Lögfræðilegur ráðgjafi Bankasýslunnar segir að jafnræðis hafi verið gætt við bankasöluna

Banka­sýsla rík­is­ins hefur birt minn­is­blað sem LOGOS gerði fyrir hana. Nið­ur­staða þess er að stofn­unin hafi ekki brotið gegn jafn­ræð­is­reglu við sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars. Jafnt aðgengi hæfra fjár­festa hafi verið tryggt.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Í minn­is­blaði sem LOGOS vann fyrir Banka­sýslu rík­is­ins, og er dag­sett 11. maí, er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ákvörðun um tak­marka þátt­töku í útboði á 22,5 pró­senta hlut íslenskra rík­is­ins við svo­kall­aða hæfa fjár­festa án þess að gerð yrði krafa um lág­marks­til­boð hafi ekki falið í sér brot gegn jafn­ræð­is­reglu. Í útboð­inu var hlut­ur­inn seldur til alls 207 fjár­festa undir mark­aðsvirði.

Þá telur lög­manns­stofan að full­nægj­andi ráð­staf­anir hafi verið gerðar af hálfu Banka­sýsl­unnar til að tryggja jafnt aðgengi hæfra fjár­festa að útboð­inu í laga­legu til­liti og að ákvörðun hennar um að selja ekki hlut til Lands­bank­ans og Kviku banka, sem gerðu til­boð fyrir hönd veltu­bóka sinna, hafi stuðst við mál­efna­leg sjón­ar­mið og hafi einnig verið í sam­ræmi við jafn­ræð­is­reglu.

MInn­is­blað LOGOS var sent á fjöl­miðla fyrir hönd Banka­sýslu rík­is­ins klukkan 6:00 í morgun. Í frétta­til­kynn­ingu sem fylgir með segir að stjórn Banka­sýslu rík­is­ins hafi ákveðið á stjórn­ar­fundi 16. maí að senda frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna minn­is­blaðs­ins og birta minn­is­blaðið á heima­síðu stofn­un­ar­innar. Þegar minn­is­blaðið barst flestum fjöl­miðlum lands­ins hafði þegar birst frétt um það á for­síðu Morg­un­blaðs­ins. Því er ljóst að Morg­un­blaðið hafði minn­is­blaðið undir höndum í gær, áður en það barst öðrum fjöl­miðlum.

LOGOS var ráðið sem inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar í tengslum við sölu­með­ferð­ina á hlutnum í Íslands­banka 18. febr­úar síð­ast­lið­inn, en hlut­ur­inn í bank­anum var seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­blað hennar fjallar því um lög­mæti sölu­með­ferðar sem stofan vann sjálf að. Óttar Pálsson, einn með­eig­enda LOGOS, er sá sem sendir minn­is­blaðið á Banka­sýsl­una.

[adspot]LOGOS vann einnig minn­is­blað fyrir Banka­sýslu rík­is­ins snemma í apríl um hvort að birta ætti lista yfir kaup­endur að hlutnum. Þá var það nið­ur­staða LOGOS að slíkt væri óvar­legt. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lagði hins vegar sjálf­stætt mat á birt­ingu list­ans og komst að annarri nið­ur­stöðu. Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­banka var birtur sagði að ráðu­neytið hefði metið málið þannig að upp­lýs­ing­ar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa falli „ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­lit­ið.“

Gagnrýnendur segja söluna ekki standast lög

Mikil gagn­rýni hefur verið á söl­una á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, meðal ann­ars út frá þeim for­sendum að sölu­fyr­ir­komu­lagið hafi ekki stað­ist þá kröfu um jafn­ræði sem gerð er í lögum um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Ein þeirra sem hefur sett fram slíka gagn­rýni er Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­sviðs Seðla­­banka Íslands, sem sagði við Kjarnann í mars að þegar tak­mark­aður hópur fjár­festa sé val­inn til að kaupa magn bréfa sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við mark­aðsvirði Íslands­banka ef þeir hefur keypt á eft­ir­mark­aði þá brjóti það í bága við 3. grein og mögu­lega einnig 2. grein umræddra laga. „Á grund­velli þess þarf ein­hver að axla ábyrgð fyrir að hafa heim­ilað þetta og auk þess þarf að rifta þessum við­skiptum við ein­stak­linga og ehf., enda eru þau ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og miðl­urum hefði mátt vera það ljóst sem og því stjórn­valdi sem heim­il­aði þetta.“ Sigríður sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði af sér umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Lögin um sölu­með­ferð á hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum horfa meðal ann­ars til ábend­inga rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Þriðja grein lag­anna fjallar um meg­in­reglur við sölu­með­ferð. Í grein­inni seg­ir: „Þegar ákvörðun er tekin um und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu­með­ferðar eign­ar­hluta skal áhersla lögð á opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræð­is. Þá skal við sölu kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­að­i.“

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er á meðal ann­arra sem hafa sett fram sam­bæri­lega gagn­rýni og Sigríður. Hún hefur meðal ann­ars bent á að engin ástæða hafi verið fyrir því að selja litlum fjár­festum hlut rík­is­ins í banka með afslætti, en minnsti fjár­festir­inn keypti fyrir rúma milljón króna og alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­ónir króna.

Salan á hlut rík­is­ins í Íslands­banka er nú til skoð­unar hjá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands auk þess sem Rík­is­end­ur­skoðun er að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á ferl­inu.

Hafna því að setja hefði átt skilyrði um lágmarksfjárhæð

Í minn­is­blaði LOGOS segir að til­laga Banka­sýslu rík­is­ins um sölu­með­ferð á hlutum í Íslands­banka hafi falið í sér að ein­ungis hæfum fjár­festum stæði til boða að taka þátt í útboð­inu og að í henni hafi komið skýrt fram að aðkoma almenn­ings yrði að sama skapi tak­mörkuð. Sú tak­mörkun byggði, að mati LOGOS, á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og sam­ræmd­ist þeim mark­miðum sem lög gera ráð fyrir við sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. „Með vísan til þess sem að framan er rakið verður ekki séð að með þess­ari til­lögu hafi banka­sýslan farið út fyrir það svig­rúm sem lög gera ráð fyrir að ráð­herra hafi við val á leiðum við sölu­með­ferð. Rétt er að árétta að í frum­varpi því er varð að lögum um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum er lögð sér­stök áhersla á að við­horf og mark­mið stjórn­valda skipti meg­in­máli um hvaða leið er valin og sér­stak­lega tekið fram að ýmsar leiðir komi til greina. Er það mat okkar að sú til­högun sem valin var hafi ekki verið and­stæð rétt­mæt­is­reglu eða jafn­ræð­is­reglu.“

[adspot]Þá telur LOGOS það engu breyta um þessa nið­ur­stöðu að útboðs­skil­málar hafi ekki falið í sér við­bót­ar­skil­yrði um lág­marks­fjár­hæð til­boða. „Í því sam­bandi er ann­ars vegar til þess að líta að slíkt við­bót­ar­skil­yrði hefði í raun þrengt enn frekar þann fjár­festa­hóp sem átti þess raun­hæfan kost að leggja fram til­boð. Skil­yrðið hefði því gengið þvert gegn mark­miðum laga [...] um opið sölu­ferli og hag­kvæmni, sem og mark­miðum um dreift eign­ar­hald. Hins vegar skal á það bent að sá grein­ar­munur sem að lögum er gerður á hæfum fjár­festum og almennum fjár­festum grund­vall­ast m.a. á reynslu, þekk­ingu og fjár­hags­legri stöðu þeirra sem í hlut eiga líkt og áður hefur komið fram. Kröfur um fjár­festa­vernd eru rík­ari gagn­vart almenn­ingi en fag­fjár­festum. Þótt lág­marks­fjár­hæð til­boða hafi ekki verið áskilin í skil­málum útboðs­ins varð staða almenn­ings ekki þar með lögð að jöfnu við stöðu fag­fjár­festa í laga­legu til­liti. Aðgrein­ing þess­ara tveggja hópa hvíldi því eftir sem áður á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og í henni fólst ekki brot gegn jafn­ræð­is­reglu.“

„Má ætla að fagfjárfestar hafi almennt verið meðvitaðir“

Fjöl­margir hafa einnig gagn­rýnt að jafnt aðgengi hæfra fjár­festa að útboð­inu hafi ekki verið tryggt. Fimm inn­lendir sölu­ráð­gjafar voru ráðnir og við­mæl­endur Kjarnans sem falla í hóp skil­greindra hæfra fjár­festa hafa haldið því fram að þessir ráð­gjafar hafi haft sam­band við sinn við­skipta­manna­hóp fyrst og síð­ast til að selja honum hlut í bank­anum, en salan fór fram eftir lokun markað 22. mars og var lokið um kvöldið.

LOGOS telur hins vegar ótví­rætt að aug­lýs­ing Banka­sýslu rík­is­ins á útboð­inu eftir lokun mark­aða þennan dag og til­kynn­ing í kaup­höll um útboðið „hafi tryggt að jafn­ræðis var gætt meðal þeirra sem áttu þess kost á að gera til­boð“.

Val Banka­sýslu rík­is­ins á til­teknum sölu­ráð­gjöfum, sem hafði það jafn­framt að meg­in­mark­miði, að tryggja aðgengi eins stórs hóps hæfra fjár­festa og kostur var gat ekki leitt til ann­arrar nið­ur­stöðu „enda ótví­rætt að útboðið átti að vera öllum þeim sem féllu í hóp hæfra fjár­festa kunn­ugt með því að það var aug­lýst opin­ber­lega og um það til­kynnt í kaup­höll“.

LOGOS segir að þótt útboðið sjálft hafi tekið skamman tíma hafi upp­lýs­ingar um það legið fyrir um all­nokk­urt skeið í aðdrag­anda. „Má ætla að fag­fjár­festar hafi almennt verið með­vit­aðir um að útboðs­ins væri að vænta m.a. í ljósi heim­ildar til söl­unnar í fjár­lögum og þeirrar opin­beru kynn­ingar sem málið hlaut“. Því sé „ekki ósann­gjarnt að gera þær kröfur til við­kom­andi, m.a. í ljósi stöðu þeirra sem fag­fjár­festa og þar með þekk­ingar og reynslu á fjár­mála­mark­aði, að þeir hefðu gert nauð­syn­legar ráð­staf­anir og væru undir það búnir að setja fram til­boð að eigin frum­kvæði og með skömmum fyr­ir­vara eftir að til­kynn­ing um útboðið varð opin­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár