Samherji kannar hvernig afsökunarbeiðnir leggjast í landann

Þátt­tak­endur í við­horfa­hópi Gallup fengu í vik­unni sendar spurn­ingar um Samherja. Fyr­ir­tækið, sem baðst tví­vegis afsök­unar fyrr í sumar, virð­ist fylgj­ast grannt með almenn­ings­á­lit­inu.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji hefur und­an­farin miss­eri reglu­lega látið rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Gallup mæla við­horf almenn­ings til fyr­ir­tæk­is­ins og við­bragða þess við ásök­unum um mútur í Namibíu. Því heldur fyr­ir­tækið nú áfram, í kjöl­far þess að hafa beðist afsök­unar á „mis­tökum“ sem gerð voru í rekstri félags­ins í Namibíu fyrir röskum mán­uði síðan.

Þeir sem eru í svo­nefndum við­horfa­hópi Gallup, sem svarar spurn­ingum um ýmis efni, hafa reglu­lega fengið sendar spurn­ingar um fyr­ir­tækið og við­horf þeirra til þess. Slíkar spurn­ingar bár­ust til við­horfa­hóps­ins í vik­unni.

Þátt­tak­endur voru spurðir að því hvað það væri það fyrsta sem þeim dytti í hug þegar fyr­ir­tækið Samherji væri nefnt, hversu mikið eða lítið traust þeir bæru til Samherja, hversu ánægt eða óánægt þeir væru með „aðgerðir Samherja í kjöl­far ásak­ana um mútur í Namibíu“, hversu mikið þeir hefðu fylgst með málum Samherja að und­an­förnu og hversu jákvæðir eða nei­kvæðir þeir væru gagn­vart Samherja.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gallup tekur púls­inn á því hver ímynd Samherja í hugum lands­manna frá því að Sam­herj­a­skjölin komu upp á yfir­borðið í nóv­em­ber árið 2019, í umfjöll­unum Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera.

Snemma í des­em­ber það sama ár voru þeir sem eru í við­horfa­hópi Gallup meðal ann­ars spurðir út í það hvort þeir bæru traust til Björg­ólfs Jóhanns­sonar, sem þá hafði nýlega tekið við stjórn­ar­taumunum hjá félag­inu eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri steig til hliðar.

Tvær afsökunarbeiðnir

For­svars­menn Samherja hafa verið tví­vegis beðist afsök­unar á und­an­förnum mán­uðum. Fyrri afsök­un­ar­beiðnin kom í kjöl­far þess að Kjarninn og Stundin höfðu opin­berað starf­semi svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar“ Samherja. Í henni sagði að ljóst væri að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

[adspot]

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki var útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.[links]

Þann 22. júní birti fyr­ir­tækið svo heil­síðu­aug­lýs­ingar í báðum helstu prent­miðlum lands­ins, Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu, undir yfir­skrift­inni „Við gerðum mis­tök og biðj­umst afsök­unar“. Um var að ræða ræða bréf sem fjall­aði um starf­semi útgerð­ar­innar í Namibíu og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, skrif­aði undir bréfið.

Þar sagði að „ámæl­is­verðir við­skipta­hættir“ hefðu fengið að við­gang­ast í starf­semi útgerðar Samherja í Namibíu. Veik­leikar hefðu verið í stjórn­skipu­lagi og lausa­tök sem ekki áttu að líð­ast. „Við brugð­umst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið upp­námi hjá starfs­fólki okkar, fjöl­skyldum, vinum, sam­starfs­að­ilum, við­skipta­vinum og víða í sam­fé­lag­inu. Við hörmum þetta og biðj­umst ein­læg­lega afsök­unar,“ sagði í þessu bréfi Þor­steins Más.

Nú virð­ist fyr­ir­tækið vera að kanna hvernig þessar afsök­un­ar­beiðni lagð­ist í land­ann, en nið­ur­stöður þess­ara kann­ana Gallup hafa hvergi verið birtar opin­ber­lega.

Eina könn­unin um mál­efni Samherja sem birt hefur verið opin­ber­lega að und­an­förnu er könnun sem frétta­blaðið Stundin fékk MMR til þess að fram­kvæma í jan­úar á þessu ári tengslum við umfjöllun blaðs­ins um áhrif Samherja á nær­sam­fé­lag sitt á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu.

Samkvæmt þeirri könnun trúðu 92 pró­sent lands­manna því að Samherji hafi átt aðild að mútu­greiðslum til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár