Jón Steindór: Framganga Benedikts hefur „hryggt mig meira en orð fá lýst“

Þing­maður Við­reisnar hafnar því sem hann kallar sam­sær­is­kenn­ingar fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins. Hann vonar að Benedikt Jóhann­es­son muni lýsa yfir fullum stuðn­ingi við Viðreisn. Geri hann það ekki séu eigin hags­munir að blinda honum sýn.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það hefur hryggt mig meira en orð fá lýst að Benedikt Jóhann­es­son, sem ég hef talið góðan félaga og vin, hafi valið þá leið að gera for­ystu og stofn­anir flokks­ins tor­tryggi­legar í kjöl­far þess að hann fékk ekki vilja sínum fram­gengt við upp­still­ingar á lista.“

Þetta skrifar Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, í stöðu­upp­færslu á Facebook í kvöld. Færslan birt­ist í kjöl­far þess við­tals sem Benedikt fór í við mbl.is í dag þar sem hann gerði það meðal ann­ars tor­tryggi­legt að Jón Steindór hefði verið færður úr öðru sæti á lista Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og í annað sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður.

Jón Steindór segir þetta virð­ast hafa verið mis­skilda greiða­semi við sig. „Vænt­an­lega vill hann benda á að hér sé illa farið með góðan dreng eins og hann af klíku­skap og klækja­stjórn­málum for­ystu Við­reisnar - það er víðs fjarri öllum sann­leika og bjarn­ar­greiði við mig. Sama gildir um sam­sær­is­kenn­ingar um að körlum hafi verið raðað í efstu sæti landa­byggð­ar­kjör­dæmanna til þess að úti­loka að Benedikt fengi ósk sína upp­fyllta um for­ystu­sæti í ein­hverju kjör­dæmanna þrigga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Eigin hagsmunir blindi sýn

Jón Steindór segir að hann hafi verið til­bú­inn að gera þessa breyt­ingu á högum sínum ef það væri fram­gangi Við­reisnar fyrir bestu og komið því á fram­færi við upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins þegar málið var rætt við hann. „Ég er þess full­með­vit­aður að það verður erf­ið­ara verk­efni en að halda mig í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, verk­efni sem ég mun takast á við af fullum krafti. Þá er ég ánægður með að fá að vera númer tvö á eftir Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur öfl­ugum þing­manni og hug­sjóna­konu.“

[adspot]Í nið­ur­lagi stöðu­upp­færsl­unnar segir Jón Steindór að Benedikt Jóhann­es­son, sem er fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar, hafi sagt að hug­sjónir og stefna flokks­ins séu stærri en hags­munir ein­stak­linga. Því sé hann sjálfur hjart­an­lega sam­mála. „Ég vona og trúi að Benedikt sé enn sama sinnis. Þess vegna hef ég enga trú á öðru en að hann muni fyrr en seinna lýsa yfir fullum stuðn­ingi við flokk­inn sem hann átti svo stóran þátt í að skapa, hvetji allt sitt lið til þess að koma á fullu inn í bar­átt­una fyrir sam­eig­in­legum hug­sjónum og tryggi Viðreisn sem mest fylgi í kom­andi kosn­ingum. Geri hann það ekki er ég hræddur um að eigin hags­munir hans blindi honum sýn og hann sjái ekki lengur þá almanna­hags­muni sem við ætl­uðum saman að setja ofar sér­hags­munum.“

Útilokaði ekki að stofna klofningsflokk

Í við­tali við mbl.is fyrr í dag greindi Benedikt frá því að hann hefði sagt sig úr fram­kvæmda­stjórn Við­reisnar. Í sam­tali við Vísi síðar um dag­inn sagði Benedikt ótíma­bært að svara því hvort hann ætli sér að stofna klofn­ings­flokk frá Viðreisn, en búið er að stofna Facebook-hóp undir nafn­inu C++ frelsi og frjáls­lynd hugsun!. C er lista­bók­stafur Við­reisnar.

[links]Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þær hörðu deilur sem spruttu upp innan Við­reisnar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í lok síð­asta mán­aðar, í kjöl­far þess að Benedikt hafði verið hafnað sem fram­bjóð­anda af upp­still­inga­nefnd flokks­ins.

Eftir þá höfnun fór í gang fór atburða­rás til að reyna að sætta ólík sjón­ar­mið og plástra per­sónu­leg sár­indi, sem bar ekki árangur.

Benedikt verður ekki á lista Við­reisnar í kom­andi kosn­ingum og hefur nú auk þess sagt sig úr fram­kvæmda­stjórn flokks­ins, þar sem hann hefur setið frá upp­hafi. Sú stjórn ann­ast dag­legan rekstur Við­reisnar og fjár­reiður með fram­kvæmda­stjóra. Þar sitja nú for­maður Við­reisnar, vara­for­maður og Þórður Magn­ús­son, for­maður fjár­öfl­un­ar­nefndar, sem er áheyrn­ar­full­trúi, og Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Við­reisnar sem tók sæti Bene­dikts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár