Nýir hluthafar keyptu fyrir 29,7 milljarða króna í Síldarvinnslunni

Miðað við það sem fékkst fyrir 29,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni er mark­aðsvirði félags­ins 101,3 millj­arðar króna. Samherji og Kjálka­nes fá yfir tólf millj­arða króna hvort fyrir hluti sem þau seldu.

Síldarvinnslan verður eina skráða félagið á Íslandi sem er með höfuðstöðvar á landsbyggðinni.
Síld­ar­vinnslan verður eina skráða félagið á Íslandi sem er með höf­uð­stöðvar á lands­byggð­inni. Mynd: Svn.is

Hluta­fjár­út­boði Síld­ar­vinnsl­unnar, sem verður skráð á markað í síðar í þessum mán­uði, lauk í gær. Alls voru til sölu 498,6 millj­ónir hluta, alls 29,3 pró­sent í félag­inu, en rúm­lega tvö­föld eft­ir­spurn varð eftir hlutum. Þeir nálægt 6.500 aðilar sem skráðu sig fyrir hlut sótt­ust eftir að kaupa fyrir um 60 millj­arða króna en selt var fyrir 29,7 millj­arða króna. Útboðs­gengi í til­boðs­bók A var 58 krónur á hlut en 60 krónur á hlut í til­boðs­bók B. Miðað við þetta verð er heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar 101,3 millj­arðar króna.

Eftir hluta­fjár­út­boðið eru hlut­hafar í Síld­ar­vinnsl­unni, sem er eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins og heldur á 7,7 pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ildum, tæp­lega sjö þús­und tals­ins.

Gjald­dagi og eindagi áskrift­ar­lof­orða í útboð­inu er 20. maí 2021 og er áætlað að afhenda kaup­endum hluti í Síld­ar­vinnsl­unni þann 26. maí 2021 að und­an­geng­inni greiðslu. Þá mun nýr hlut­haf­alisti birt­ast og í ljós kemur hverjir það voru sem keyptu sig inn í félagið.

Áætlað er að við­skipti með hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni hefj­ist 27. maí 2021 en Nasdaq Iceland mun til­kynna um fyrsta við­skipta­dag með hluta­bréfin með minnst eins við­skipta­dags fyr­ir­vara.

[adspot]Á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar er haft eftir Gunnþór Ingv­ars­syni, for­stjóra hennar, að .eð fyr­ir­hug­aðri skrán­ingu félags­ins í Kauphöll verði „Síld­ar­vinnslan með þá sér­stöðu að vera eina skráða félagið með höf­uð­stöðvar á lands­byggð­inni.“

Samherji og Kjálkanes seldu mest

Selj­endur hluta voru stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar og helstu stjórn­endur hennar.

Samherji hf., stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar, fær um 12,2 millj­arða króna af þeirri upp­hæð sem selt var fyrir í sinn hlut og Kjálka­nes, félag í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum, fær 12,2 millj­arða króna sömu­leiðis.

Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Samherja og Björg­ólfs, seldi hluti fyrir einn millj­arð króna og Síld­ar­vinnslan fékk um 738 millj­ónir króna fyrir þá eigin hluti hennar sem hún seldi.

Samherji verður áfram stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar þrátt fyrir að selja ofan­greindan hlut í henni með 32,6 pró­sent eign­ar­hlut. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Kjálka­nes mun áfram eiga 19,2 pró­sent og Snæfugl mun áfram eiga 4,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Saman fara þessi þrjú félög, sem skipa þrjá af fimm stjórn­ar­mönnum í Síld­ar­vinnsl­unni eins og er og Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar hvort að eigi að skil­grein­ast sem tengdir aðilar, með 56,1 pró­sent hlut, og þar með meiri­hluta í Síld­ar­vinnsl­unni. Virði þess hlutar miðað við útboðs­gengi er 56,8 millj­arðar króna.

Stjórnendur hagnast vel á nokkrum mánuðum

Þá seldi félagið Hraunlón hluti fyrir um 608 millj­óna króna.

[links]Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kemur fram að Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, Axel Ísaksson og Jón Már Jónsson, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar séu eig­endur Hraun­lóns. Þeir keyptu félagið í lok árs 2020.

Alls á Hraunlón um 27,5 millj­ónir hluta í Síld­ar­vinnsl­unni og greiddi fyrir þann hlut um 640 millj­ónir króna fyrir nokkrum mán­uðum síðan. Sá hlutur er nú met­inn á 1.595 millj­ónir króna og hefur því hækkað um 955 millj­ónir króna á fjórum mán­uðum. Hraunlón er að selja 37 pró­sent af eign sinni og fékk, líkt og áður sagði, 608 millj­ónir króna fyrir. Áfram mun félagið eiga um eitt pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni sem er metið á um einn millj­arð króna.

Hraunlón var áður í jafnri eigu Einars Bene­dikts­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Olís, og Gísla Baldurs Garð­ars­sonar lög­manns. Samherji fjár­festi í Olís árið 2012 þegar þeir tveir áttu félagið að fullu og árið 2017 voru þeir að öllu leyti keyptir út úr Olís, meðal ann­ars af Samherja. Olís rann síðar saman við smá­söluris­ann Haga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár