Beðin um að fara ekki og laga skemmdir vegna utanvegaaksturs

Marga jeppa­menn langar að fara og laga skemmdir sem unnar voru með utan­vega­akstri í Von­ar­skarði. Þjóð­garðs­vörður ítrekar að um vett­vang rann­sóknar sé að ræða og að ekki megi hreyfa við honum að svo stöddu.

Spjöll vegna utanvegaakstursins í Vonarskarði.
Spjöll vegna utan­vega­akst­urs­ins í Von­ar­skarði. Mynd: Vatnajökulsþjóðgarður

„Málið er í rann­sókn hjá okkur. Við erum að skoða þau gögn sem við höfum en mér þykir ólík­legt að við förum á vett­vang,“ segir Sveinn Rún­ars­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi, spurður um kæru Vatna­jök­uls­þjóð­garðs vegna utan­vega­akst­urs í Von­ar­skarði í lok ágúst. Hann segir að þjóð­garð­ur­inn hafi afhent góðar myndir af verksum­merkjum en við­ur­kennir að rann­sókn á utan­vega­akstri á hálendi Íslands, þar sem engum eft­ir­lits­mynda­vélum er til dæmis til að dreifa, geti verið snúin. Hann óskar því hér með eftir því að þeir sem mögu­lega hafi ein­hverjar upp­lýs­ingar um hverjir voru þarna að verki, að minnsta kosti fólk á þremur jeppum að mati þjóð­garðs­ins, láti lög­regl­una á Suð­ur­landi vita.

[links]Von­ar­skarð er á mörkum tveggja lög­reglu­um­dæma, lög­regl­unnar á Suð­ur­landi og lög­regl­unnar á Norð­ur­landi. Í byrjun mán­að­ar­ins upp­götv­uð­ust spjöll í skarð­inu sem er lokað fyrir bíla­um­ferð. Þar höfðu bílar farið um, að hluta um gamlan slóða en einnig ekið á merktri göngu­leið og utan hennar. Ekið var yfir gróð­ur­vinjar svo djúp för urðu í mosa og öðrum við­kvæmum gróðri. Að auki hafa bíl­stjór­arnir spólað í brekku svo hún „lík­ist helst sand­gryfju,“ eins og Fanney Ásgeirs­dóttir, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði sagði við Kjarnann fyrr í vik­unni. Um leið og utan­vega­akst­ur­inn upp­götv­að­ist var málið kært til lög­regl­unnar á Suð­ur­landi.

Að auki hafa tvenn nátt­úru­vernd­ar­sam­tök, Nátt­úru­grið og Skrauti, lagt fram kæru vegna „refsi­verðra spjalla, rasks og akst­urs utan vega í Von­ar­skarði í Vatna­jök­uls­þjóð­garði,“ líkt og það er orðað, í bréfi sem sent var lög­reglu­emb­ætt­unum í gær.

[adspot]

Í kærunni, sem Kjarninn hefur undir höndum, er farið fram á að opin­ber rann­sókn fari fram á utan­vega­akstr­inum „sem feli í sér refsi­verða hátt­semi, sem ekki á sér nokkurn sinn líkan í við­kvæmum, óbyggðum víð­ernum í Von­ar­skarði“. Brotin séu gróf og gerð af ásetn­ingi og af þeim hafi hlot­ist mikið og var­an­legt tjón. Benda sam­tökin á að þau geti varðað allt að fjög­urra ára fang­elsi.

Fara sam­tökin þess á leit að sú opin­bera rann­sókn sem hófst með til­kynn­ingu þjóð­garðs­ins njóti „algers for­gangs“ hjá lög­regl­unni. Er í því sam­bandi á það bent að land­vörslu hafi verið hætt á svæð­inu í gær. Næsta víst sé að vett­vangur spillist með óaft­ur­kræfum hætti, verði hann ekki tryggður fyrir helg­ina, „en nokkrir hópar jeppa­manna hafa, sam­kvæmt því sem umbjóð­endur mínir hafa upp­lýst, hvatt til hópa­mynd­unar og ferða á vett­vang nú um helg­ina á sam­fé­lags­miðlum,“ segir í bréfi lög­manns nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna.

Fanney seg­ist hafa fengið veður af umræðu um að hópur fólks hafi ætlað að fara í Von­ar­skarð og laga ummerkin. Slíkt væri alls ekki í sam­ráði við þjóð­garðs­yf­ir­völd. „Ég hafði sam­band við full­trúa SAMÚT [Samtaka úti­vi­star­fé­laga] í stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs og hann sagði að aðeins stæði til að fara til að skoða ummerki og taka myndir.“

Fanney benti honum á að um rann­sókn­ar­vett­vang væri að ræða „og það væri væg­ast sagt var­huga­vert að gera sér sér­staka ferð þangað áður en lög­regla hefði lokið rann­sókn – og að sjálf­sögðu mætti ekki hreyfa við vett­vangi“.

Sá sem er full­trúi SAMÚT í stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs heitir Snorri Ingi­mars­son. Hann segir það rétt að marga langi að fara og laga skemmd­irnar. „Því að okkur svíður eins og öðrum þegar það eru skemmdir á nátt­úr­unni. Ég hef verið í sam­bandi við þjóð­garðs­vörð og hún telur það ekki tíma­bært, hún telur að þetta verði mikið til horfið það sem er í sandi næsta sumar og svo er þetta nátt­úr­lega í rann­sókn hjá lög­reglu og ekki rétt að hrófla við neinum förum eða slíku. En það er ekk­ert úti­lokað að ein­hverjir af okkur fari upp eftir og fari var­lega og skoði umfangið á þessum skemmdum með eigin augum. Svo erum við einnig með í bígerð að fljúga þarna yfir.“

Hann segir hóp­inn þó engar fyr­ir­ætl­anir hafa um að grípa fram fyrir hend­urnar á lög­reglu eða þjóð­garðs­verði.

Fanney sagði í sam­tali við Kjarnann að í hennar huga und­ir­striki spjöllin sem voru unnin í ágúst nauð­syn á lokun vega­slóð­ana um Von­ar­skarð. Snorri er á önd­verðum meiði. „Við teljum að ef stik­aðri öku­leið hefði verið haldið opinni þá hefði þetta tjón ekki orðið á nátt­úr­unni. Við teljum það liggja alveg ljóst fyrir að þetta sýni okkur að það að loka svæð­inu fyrir umferð, það frí­aði okkur ekki frá þessu tjóni í nátt­úr­unni. Þetta er víð­feðmt svæði. Þar sem gamla öku­leiðin liggur er engin hætta á skemmdum, hún liggur meira að segja að hluta til á gömlum varn­ar­görðum frá Lands­virkjun og bara um örfoka sanda og mela.“

Hann segir önnur svæði í Von­ar­skarði vera við­kvæm „og það merki­lega er að þegar Vatna­jök­uls­þjóð­garður bann­aði okkur að aka þarna þá urðu allir sem fara skarðið að ganga um miklu við­kvæmara svæði.“ Með því að loka svæð­inu fyrir umferð bíla, líkt og gert var árið 2011, hafi „aðgengi verið lág­markað en álagið hámarkað um leið“. Þetta sýni hvað mál­efni Von­ar­skarðs eru komin í miklar ógöngur. „Að fólk skuli ekki bara við­ur­kenna þetta og leið­rétta þessa lokun sem margir telja hafa verið mis­tök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatnajökulsþjóðgarður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár