Andstaða við að skikka fólk á sóttvarnahótel mest hjá kjósendum Sjálfstæðisflokks

Á meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna er 70 til 73 pró­sent stuðn­ingur við það að breyta sótt­varn­ar­lögum til að skikka komu­far­þega í sótt­kví á hót­eli. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er meiri stuðn­ingur við mild­ari aðgerðir.

Meirihluti kjósenda sjö af átta flokkum á Alþingi vilja að lögum verði greitt til að heimila að hægt verði að skikka komufarþegar til vistar á sóttvarnahóteli.
Meiri­hluti kjós­enda sjö af átta flokkum á Alþingi vilja að lögum verði greitt til að heim­ila að hægt verði að skikka komu­far­þegar til vistar á sótt­varna­hót­eli. Mynd: EPA

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru þeir einu sem finnst reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um að komu­far­þegar til lands­ins gætu verið í heima­húsi í sótt­kví betri lausn en að skikka alla komu­far­þegar sem koma frá áhættu­svæðum til að vera á sótt­varna­hót­elum.

Alls segj­ast 49 pró­sent kjós­enda flokks­ins að þeir séu sáttir við reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra en 46 pró­sent að þeir hefðu kosið að komu­far­þegum til Íslands frá skil­greindum háá­hættu­svæðum yrði gert að vera í sótt­kví undir eft­ir­liti. Sex pró­sent þeirra sögðu enn fremur að þeir væru þeirrar skoð­unar að þeir hefðu kosið að komu­far­þegar myndu fá að ráða hvar þeir færu í sótt­kví án þess að reglur um heima­sótt­kví yrðu hertar.

Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem spurt var um landa­mæri og sótt­kví. Heilt yfir eru næstum tveir af hverjum þremur lands­mönnum, alls 62 pró­sent, á því að komu­far­þegar frá áhættu­svæðum yrði gert að dvelja á sótt­varna­hót­elum og fylgj­andi því að sótt­varn­ar­lögum verði breytt til að heim­ila það. Sam­fylk­ingin hefur þegar smíðað frum­varp þess efnis sem var lagt inn á Alþingi í gær og verður dreift þar í dag. Til stóð að ræða það á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag hvort Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra myndi leggja fram frum­varp sem ætti að tryggja laga­stoð til þess að skikka fólk í sótt­kví í sótt­varna­hót­eli.

[adspot]Hjá kjós­endum allra ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks er mik­ill meiri­hluti fyrir því að gera laga­breyt­ingar til að hægt verði að skikka fólk til að dvelja á sótt­varna­hót­eli þegar það kemur fram skil­greindum áhættu­svæðum. Á meðal kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna er sá stuðn­ingur afger­andi. Alls segj­ast 73 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins að þeir styðji þá leið og 70 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna eru á þeirri skoðun.

Stuðn­ing­ur­inn er sömu­leiðis afger­andi hjá kjós­endum allra fimm stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Könnun Gallup var net­könnun sem gerð var dag­ana 9.—19. apríl 2021. Þátt­töku­hlut­fall var 53,2 pró­sent, úrtaks­stærð 1.583 ein­stak­lingar 18 ára eða eldri af öllu land­inu valdir af handa­hófi úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár