu­verkið má meðal ann­ars rekja til árs­ins 2018 þegar alþjóð­­­legu sam­tökin Fin­ancial Act­ion Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem skil­aði Íslandi á svo­kall­aðan gráan lista sam­tak­anna. Umbættur voru gerðar á starf­­­sem­inni og starfs­­­fólki fjölgað til muna. Þá kom fram í áhættu­mati vegna pen­inga­þvættis og fjár­mögn­unar hryðju­verka sem gefið var út árið 2019 að vís­bend­ingar væru um að málum vegna pen­inga­þvættis færi fjölg­andi. Þessi ábend­ing reynd­ist rétt­mæt.

Óvíst um hversu háar upphæðir er að ræða

Heild­ar­upp­hæð hald­lagðra eða kyrr­settra fjár­muna í tengslum við rann­sóknir mála á pen­inga­þvætti liggur ekki fyrir. Fram kemur í skýrsl­unni að grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra meti það svo að bæta þurfi skrán­ingar lög­reglu er varðar kyrr­setn­ingu og hald­lagn­ingu fjár­muna í pen­inga­þvætt­is­málum. Vitað er að skað­semi pen­inga­þvættis og skattsvika er mikil og eru skattaund­an­skot talin nema 4% af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu hið minnsta eða um 100 millj­örðum á ári.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að tengsl skipu­lagðrar brota­starf­semi við rekstur lög­mætra fyr­ir­tækja birt­ist með sífellt ljós­ari hætti. Ávinn­ingur brota­starf­semi er fal­inn með því að þvætta hann í gegnum rekstur fyr­ir­tækja. Þá er það mat lög­reglu að skattaund­an­skot geti tengst svartri atvinnu­starf­semi, félags­legum und­ir­boðum og bóta­svikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár