KSÍ vissi af fjórum frásögnum er vörðuðu kyn­bundið eða kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Nið­ur­stöður úttektar á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands liggja nú fyrir.

Rán Ingvarsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Hafrún Kristjánsdóttir sátu í nefndinni.
Rán Ingv­ars­dóttir, Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Hafrún Krist­jáns­dóttir sátu í nefnd­inni. Mynd: Skjáskot/RÚV

Vit­neskja var innan KSÍ um alls fjórar frá­sagnir um að leik­menn eða aðrir sem starfa fyrir sam­bandið hefðu beitt kyn­bundnu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi árin 2010 til 2021. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nefndar sem fengin var til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands. Í nefnd­inni sitja Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari, Rán Ingv­ars­dóttir og Hafrún Krist­jáns­dóttir en þau kynntu nið­ur­stöð­urnar í beinni útsend­ingu á RÚV klukkan 14 í dag.

Nefndin telur ljóst að KSÍ hafi brugð­ist strax við þremur þess­ara frá­sagna. Ann­að­hvort með því að leik­mað­ur­inn sem átti í hlut hafi verið sendur heim úr lands­liðs­verk­efnum eða þannig að við­kom­andi hafi ekki starfað aftur fyrir hönd KSÍ.

Kjartan Bjarni hóf mál sitt á að segja að nefndin hefði fengið óheftan aðgang að skjala­söfnum KSÍ við vinnu sína og kannað hund­ruð skjala, tölvu­pósta og gagna sem ekki hefðu birst opin­ber­lega.

„Eðli máls­ins sam­kvæmt er ekki hægt að rann­saka hvort þögg­un­ar­menn­ing hafi ríkt um kyn­ferð­is­legt eða ann­ars­konar ofbeldi innan KSÍ eða hvort KSÍ hefði reynt að kveða slíkt niður án þess að ræða við sem flesta aðila sem hefðu mögu­lega vit­nesku um frá­sagnir af slíkum brotum.“

Talaði nefndin við yfir fimm­tíu ein­stak­linga sem tengj­ast KSÍ frá árinu 2010, suma oftar en einu sinni. Nefndin ræddi einnig við tugi ann­arra ein­stak­linga sem tengj­ast þess­ari atburða­rás sem nefndin hefur haft til athug­unar. Allir hafi verið vilj­ugir til að tala við nefnd­ina.

[adspot]

Í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar eru gerðar athuga­semdir við að upp­lýs­ingar sem þáver­andi for­maður KSÍ, Guðni Bergsson, veitti fjöl­miðlum og almenn­ingi í ágúst síð­ast­liðnum um vit­neskju KSÍ af frá­sögn um ofbeld­is­mál hafi verið vill­andi enda hafi for­mað­ur­inn á sama tíma haft vit­neskju um frá­sögn starfs­manns KSÍ um alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart tengda­dóttur starfs­manns. Yfir­lýs­ing­arnar hafi heldur ekki sam­ræmst vit­neskju um eldri til­kynn­ingu frá árinu 2018 um kæru á hendur öðrum leik­manni vegna ofbeldis.

Formaðurinn sagði af sér

Málið hefur heldur betur valdið titr­ingi innan KSÍ en það hófst þegar Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir skrif­aði grein í Vísi þar sem hún sak­aði KSÍ um þöggun varð­andi kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lands­liðs­manna. Vís­aði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010 sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum í byrjun maí en ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta. „Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­inn­ar. Þögg­unin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henn­i,“ sagði meðal ann­ars í grein Hönnu Bjarg­ar.

Guðni Bergs­son, þáver­andi for­maður KSÍ, sagði í sam­tali við fjöl­miðla dag­ana 25. og 26. ágúst að sam­bandið hefði ekki fengið inn á sitt borð til­kynn­ingar um að leik­menn lands­liða Íslands hefðu und­an­farin ár beitt ein­hvers konar ofbeldi. „Við höfum ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á okkar borð síðan ég tók við for­mennsku en hins vegar erum við með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðl­u­m,“ sagði hann við Frétta­blað­ið.

[links]Í Kast­ljós­við­tali á RÚV end­ur­tók Guðni þá stað­hæf­ingu að engar kvart­anir eða til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hefðu komið inn á borð KSÍ. „Okkur er mjög umhugað um öryggi okkar iðk­enda og almenn­ings og hegðun okkar iðk­enda gagn­vart umhverf­inu. Við höfum vissu­lega ekk­ert farið var­hluta af þeirri umræðu sem hefur verið upp á síðkastið og und­an­farin ár, við tökum mið af því, en við verðum að fá ein­hvers konar til­kynn­ingu eða eitt­hvað slíkt, frá vitnum eða þolend­um, og ef það ger­ist gætum við þess að þol­and­inn fái ákveðna aðstoð og hjálp og við tökum á því af ábyrgð og festu, og við stöndum svo sann­ar­lega gegn öllu ofbeldi, ekki síst kyn­bundnu og kyn­ferð­is­of­beldi, við gerum það.“

Guðni sagði enn fremur að gagn­rýni á KSÍ vegna þessa væri ómak­leg. Eftir krísufund stjórnar KSÍ vegna máls­ins í lok ágúst sagði Guðni af sér for­mennsku eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu síðan árið 2017.

Framganga stjórnar og framkvæmdastjóra beri ekki einkenni þöggunar

Úttekt­ar­nefndin telur ekki til­efni til að full­yrða að fram­ganga stjórnar, fram­kvæmda­stjóra eða ann­arra starfs­manna KSÍ um málið beri ein­kenni þögg­unar og/eða nauðg­un­ar­menn­ingar umfram „það sem almennt ger­ist í íslensku sam­fé­lagi“.

Fyrir liggur að stjórn­ar­fólk, fram­kvæmda­stjóri KSÍ og starfs­fólks sem kom að mál­inu hafi gert „veru­legar athuga­semdir við þær yfir­lýs­ingar sem for­maður þáver­andi lét frá sér,“ að því er fram kemur hjá nefnd­inni.

Að öðru leyti telur nefndin ekki for­sendur til þess að segja að fyrir hendi séu atvik í for­mann­s­tíð Guðna Bergs­sonar sem beri sér­stök ein­kenni þögg­unar og nauðg­un­ar­menn­ingar. Úttekt­ar­nefndin hafi til dæmis engin gögn fundið eða aðrar vís­bend­ingar fengið sem gefa til kynna að KSÍ hafi boðið kær­anda í ákveðnu máli sem kom til kasta KSÍ í mars 2018 þagna­skyldu­samn­ing eða komið með öðrum hætti að slíkum til­boðum.

Úttekt­ar­nefndin gerir þó athuga­semd við að Geir Þor­steins­son þáver­andi for­maður KSÍ hafi árið 2016 leitað til almanna­teng­ils í kjöl­far þess að hann frétti af því að lög­regla hafi verið kölluð að dval­ar­stað lands­liðs­manns með grun­semd um heim­il­is­of­beldi. „Rétt er þó að taka fram að nefndin telur sig þó ekki hafa stað­reynt að Geir hafi haft vit­neskju um ofbeldi,“ sagði Kjartan Bjarni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár