Hefur áhyggjur af því að réttaröryggi borgara sé ógnað

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, telur að alvar­legur dóm­greind­ar­brestur hafi orðið við við­brögð sér­sveitar lög­reglu í útkalli um helg­ina. Ekki er um ein­angrað til­vik að ræða og þing­mað­ur­inn furðar sig á við­brögðum dóms­mála­ráð­herra.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Eyþór Árnason

Aðgerðir sér­sveitar lög­reglu í Kópavogi síð­ustu helgi komu til tals öðru sinni á Alþingi í dag. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, furð­aði sig á við­brögðum Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Arndísar Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur, þing­manni Pírata.

[links]Útkallið sem um ræðir átti sér stað síð­degis á laug­ar­dag þegar lög­reglu barst til­kynn­ing um vopn­aðan mann í Kópavogi. Sér­sveit lög­regl­unnar hand­tók mann vegna máls­ins en fljótt kom í ljós að um mis­skiln­ing var að ræða, vopn­aði mað­ur­inn reynd­ist vera börn í kúreka­leik.

Mann­inum og fjöl­skyldu hans var brugðið og var veitt áfalla­hjálp í kjöl­far­ið. „Þar lenti venju­leg fjöl­skylda í aðstæðum sem eng­inn ætti að lenda í nokkru sinni,“ sagði Þórunn í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Arn­dís Anna spurði dóms­mála­ráð­herra um verk­lag lög­reglu í málum sem þessum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi á mánu­dag.

„Getum alltaf átt von á því að slíkt hend­i“

Þórunn vakti athygli á orðum dóms­mála­ráð­herra, eða öllu heldur hvernig hann svar­aði fyr­ir­spurn Arndísar Önnu. Ráð­herr­ann sagði að aldrei verði hjá því kom­ist að mis­tök, líkt og urðu á laug­ar­dag, geti átt sér stað í hita leiks­ins. „Auð­vitað er það okkar mark­mið með þjálfun og verk­lags­reglum að tak­marka slíkt eins og hægt er,“ sagði Jón.

[adspot]Dóms­mála­ráð­herra sagði verk­lags­reglur hjá lög­regl­unni þegar gripið er til vopna vera mjög ítar­legar. Hann sagð­ist þó ekki þekkja ein­stök dæmi. „En þetta dæmi sem hér var lýst er sorg­legt en við getum alltaf átt von á því að slíkt hend­i,“ sagði dóms­mála­ráð­herra.

„Við búum í sam­fé­lagi þar sem að vopna­burður er að verða víð­tæk­ari heldur en hann hefur verið áður,“ hélt ráð­herr­ann áfram og vís­aði í fjölda útkalla þar sem bregð­ast þarf við vopna­burði.

Ekki mannleg mistök heldur alvarlegur dómgreindarbrestur

Þórunn sagð­ist ekki vilja halda því fram að mis­tök séu ekki gerð en að hún telji það óhugs­andi að hægt sér að afgreiða við­brögðin við útkall­inu sem sér­sveit lög­reglu fór í á laug­ar­dag sem mann­leg mis­tök þegar sér­sveit­ar­menn mæti „með alvæpni, ógni venju­legu fólki heima hjá sér og hand­taki það. Mér er nær að halda að í þessu til­tekna máli hafi verið á ferð­inni mjög alvar­legur dóm­greind­ar­brestur í við­brögð­unum,“ sagði hún.

Þórunn gerir fast­lega ráð fyrir að málið verði vænt­an­lega tekið fyrir af nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

„En það er hins vegar alveg ljóst að þetta er ekki ein­angrað til­vik, því miður, við höfum fleiri dæmi nýverið af fram­göngu sér­sveit­ar­innar og ég hef áhyggjur af því að réttar­ör­yggi borg­ar­anna sé ógnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár