Telur líklegra að Sjálfstæðisflokkur fari að vinna með Viðreisn en Vinstri grænum

Brynjar Níelsson vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur að það muni reyn­ast of erfitt að ná saman við Vinstri græn um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf. Hann telur stjórn með Framsókn og Viðreisn væn­legri kost.

Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins sér ekki hvernig flokkur hans eigi að ná saman við Vinstri græn um áframhaldandi stjórnarsamstarf.
Brynjar Níelsson fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sér ekki hvernig flokkur hans eigi að ná saman við Vinstri græn um áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starf. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist telja að sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks við Fram­sókn­ar­flokk og Viðreisn sé helsti mögu­leiki Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þess því að sitja í rík­is­stjórn á nýhöfnu kjör­tíma­bili.

Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi, sem er fyrsti vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík suður sam­kvæmt þeim kosn­inga­úr­slitum sem liggja fyrir, telur að of erfitt verði að sætta mis­mun­andi sjón­ar­mið sem séu til staðar innan Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks til að sam­starf þess­ara flokka geti haldið áfram.

Brynjar sagði, í nýjum hlað­varps­þætti Þjóðmála sem birt­ist í gær, að fyrir sér væru tveir mögu­leikar í stöð­unni og bætti svo við að það væri „annað hvort að Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn fari með Viðreisn, eða að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fari bara með vinstri­flokk­unum. Þannig horfi ég á þetta í fjar­lægð núna.“

Hann sagð­ist telja að það yrði „of erfitt að ná saman við VG“ nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi gefa veru­lega eftir. „Það myndi skapa mikla óánægju í Sjálf­stæð­is­flokknum og það er ekki á bæt­andi,“ sagði Brynjar.

Fyrr í þætt­inum hafði þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi lýst því yfir að það yrði erfitt að ná saman við Vinstri græn varð­andi lofts­lags­mál. „Þetta eru svo ólík sjón­ar­mið. Mér fannst Vinstri grænir nán­ast eyði­leggja þennan mögu­leika með öllum þessum frið­lýs­ingum hérna í lokin,“ sagði Brynjar og vís­aði þar til frið­lýs­inga Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skömmu fyrir kosn­ingar, sem voru gagn­rýndar opin­ber­lega af nokkrum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks.

Hann sagð­ist telja að það hefði í raun og veru verið „vald­níðsla“ af hálfu ráð­herr­ans að „ganga svona langt í þessu“ og að það verði „mjög erfitt“ fyrir Sjálf­stæ­is­flokk­ur­inn að ná ein­hverju fram í stjórn­ar­sátt­mála við Vinstri græn um „hálend­is­þjóð­garð eða nátt­úru­lofts­lags­skatta og hvað þetta heitir allt saman.“

Svandís hafi verið að „rústa heilbrigðiskerfið“

Einnig nefndi Brynjar heil­brigð­is­málin sem ásteyt­ing­ar­stein á milli Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna og tóku þeir Gísli Freyr Val­dórs­son rit­stjóri Þjóðmála og Stefán Einar Stef­áns­son við­skipta­rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sem var gestur þátt­ar­ins ásamt Brynjari, undir það.

Raunar furð­aði Stefán Einar sig á því í þætt­inum að þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði ekki tekið sig saman, „barið í borðið“ og kraf­ist þess að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra léti af emb­ætti á kjör­tíma­bil­inu, en hann sagði fram­göngu hennar í „ara­grúa mála“ hafa verið óásætt­an­lega og að hún hefði verið að „rústa heil­brigð­is­kerfið“ og hefði uppi áætl­anir um að halda því áfram.

Fólk nái ekki að tengja við Sjálfstæðisflokkinn

Í þætt­inum var staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins til umræðu og sagði Brynjar að hann teldi að fólk næði ekki nógu góðri teng­ingu við flokk­inn.

„Þess vegna stækkum við ekk­ert og þess vegna erum við smátt og smátt að minnka. Sumir segja að þetta sé bara ein­hver eðli­leg þróun vegna fjölda flokka og svona, en til að ná ein­hverjum árangri þarftu að ná teng­ingu við Jón og Gunnu. Þannig að þau finni það að þú sért að hugsa um þau. Ég held að fólk líti frekar á okkur sem ein­hvern elítu­hóp eða ein­hvern traustan valda­flokk. Við þurfum aðeins að hrista upp í þessu held ég,“ sagði Brynjar.

Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi sagði einnig að Sjálf­stæð­is­flokknum væri alltaf kennt um sem aflaga færi, þrátt fyrir að það væri á mál­efna­sviði ráð­herra sem ekki væru í flokknum. „Þetta er svo skrítið, okkur er alltaf kennt um allt. Það er kannski af því að við höfum verið lengst við völd, ég skal ekki segja,“ sagði Brynjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár