Hafa kært stígagerð og utanvegaakstur til lögreglu

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi hafa kært til lög­reglu meint brot á lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð og nátt­úru­vernd­ar­lögum og krefj­ast opin­berrar rann­sóknar á hátt­semi þjóð­garðsvarðar og verk­taka.

Ruddur slóði á Langavatnshöfða.
Ruddur slóði á Langa­vatns­höfða. Mynd: SUNN

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi (SUNN) hafa óskað eftir opin­berri rann­sókn lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra vegna meintra brota á lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð og nátt­úru­vernd­ar­lögum. Málið snertir gerð þriggja stíga í Jök­ulsár­gljúfrum sem sam­tökin telja óheim­ila og ekki sam­ræm­ast stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun þjóð­garðs­ins, deiliskipu­lagi og lögum.

[adspot]

Kæru sam­tak­anna, sem send var lög­reglu­emb­ætt­inu í gær, er beint gegn tveimur ein­stak­lingum; Guðmundi Ögmunds­syni, þjóð­garðs­verði á norð­ur­svæði Vatna­jök­uls­þjóð­garðs (Jök­ulsár­gljúfrum) og Guðmundi Vil­hjálms­syni, per­sónu­lega og sem fram­kvæmda­stjóra og aðal­eig­anda Garð­víkur ehf.

Í kærunni, sem Kjarninn er með undir höndum, eru atvik máls rakin ítar­lega.

[links]Sumarið 2020 fóru fram fram­kvæmdir við þrjá nýja stíga; á Langa­vatns­höfða, frá Ási og í Ásbyrgi, allt á rekstr­ar­svæði norð­ur­svæðis Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. Verktaki var Garðvík ehf. á Húsavík.

Skipaður full­trúi umhverf­is­vernd­ar­sam­taka í svæð­is­ráði þjóð­garðs­ins vakti athygli ráðs­ins á fram­kvæmd­unum 2. maí síð­ast­lið­inn og óskaði eftir að farið yrði á vett­vang, en einnig að stíga­gerðin yrði tekin fyrir á næsta boð­aða svæð­is­ráðs­fundi. Formaður svæð­is­ráðs, sem einnig situr í stjórn þjóð­garðs­ins, varð við beiðni um að ganga á vett­vang með full­trú­anum, vara­manni hennar og þjóð­garðs­verði. Leitaði full­trúi umhverf­is­vernd­ar­sam­taka ítrekað eftir því að málið yrði tekið á dag­skrá svæð­is­ráðs­ins og var það loks gert 29. júní. Var þar bókað eft­ir­far­andi varð­andi einn af þeim stígum sem um ræðir:

Svæð­is­ráð Vatna­jök­uls­þjóð­garðs norður telur að lag­færa verði hjóla­stíg og reið­leið í Jök­ulsár­gljúfrum sem unn­inn var upp sum­arið 2020 og frá­gang efnis við hann. Stíg­ur­inn er um fjórir kíló­metrar að lengd og liggur í suð­ur­átt frá Ási. Grunnur hans er gömul slóð sem notuð hefur verið sem reið­leið síð­ustu ára­tugi. Miklu efni hefur verið ýtt upp úr slóð­inni og liggur það í stórum hrúgum með­fram stígnum. Bæði er þörf á almennum leið­bein­ingum um hvernig æski­legt er að standa að stíga­gerð í vist­kerfi eins og um ræðir og sér­tæk­ari leið­bein­ingum um hvaða frá­gangur er við­eig­andi á því efni sem til hefur fallið.

Í kæru SUNN er fjallað um hvern hinna þriggja stíga fyrir sig og hvernig fram­kvæmdir við þá og frá­gangur birt­ist sam­tök­unum.

Stígur 1, Langavatnshöfði

Í kærunni segir að frá nýju bíla­stæði á Langa­vatns­höfða, sem Vega­gerðin gerði sum­arið 2020, eigi sam­kvæmt gild­andi deiliskipu­lagi fyrir Detti­foss­veg að gera stíg að útsýn­is­stað yfir Hljóða­kletta og Rauðhóla. „Hvorki er búið að merkja fyrir né gera þennan stíg sem deiliskipu­lag gerir ráð fyrir,“ segir í kæru SUNN en að hins­vegar sé búið að ryðja stíg frá bíla­stæð­inu að eldri göngu­leið við Rauðhóla og á allt öðrum stað en deiliskipu­lag mæli fyrir um. „Búið er að ryðja öllum gróðri, svarð­lagi og góðu lagi af jarð­vegi úr stígnum og er gengið á mold eftir nið­ur­gröfnum stígnum.“ Efnið sem búið er að ryðja úr stígnum liggi annað hvort í litlum hrúgum með­fram stígnum, á milli þúfna eða því verið „mokað í burtu og ekið langar leiðir utan stígs­ins og sturtað í stórar hrúgur inn í nær­liggj­andi víð­irunna og birkikjarr“. Út frá stígnum megi sjá greini­leg ummerki um akstur vél­knú­ins öku­tækis „þar sem gróður eins og lyng, fjall­drapi og víðir hefur drep­ist“.

Stíg­ur­inn er hvorki á deiliskipu­lagi fyrir Detti­foss­veg né í stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun þjóð­garðs­ins og því ólög­mætur, segja sam­tökin. Frá­gangur stígs­ins sé auk þess ekki í sam­ræmi við nátt­úru­vernd­ar­lög og lög um þjóð­garð­inn.

Stígur 2, frá Ási

Frá Ási, sem er skammt vestan Ásbyrgis, lá gam­all smala­troðn­ingur sem hefur að sögn sam­tak­anna í ára­tugi verið hluti af merktri reið­leið sem liggur í gegnum þjóð­garð­inn. SUNN segir að sum­arið 2020 hafi þjóð­garðs­vörður ráð­ist í að láta verk­taka gera hluta slóð­ans einnig að hjóla­stíg. Er honum, að sögn sam­tak­anna, veitt sér­stök heim­ild stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun til þess að heim­ila umferð reið­hjóla á til­teknum reið­leiðum eða reið­stígum. „Ekki verður þó með nokkru móti séð að í þeirri heim­ild felist að breyta reið­leið með fram­kvæmdum líkt og hér fóru fram, en þjóð­garðs­verði er ekki með lögum eða reglum sem um þjóð­garð­inn gilda heim­ilt yfir höfuð að taka ákvarð­anir um fram­kvæmdir,“ bendir SUNN á í kærunni. Segja þau verk­taka hafa rutt úr reið­leið­inni „öllum gróðri og svarð­lagi alveg niður í mold og rúm­lega það á sam­tals 4,5 km leið“. Öllu efn­inu hafi rutt út úr gamla smala­slóð­anum og skilið eftir í stórum hrúgum, rúm­lega 100 tals­ins, með­fram stígnum.

Stíg­ur­inn rúm­ast að mati sam­tak­anna ekki innan heim­ilda sem þjóð­garðs­verði eru veittar í stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun, enda verði að telj­ast um hreinar fram­kvæmdir að ræða en ekki venju­legt við­hald. Þá segja sam­tökin að frá­gangur stígs­ins jafn­framt vera „í hróp­andi ósam­ræmi við nátt­úru­vernd­ar­lög og lög um þjóð­garð­inn“.

Stígur 3, Ásbyrgi

Síðasti stíg­ur­inn sem um ræðir er í Ásbyrgi en þar hefur um helm­ingur stik­aðrar göngu­leiðar sem liggur frá tjald­svæð­inu og inn í Ásbyrgi verið rudd á sama hátt. Að auki hefur að því er fram kemur í kæru SUNN verið ruddur stígur yfir gamla íþrótta­völl­inn inni í Ásbyrgi. „Sama verk­lagi var beitt og áður, öllum gróðri, svarð­lagi og hluta af jarð­vegi rutt í burtu og ýtt út fyrir stíg­inn, stundum var efnið falið inni í víð­irunnum og birki­skógi og stundum ekki. Til við­bótar bætt­ist við stór­grýti sem nú liggur eins og hrá­viði með­fram stígnum.“ Einnig benda sam­tökin á að hvergi sé gert ráð fyrir stíg í gegnum íþrótta­völl í stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun og að hann sé heldur ekki í deiliskipu­lagi.

„Í sam­ræmi við ofan­greinda atvika­lýs­ingu og laga­til­vís­ana er þess kraf­ist að ofan­greind hátt­semi þjóð­garðsvarðar og verk­taka verði rann­sökuð og fyrir hana ákært í sam­ræmi við til­vitnuð laga­á­kvæði,“ segir í kæru sam­tak­anna til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatnajökulsþjóðgarður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár