Sigurður Ingi: „Staðreynd að bankarnir hlustuðu eftir því sem viðskiptaráðherrann sagði“

Inn­við­a­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tók­ust á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun en ráð­herr­ann var m.a. spurður hvort „yfir­lýs­ing­ar­til­lögur“ vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins frá því í febr­úar hefðu verið inni­stæðu­lausar.

Sigurður Ingi og Logi Einarsson.
Sigurður Ingi og Logi Ein­ars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mikill hiti var í þing­mönnum í fyrstu óund­ir­búnu fyr­ir­spurn­inni á Alþingi í morgun þegar Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Sigurð Inga Jóhanns­son for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra hvort stuðn­ingur væri innan rík­is­stjórn­ar­innar við til­lögur Lilju Alfreðs­dóttur vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra sem hún tal­aði um í fjöl­miðlum í febr­úar síð­ast­liðnum.

Logi rifj­aði upp orð Lilju en hann sagði að hún hefði verið „býsna yfir­lýs­ingaglöð“ í fjöl­miðlum varð­andi hugs­an­legar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að mæta stöðu fólks sem á í erf­ið­leikum vegna erf­iðra efna­hags­að­stæðna.

Kjarninn greindi meðal ann­ars frá því að Lilja teldi að vaxta­munur væri orð­inn of mik­ill á Íslandi, að bankar lands­ins ættu að lækka vexti á lánum heim­ila og fyr­ir­tækja í ljósi þess sem hún kall­aði ofur­hagnað þeirra.

[links]„Ég tel óá­­byrgt að rík­­is­­sjóður borgi all­an reikn­ing­inn fyr­ir far­ald­­ur­inn og tel að bank­­arn­ir eigi að styðja við þau heim­ili og fyr­ir­tæki, sér í lagi í ferða­þjón­ustu, sem koma einna verst út úr far­aldr­in­­um. Þá vísa ég í þá sam­­fé­lags­­legu ábyrgð sem fjár­­­mála­­stofn­an­ir í land­inu þurfa að sýna þegar vaxta­stigið er farið að hækk­a.“ Gerðu bank­arnir það ekki sjálfir gæti þurft að „end­­ur­vekja banka­skatt, eins og við gerðum á sín­um tíma, til að dreifa þess­um byrð­u­m,“ sagði Lilja í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 10. febr­úar.

Hún sagði enn fremur á Sprengisandi þann 13. febr­úar að hún vildi mögu­lega láta leggja á hval­reka­skatt. „Ef það er ofsa­gróði eða ofur­hagn­aður hjá ein­hverjum aðil­um, þá eigum við að gera það. Ég er líka á þeirri skoðun að þetta ætti að eiga sér stað varð­andi sjáv­ar­út­veg­inn. Þar sem við sáum ofur­hagnað í ein­hverjum greinum þá á að skatt­leggja það,“ sagði Lilja meðal ann­ars.

Tillögur varaformanns „virtust engan hljómgrunn hafa hjá samstarfsflokkunum“

Logi sagði í fyr­ir­spurn sinni að hún hefði sagt að rík­is­stjórnin hefði greint stöð­una mjög vel og verið með­vituð um að ákveðnir hópar myndu lenda í vand­ræðum vegna hækk­andi vaxta og verð­bólgu og full­yrti að ráð­ist yrði í efna­hags­að­gerðir. „Hún lagði meðal ann­ars til að ofur­hagn­aður ein­stakra greina, til dæmis í sjáv­ar­út­vegi, yrði skatt­lagður, að bankar mundu nýta hagnað sinn til að nið­ur­greiða vexti á íbúða­lánum ellegar yrði lagður á hærri banka­skattur og að beita ætti vaxta­bóta­kerf­inu af meiri þunga.

Þetta var nýr og hressandi tónn sem við í Sam­fylk­ing­unni vorum nokkuð ánægð með enda teljum við nauð­syn­legt að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir til að mæta þeim heim­ilum sem fá núna skell með hækkun vaxta og verð­bólgu. Það er ekki ólík­legt að þetta muni ýkj­ast núna með ófrið­ar­tímum í Úkraínu. Við höfum raunar lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu ásamt öðrum flokkum stjórn­ar­and­stöð­unnar um þetta,“ sagði Logi.

Hann benti á að Lilja hefði full­yrt á Sprengisandi að þessar hug­myndir nytu stuðn­ings for­manns hennar og þing­flokks og að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi ráð­ast í að afla þessum til­lögum stuðn­ings innan hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„En eftir smá eft­ir­grennslan kom í ljós að þessar til­lögur vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins virt­ust engan hljóm­grunn hafa hjá sam­starfs­flokk­unum, hvorki Sjálf­stæð­is­flokknum né Vinstri grænum,“ sagði hann og spurði hvort þetta hefðu verið inn­stæðu­lausar yfir­lýs­ingar hjá vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins eða styddi hann og þing­flokk­ur­inn þær eins og hún full­yrti.

„Hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lagt þessar hug­myndir fram við rík­is­stjórn­ar­borðið eða hefur þeim þegar verið hafnað þar?“ spurði hann.

Bankarnir tekið tillit til þess sem Lilja sagði

Sigurður Ingi svar­aði og þakk­aði Loga fyrir að taka upp stefnu og sjón­ar­mið þeirra Fram­sókn­ar­manna.

„Við sem erum í stjórn­málum, hvort sem við erum þing­menn eða ráð­herrar, eigum að sjálf­sögðu að tjá okkur um það hvað okkur finnst og hvert við eigum að stefna. Það sem hæst­virtur ráð­herra sagði var að á þeim tímum þar sem bank­arnir högn­uð­ust veru­lega – ég held að hún hafi talað um að það væri mik­ill gróði, sem menn geta auð­vitað bara velt fyrir sér í stóra sam­hengi hlut­anna. En það er engin spurn­ing að það voru miklir fjár­munir. Þá hvatti hún bank­ana. Hún hvatti bank­ana til að skila hluta af þessum fjár­munum til við­skipta­vin­anna. Og hvað gerð­ist?“ spurði hann. Þingmenn gripu fram í fyrir ráð­herr­anum og sögðu að þeir hefðu einmitt hækkað vexti.

Sigurður Ingi hélt áfram og sagði að ef bank­arnir myndu ekki skila hluta af þessum fjár­munum til við­skipta­vina væri þingið með tæki.

„Það væri hægt að leggja á banka­skatt að nýju og hækka skatta, arð­greiðslur eða eitt­hvað slíkt. En bank­arnir hækk­uðu ekki. Þeir hækk­uðu ekki vext­ina í sam­ræmi við stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans. Þeir tóku með öðrum orðum til­lit til þess sem við­skipta­ráð­herra sagði og fóru algjör­lega eftir því sem við­skipta­ráð­herra sagði. Þannig að það hefur ekki komið til þess að við höfum farið að beita þeim aðgerðum að refsa bönk­unum. Við þurfum hins vegar að halda áfram að fylgj­ast með, hátt­virtur þing­maður, og ég veit að við deilum þeirri skoðun. Við þurfum að fylgj­ast með þeim hópum sem verða aug­ljós­lega fyrir meiri áhrifum af verð­bólg­unni, af stig­hækk­andi verð­lagi og þeim aðstæðum sem geta komið upp, hvort sem það er á hús­næð­is­mark­aði eða ann­ars staðar.“ Hann sagð­ist vera sam­mála Loga varð­andi það.

Auðvitað hækkuðu bankarnir vexti

Logi kom aftur í pontu og sagði að ráð­herr­ann færi í kringum málið eins og köttur í kringum heitan graut.

„Auðvitað hækk­uðu bank­arnir vexti, Lands­bank­inn um 0,5 pró­sent af þessum 0,75 pró­sentu­stigum sem hækkað var um. En það sem var áhuga­vert hjá ráð­herr­anum var að hann tal­aði um að þingið hefði tæki. Hann tal­aði ekki um að rík­is­stjórnin hefði tæki, vegna þess að vissu­lega kann að vera meiri­hluti hér á þingi þó að það sé ekki meiri­hluti í rík­is­stjórn­inni fyrir þessum til­lögum.“

Hann spurði í fram­hald­inu hvort þau sjón­ar­mið hans nytu stuðn­ings um að beita ýtr­ustu úrræðum til að koma á móts við við­kvæm­ustu hópana.

„Nýtur það stuðn­ings innan hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna? Ef ekki, mun hann þá koma með málið sjálfur til þings­ins þannig að þingið geti tekið ákvörðun um hvað eigi að gera, og í hvaða aðstæðum er rík­is­stjórnin þá? Hæst­virtur ráð­herra verður bara á þess­ari mín­útu sem eftir er að svara spurn­ing­unni: Styðja sam­starfs­flokk­arnir til­lögu ráð­herra og mun hann koma með þetta til þings­ins ef hún nýtur ekki stuðn­ings innan rík­is­stjórn­ar­innar?“ spurði þing­mað­ur­inn.

Forseti bað þingmenn að gefa ráðherranum hljóð

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að það gengi ekki upp hjá Sam­fylk­ing­unni og þing­mönnum að koma „hér æpandi út alla daga og tala um að vaxta­stigið sé eitt­hvað óvenju­hátt í þessu landi þegar stað­reyndin er sú ...“

Ráð­herr­ann varð að gera hlé á máli sínu þar sem þing­menn byrj­uðu að hrópa í þingsalnum. Ekki mátti vel greina orða­skil og bað ráð­herr­ann for­seta Alþingis, Birgi Ármanns­son, um aðstoð svo hann gæti lokið máli sínu. Birgir bað þing­menn að gefa ráð­herr­anum hljóð til að svara.

„Og þetta er þannig að vextir eru ekki mjög háir á Íslandi þó þeir hafi hækkað. Og það sem hátt­virtur þing­maður sagði hérna; Já, Seðla­bank­inn hækk­aði stýri­vexti um 0,75 en bank­arnir hækk­uðu bara um 0,4 eða 0,5. Með öðrum orðum var vaxta­mun­ur­inn minni en hann var áður,“ sagði Sigurður Ingi.

Framíköll þing­manna héldu áfram en ráð­herr­ann hélt áfram máli sínu. „Og þar af leið­andi hefur það orðið stað­reynd að bank­arnir hlust­uðu eftir því sem við­skipta­ráð­herr­ann sagði og fóru eftir því.“

Segir sannleikann særa

Vart mátti heyra hvað ráð­herr­ann sagði og sló for­seti þings­ins af alefli í bjöll­una og sagð­ist verða að biðja þing­menn að gefa ræðu­manni hljóð til þess að ljúka máli sínu. „Það gengur ekki að hér séu fimm þing­menn ...“ Framíköllin héldu áfram og sló hann aftur í bjöll­una. „Forseti verður að biðja þing­menn að sýna ræðu­mönnum þá virð­ingu og þing­sköp­unum að hafa hljóð meðan ræðu­maður lýkur máli sínu en ekki fjórir fimm að tala úr sæti sínu í einu,“ sagði Birgir.

Sigurður Ingi sagði í fram­hald­inu að hann lang­aði að segja við Loga og við þá sem „galað“ hefðu hæst að það væri þannig að þegar menn heyra sann­leik­ann þá yrðu menn sárir. „Stað­reyndin er þessi: Bank­arnir hlust­uðu! Stað­reyndin er þessi: Vaxta­stigið í land­inu er lægra heldur en oft áður. Stað­reyndin er líka þessi: Verð­bólgan vex og við þurfum að vera á vakt­inni. Og við verðum til­búin til þess í rík­is­stjórn­inni og ég veit að margir hér í þing­inu verða til­búnir að vera með okkur í því,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár