Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins og Viðreisn fá menn

Fyrstu tölur úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi komu í hús rúm­lega tíu mín­útur yfir tíu í kvöld. Þær benda til þess að Flokkur fólks­ins sé að fara að hljóta afar góða kosn­ingu í kjör­dæm­inu og kjör­dæma­kjör­inn þing­mann, sem þá væri Eyjólfur Ármanns­son, odd­viti flokks­ins. Samkvæmt þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar voru líkur hans á þing­sæti 47 pró­sent.

Einnig mælist odd­viti Við­reisnar, Guð­mundur Gunn­ars­son, inni á þingi sam­kvæmt þessum fyrstu tölum, sem jöfn­un­ar­þing­maður og átt­undi þing­maður kjör­dæm­is­ins. Samkvæmt þing­sæta­spánni voru líkur hans á þing­sæti 40 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur, en Framsókn bætir þó tals­vert við sig og ekki munar miklu á flokk­unum tveimur, sem báðir eru með tvo þing­menn

Mið­flokk­ur­inn er ein­ungis með 5,7 pró­sent í þessum fyrstu tölum og myndi sú nið­ur­staða þýða að Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson, sem setið hafa á þingi fyrir flokk­inn í kjör­dæm­inu, myndu falla af þingi. Bergþór Ólason, odd­viti flokks­ins, var með 57 pró­sent líkur á því að kom­ast inn á þing sam­kvæmt þing­sæta­spánni.


Talin atkvæði: 5.932

Sjálf­stæð­is­flokkur: 23,6 pró­sent - 2 þing­menn (-)

Fram­sókn­ar­flokkur: 22,8 pró­sent - 2 þing­menn (-)

Vinstri græn: 10,9 pró­sent - 1 þing­maður (-)

Flokkur fólks­ins: 9,8 pró­sent - 1 þing­maður (+1)

Sam­fylk­ingin: 8,5 pró­sent - 1 þing­maður (-)

Mið­flokk­ur­inn: 5,7 pró­sent - 0 þing­menn (-2)

Viðreisn: 6,5 pró­sent - 1 þing­maður (+1) jöfn­un­ar­maður

Píratar: 6,1 pró­sent - 0 þing­menn

Sós­í­alista­flokk­ur­inn: 3,8 pró­sent - 0 þing­menn

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn: 0,3 pró­sent - 0 þing­menn

[adspot]

Þingmenn kjörnir 2017:

Sjálf­stæð­is­flokkur 2

Fram­sókn­ar­flokkur 2

Mið­flokkur 2

Sam­fylk­ingin 1

Vinstri græn 1

Hér að neðan má sjá loka­þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fyrir Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár