Skora á dómsmálaráðherra að skipa nýjan vararíkissaksóknara

Stígamót hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna birt­ingar per­sónu­grein­an­legra gagna úr skýrslu­töku konu sem kærði ofbeldi – og „læka“ vara­rík­is­sak­sókn­ara. Þau segja rétt­ar­kerfið notað til að nið­ur­lægja brota­þola ofbeldis.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari. Mynd: Bára Huld Beck

Stígamót skora á Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra að skipa nýjan vara­rík­is­sak­sókn­ara í ljósi „læka“ hans á sam­fé­lags­miðlum.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Stíga­mótum sem sam­tökin sendu á fjöl­miðla í dag.

„Í fyrra­dag birti hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­seti dóm­stóla KSÍ lög­reglu­skýrslur, með per­sónu­grein­an­legum gögnum úr skýrslu­töku konu sem var að kæra ofbeldi. Enn og aftur bregst rétt­ar­vörslu­kerfið brota­þolum ofbeldis þar sem gögn úr kerf­inu kom­ast í hendur manna sem nýta þau til að rægja og draga úr trú­verð­ug­leika þol­anda,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þarna vísa Stígamót í færslu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns á Facebook sem hann birti í fyrra­dag. Þar segir hann meðal ann­ars að Stígamót hafi valið lið „til að þókn­ast konu sem sakað hafði lands­liðs­mann um ofbeldi aðfara­nótt laug­ar­dags um miðja sept­em­ber 2017, en gert við hann sátt í maí 2018 og fengið bætur sér til handa og fé í sjóði Stíga­móta“.

Birtir hann með færsl­unni myndir af fyrr­nefndri lög­reglu­skýrslu.

Konur sem kæra ofbeldi eiga yfir höfði sér ógnina um að verða kærðar fyrir rangar sakargiftir

Í yfir­lýs­ingu Stíga­móta er bent á að Sigurður sé fag­að­ili sem starfar innan kerf­is­ins sem lög­maður og birti hann lög­reglu­skýrslur í máli sem hann hefur enga beina aðkomu að. Þá kemur fram hjá Stíga­mótum að í ofaná­lag hafi vara­rík­is­sak­sókn­ari, Helgi Magnús Gunn­ars­son, „lækað“ færsl­una „en hann gegnir emb­ætti sem hefur úrslita­vald um það hvort ofbeld­is­mál fái áheyrn dóm­ara eður ei. Stundum er talað um að fólk innan kerf­is­ins sé vel­viljað og allir séu að gera sitt besta – það sé bara flókið að ná fram sak­fell­ingum og sanna brot. Þessi fram­ganga vara­rík­is­sak­sókn­ara sýnir á hinn bóg­inn alvar­legan við­horfs­vanda hátt­setts emb­ætt­is­manns í kerf­inu og gefur ekki von um að menn­ing sem leyfir sér að gera lítið úr brota­þolum ofbeldis verði upp­rætt á næst­unni – og það í kerf­inu sem á einmitt að vernda þessa sömu brota­þola,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

[links]Þá kemur fram hjá Stíga­mótum að brotala­mir rétt­ar­kerf­is­ins séu mörgum kunnar en „alltaf skulu finn­ast nýjar leiðir til að nýta það gegn þolendum ofbeldis. Stígamót hafa vakið athygli á nið­ur­fell­ing­ar­hlut­falli nauðg­un­ar­mála en yfir 70 pró­sent þeirra eru felld niður og kom­ast því aldrei í dóm­sal. Mál átta kvenna eru nú til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu einmitt af því að málin þeirra voru felld niður í íslensku rétt­ar­kerfi án þess að fá við­un­andi með­ferð eða að tekið væri nægt til­lit til sönn­un­ar­gagna. Þau fáu mál sem kom­ast frá sak­sókn­ara­emb­ættum og fyrir dóm eru oft gríð­ar­lengi í með­förum kerf­is­ins sem skilar sér í mild­uðum dómi í Lands­rétti fari svo að yfir­höfuð sé sak­fellt í mál­inu. Konur sem kæra ofbeldi eiga alltaf yfir höfði sér ógn­ina um að verða kærðar fyrir rangar sak­ar­giftir sé málið þeirra fellt niður og ef þær voga sér að segja upp­hátt hver beitti þær ofbeldi dettur kæra fyrir meið­yrði í hús.“

Skora á stjórnmálaflokka að leggja fram tillögur um hvernig megi tryggja að réttarkerfið verndi fólk gegn ofbeldi

Stíga­móta segja að það sé ekk­ert skrýtið við það að konur kæri ekki ofbeldið sem þær voru beittar eða að þær segi ekki frá því. Rétt­ar­vörslu­kerfið passi vel upp á það. „Alltaf skulu finn­ast nýir og nýir angar þess sem nýttir eru á ein­hvern hátt gegn brota­þola – til þess að hræða, þagga og lít­ils­virða. Þessu verður að linna.“

Stígamót skora enn fremur á alla stjórn­mála­flokka í fram­boði að leggja fram til­lögur um hvernig megi tryggja að rétt­ar­kerfið verndi fólk gegn ofbeldi en sé ekki verk­færi í höndum þeirra sem beita því og hjálp­ar­kokka þeirra. Og á alla fram­bjóð­endur til stjórnar KSÍ að gera upp við sig hvort þeim finn­ist eðli­legt að „maður gegni trún­að­ar­störfum fyrir hreyf­ing­una sem gengur fram með þessum hætti gegn brota­þola ofbeldis“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár