Krefjast stöðvunar framkvæmda Vegagerðarinnar við Hljóðakletta

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi gera alvar­legar athuga­semdir við verk­lag í kringum fram­kvæmda­leyfi og umhverf­is­mat veglagn­ingar við Hljóða­kletta. Matið sé fjórtán ára gam­alt og fram­kvæmdir Vega­gerð­ar­innar ekki í sam­ræmi við það.

Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, fyrrverandi þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum, segir að hinn breiði og „mjög upphækkaði“ vegur í Vesturdal sunnan Hljóðakletta, gnæfi yfir tjaldstæði og spilli landslagi.
Sig­þrúður Stella Jóhanns­dóttir, fyrr­ver­andi þjóð­garðs­vörður í Jök­ulsár­gljúfrum, segir að hinn breiði og „mjög upp­hækk­aði“ vegur í Vest­ur­dal sunnan Hljóða­kletta, gnæfi yfir tjald­stæði og spilli lands­lagi. Mynd: Af Facebook-síðu Sigþrúðar Stellu Jóhannsdóttur

Samtök um nátt­úru­vernd á Norð­ur­landi, SUNN, krefj­ast þess að fram­kvæmdir Vega­gerð­ar­innar í Vest­ur­dal og við Hljóða­kletta í Jök­ulsár­gljúfrum verði stöðvuð. Fram­kvæmdir hafa staðið yfir síðan fyrr í sumar. Samtökin gera „alvar­legar athuga­semdir varð­andi verk­lag í kringum fram­kvæmda­leyfi og umhverf­is­mat og gera kröfu um að betur sé að gætt þegar um svo dýr­mætan stað er að ræða“.

Svæðið sem um ræðir er nú innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs en hefur verið þjóð­garður síðan 1973. Samtökin hafa sent kæru til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála vegna athafna Vega­gerð­ar­innar og kraf­ist við­ur­kenn­ingar á ólög­mæti þeirra meðal ann­ars.

Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir að um sé að ræða fram­kvæmdir á hluta Detti­foss­vegar en sú fram­kvæmd fór í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum árið 2006. Stjórn sam­tak­anna telur hins vegar eðli þeirra fram­kvæmda sem nú standa yfir ekki vera í sam­ræmi við hið fjórtán ára gamla umhverf­is­mat. „Þá kom skýrt fram af hálfu þjóð­garðs­yf­ir­valda að vega­bótum um Vest­ur­dal skyldi haldið lág­stemmdum til að standa vörð um þá ein­stöku kyrrð og nátt­úru­feg­urð sem ein­kennir tjald­stæðið í Vest­ur­dal sem veg­ur­inn liggur um. Þess í stað skyldi mæta auk­inni umferð með aðkomu að svæð­inu upp á Langa­vatns­höfða, fyrir ofan Hljóða­kletta og Vest­ur­dal. Þar er gert ráð fyrir bíla­stæði fyrir rútur og þá ferða­langa sem staldra [skemur] við en geta notið svæð­is­ins án þess að trufla þá kyrrð sem ríkir í Vest­ur­dal,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Á meðan verið er að byggja upp áður­nefnda aðkomu að Hljóða­klettum um Langa­vatns­höfða telja sam­tökin mik­il­vægt að veg­ur­inn um Vest­ur­dal sam­ræm­ist þeirri upp­lifun sem fylgir því að fara um hann. „Lág­stemmdur vegur sem liggur vel í lands­lag­inu og býður upp á að fara sér hægt og njóta þeirrar ein­stöku nátt­úru­feg­urðar sem dal­ur­inn skartar.“

Mikil mistök

Sig­þrúður Stella Jóhanns­dóttir, fyrr­ver­andi þjóð­garðs­vörður í Jök­ulsár­gljúfrum, sagði í sam­tali við RÚV að hinn breiði og „mjög upp­hækk­aði“ vegur í Vest­ur­dal sunnan Hljóða­kletta, gnæfi yfir tjald­stæði og spilli lands­lagi. Sagði hún ekki ljóst hver hefði tekið ákvörðun um að hanna svæðið með þessum hætti. Vega­gerðin öll væri mjög mikil mis­tök.

„Vegurinn frá Ásbyrgi að Mývatni á að vera ferða­manna­vegur en hann virð­ist fyrst og fremst hafa verið ein­hvers­konar fantasía verk­fræð­ings og gröfu­stjóra,“ skrif­aði rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason á Facebook-síðu sína nýverið. Sagði hann veg­inn gjör­breyta eðli svæð­is­ins frá Ásbyrgi inn í Hljóða­kletta og að vel hefði mátt leggja mal­bik­aðan veg með útskotum eins og gegnum Þing­valla­hraunið eða í sjálfu Ásbyrgi.

Landslag sem var mikils virði

„Í stað­inn er búin til upp­byggð hrað­braut eins og mark­miðið sé að kom­ast á sem mestum hraða á milli staða,“ skrif­aði Andri. „Í stað þess að Hljóða­klettar séu dul­ar­fullur staður inn í lands­lag­inu verða þeir eins og vega­sjoppa í veg­kant­inum. Best­un­ar­mark­mið verk­fræð­inga um að koma manni á 8 mín­útum á stað­inn álíka þroskað og að hraðspóla gegnum kvik­mynd eða hlaupa gegnum Louvre til að sjá Mónu Lísu og hlaupa út aftur.“

Sagði Andri að Hóls­sandur hefði verið „kjörið athafna­svæði fyrir hrað­braut og hrað­teng­ingu við Mývatn“ en „ynd­is­lega grónar heið­arnar vestan megin Jökulsár voru lands­lag sem var mik­ils virði í sjálfu sér en veg­ur­inn tekur ekk­ert til­lit til þeirra. Það er mik­il­vægt að vera á vakt­inni þegar nátt­úruperlur og lands­lag eru mis­skildar svona hrapa­lega“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatnajökulsþjóðgarður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár