Skattgreiðendur þurfi að borga fyrir tómar áhorfendastúkur

Borg­ar­yf­ir­völd í Tókíó gætu þurft að nið­ur­greiða Ólymp­íu­leik­ana sem þar eiga að fara fram síð­sum­ars um jafn­virði 97 millj­arða króna til við­bótar, ef leik­arnir þurfa að fara fram fyrir luktum dyrum.

Almenningur í Japan hefur verið ansi andsnúinn því að leikarnir fari fram í Tókíó í sumar.
Almenn­ingur í Japan hefur verið ansi andsnú­inn því að leik­arnir fari fram í Tókíó í sumar. Mynd: EPA

Nýlegar fjár­hags­á­ætl­anir fyrir Ólymp­íu­leik­ana í Tókíó sýna að skipu­leggj­endur leik­anna eru enn að gera ráð fyrir því að við­burðir á leik­unum verði þétt­setnir áhorf­endum, þrátt fyrir að alls óvíst sé hvort það geti mögu­lega orðið raunin.

Um tvö ár eru síðan að miðar á við­burði Ólymp­íu­leik­anna fóru í sölu, að mestu til almenn­ings í Japan, og löngu er búið að verja ágóða miða­söl­unnar til þess að skipu­leggja leik­ana.

Í nýrri úttekt Financial Times kemur fram að borg­ar­yf­ir­völd í Tókíó hafi skuld­bundið sig til þess að end­ur­greiða mið­ana ef til þess þyrfti að koma og að kostn­að­ur­inn borg­ar­innar við það, ef leik­arnir fara fram bak við luktar dyr, muni nema um 800 millj­ónum Banda­ríkja­dala. Það er jafn­virði rúm­lega 97 millj­arða íslenskra króna.

[adspot]

Rík­is­stjórn Japans er ákveðin í að halda leik­ana, þrátt fyrir að and­staða almenn­ings hafi verið all­mikil, en til stendur að setn­ing­ar­at­höfn þeirra fari fram 23. júlí.

Yos­hi­hide Suga for­sæt­is­ráð­herra lands­ins sagði við frétta­menn á G7 fund­inum í Bret­landi á dög­unum að fjöldi áhorf­enda myndi taka mið af stöðu COVID-19 far­ald­urs­ins í land­inu og sömu við­mið um áhorf­enda­fjölda yrðu á Ólymp­íu­leik­unum og á öðrum íþrótta­við­burðum í land­inu.

Læknar og sótt­varna­sér­fræð­ingar hafa að und­an­förnu talað gegn því að áhorf­endum verði hleypt inn á við­burði Ólymp­íu­leik­anna. Formaður lækna­sam­tak­anna í Tókíó sagði nýlega að ef til stæði að halda leik­ana væri það eini val­mögu­leik­inn að gera það án nokk­urra áhorf­enda.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur ekki verið kveð­inn niður í Japan og hund­ruð smita grein­ast í Tókíó á degi hverjum, þrátt fyrir að far­ald­urs­bylgja sem reis hátt í maí sé í rénun. Á sama tíma er ekki búið að full­bólu­setja nema tæp 6 pró­sent Japana og innan við 10 pró­sent lands­manna til við­bótar hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni.

Anton Sveinn McKee sund­maður er eini íslenski íþrótta­mað­ur­inn sem hefur unnið sér inn keppn­is­rétt á Ólymp­íu­leik­unum í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár