Ábendingum vegna peningaþvættis hefur fjölgað um 70 prósent á tveimur árum

Pen­inga­þvætt­is­varnir íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa verið hertar á und­an­förnum árum eftir að hafa verið í ólagi árum saman. Alls bár­ust yfir­völdum rúm­lega tvö þús­und ábend­ingar um mögu­legt pen­inga­þvætti í fyrra. Um 96 pró­sent þeirra voru frá bönkum.

Skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem sér um að rann­sakað meint pen­inga­þvætti, fékk alls 2.033 ábend­ingar í fyrra. Það er 23,5 pró­sent fleiri ábend­ingar en árið áður og 70 pró­sent fleiri en árið 2018.

Nær allar til­kynn­ing­arnar sem bár­ust í fyrra komu frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum, eða 1.959 tals­ins. Í lok sept­em­ber í fyrra hafði skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu unnið 78 grein­ingar árið 2020 byggðar á 326 til­kynn­ingum. Upp­lýs­ingar úr 41 grein­ingu höfðu verið not­aðar til að hefja rann­sókn eða not­aðar sem við­bót inn í rann­sókn sem þegar var hafin hjá lög­bæru stjórn­valdi.

Það er svip­aður fjöldi mála og á árunum 2018 (44) og 2019 (49).

Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um málið á Alþingi.

Innleiðíng á nýju kerfi hefur breytt miklu

Skrif­stofa fjár­mála­grein­inga hér áður pen­inga­þvætt­is­krif­stofa og var færð frá rík­­is­lög­­reglu­­stjóra yfir til emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara sum­­­arið 2015. Þá starf­aði einn maður á skrif­­stof­unni. Hlutverk skrif­stof­unnar er að miðla grein­ingum til lög­bærra stjórn­valda á borð við hér­aðs­sak­sókn­ara, lög­reglu og skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Í kjöl­far þess að alþjóð­­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem var birt í apríl 2018, og skil­aði Íslandi á svo­kall­aðan gráan lista sam­tak­anna, var ráð­ist í miklar umbættur á starf­­semi hennar og starfs­­fólki fjölgað til muna. Fjár­­­munir hafa verið settir í að kaupa upp­­­lýs­inga­­­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­­­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­­­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt.

[adspot]Inn­leið­ing á því kerfi, og raf­rænum lausnum hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem tengj­ast inn í það, stóð yfir allt síð­asta ár. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er meðal ann­ars unnið með algóríþma í kerfum sumra fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem flagga allar færslur sem grunur leikur á að gætu falið í sér pen­inga­þvætti. Þessi aukna sjálf­virkni, í kjöl­far auk­innar áherslu banka og ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja á að bæta pen­inga­þvætt­is­varnir hjá sér, spilar inn í að til­kynn­ingum hefur fjölgað.

Brotalamir hjá öllum bönkum 2019

Kjarninn greindi frá því í byrjun síð­asta árs að á árunum 2016 og 2017 hefði Fjár­mála­eft­ir­litið birt nið­ur­stöðu athug­unar sinnar á pen­inga­þvætt­is­vörnum allra íslensku við­skipta­bank­anna. Nið­ur­staðan var að verk­lag þeirra við að kanna með áreið­an­legum hætti hvort að upp­lýs­ingar sem gefnar væru um við­skipta­vini bank­anna, og upp­runa fjár­muna þeirra, væri almennt við­un­andi. Á heild­ina litið hafi aðgerðir allra bank­anna upp­fyllt þær kröfur sem lögin gerðu til þeirra.

Árið 2019 voru birtar nið­ur­stöður nýrra athug­ana á stöðu pen­inga­þvætt­is­varna hjá öllum bönk­unum fjórum: Íslands­banka, Lands­banka, Arion banka og Kviku. í milli­tíð­inni hafði Ísland fengið á sig áður­nefndan áfell­is­dóm FATF fyrir að vera með veru­lega lakar varnir gegn pen­inga­þvætti, sem leiddi til setn­ingar nýrra heild­ar­laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Í þetta sinn sýndi nið­ur­staða athug­ana Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans náði að minnsta kosti í ein­hverjum til­vikum til sömu tíma­bila og þær sem fram­kvæmdar voru fyrir nokkrum árum, fram á ýmis­konar brotala­mir. Hjá öllum fjórum við­skipta­bönk­unum voru brotala­mir í pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra, þótt þær séu mis­mun­andi miklar. Innan þeirri allra skorti á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga eða fjár­muna hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti. Tveir bankar eru sem stendur í rík­i­s­eigu en tveir eru skráðir á hluta­bréfa­markað.

Aðrir aðilar farnir að tilkynna miklu meira

Algjör kúvend­ing hefur orðið á fjölda til­kynn­inga um mögu­legt pen­inga­þvætti frá því að mála­flokk­ur­inn flutt­ist yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara 2015. Á seinni hluta þess árs bár­ust alls 158 ábend­ingar um pen­inga­þvætti til yfir­valda, eða rúm­lega 26 að með­al­tali á mán­uði. Í fyrra voru þær rúm­lega 169 að með­al­tali á mán­uði.

[links]Búist var við því að COVID-19 far­ald­ur­inn, með sínum fjöl­mörgu tak­mörk­unum, myndi draga úr fjölda ábend­inga á árinu 2020 en svo reynd­ist ekki vera. Þvert á móti hafa þær aldrei verið jafn margar.

Langstærsti hluti ábend­ing­anna kemur frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum, eða 96,3 pró­sent þeirra sem bár­ust á síð­asta ári.

Ábend­ingar frá stjórn­völdum dróg­ust saman úr 61 í 39 á síð­asta ári en fjöldi þeirra hafði hins vegar þre­fald­ast milli áranna 2018 og 2019.

Þá vekur athygli að ábend­ingum frá öðrum til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum (bíla­sölum, end­ur­skoð­endum, fast­eigna­sölum, heild­sölum, lög­mönnum og þeim sem stunda rekstur fjár­safn­anna eða fjár­hættu­spila/happ­drættis) hefur fjölgað mikið síð­ast­liðin ár. Árið 2018 bár­ust ein­ungis sex ábend­ingar frá slíkum aðilum. Ári síðar voru þær 31 og í fyrra voru þær 32.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár