Alþjóðasamfélag sem byggir á lögum og reglum – en hverjir skrifa reglurnar?

Kína mun innan fárra ára sigla hrað­byri fram úr Banda­ríkj­unum sem mesta efna­hags­lega stór­veldið. Það mun gera því kleift að taka fullan þátt í að setja regl­urnar í alþjóða­sam­fé­lag­inu og það verða Banda­ríkja­menn að sætta sig við.

Xi Jinping forseti Kína fær hér lófatak á þingi kínverska kommúnistaflokksins árið 2018.
Xi Jinping for­seti Kína fær hér lófatak á þingi kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins árið 2018. Mynd: EPA

Nýlega áttu Banda­ríkja­menn og Kín­verjar við­ræður þar sem ný stjórn Joes Bidens reyndi að koma sam­skiptum ríkj­anna á réttan kjöl. Í opn­unará­varpi sagði Antony Blinken utan­rík­is­ráð­herra að banda­rísk stjórn­völd væru stað­ráðin í að beita diplómat­ískum aðferðum til að tryggja hags­muni sína – og efla lög og reglu í skipan alþjóða­mála. Hinn val­kost­ur­inn, sagði Blinken, væri heimur hinna mátt­ugu þar sem sig­ur­veg­ar­arnir fengju allt og það væri miklu ofbeld­is­fyllri og óstöðugri heimur. Á honum mátti skilja að Kín­verjar hafi ekki aðeins í hyggju að grafa undan for­ystu­hlut­verki Banda­ríkj­anna heldur einnig að koma aftur á heimi þar sem hinn sterki fer sínu fram.

Bandaríkin vilja að Kína fari að reglum – reglum Bandaríkjanna

Eftir að tví­póla valda­kerfi kalda stríðs­ins leið undir lok tók við tíma­bil þar sem Banda­ríkin héldu að miklu leyti ein um stjórn­völ­inn. Í fyrstu ein­kennd­ist and­rúms­loftið af létti og vilja til frið­sam­legra fram­fara en und­an­farið hafa stærri og dýpri átaka­línur verið að koma í ljós. Kína hefur vaxið gríð­ar­lega hratt sem efna­hags­legt stór­veldi og Rússar tekið sér meira afger­andi stöðu gagn­vart því sem þeir túlka sem yfir­gang Vest­ur­landa.

Banda­ríkja­menn hafa van­ist því að leggja lín­urnar í heims­kerf­inu alla tutt­ug­ustu öld­ina og hafa í krafti valds síns ráðið lögum og lofum í helstu alþjóða­stofn­unum. Út frá sjón­ar­horni Banda­ríkja­manna er það því ískyggi­leg sýn að Kín­verjar geri sig breiða, fari jafn­vel að leggja lín­urnar. Á það ber hins vegar að líta að á sama tíma og Banda­ríkja­menn hafa verið í for­ystu um að setja reglur hafa þeir oft haft sína henti­semi þegar kemur að því að fara eftir þeim. Jafn­framt hefur verið bent á að Kín­verjar hafa, þrátt fyrir allt, lagað sig að ýmsum þeim alþjóð­legu reglum sem komið hefur verið á.

Kínverjar munu vilja skrifa reglurnar – enda komnir með umboð til þess

Það sem nú breytir stöð­unni er að Kína stefnir hrað­byri fram úr Banda­ríkj­unum hvað varðar efna­hags­legan mátt og vænt­an­lega hern­að­ar­legan í kjö­farið. Kín­verjar vilja því senni­lega hafa sinn hátt á hlut­unum og þar með end­ur­skrifa þær reglur sem ríki heims þurfa að fara eftir. Þeir verða langt í frá einir á báti því vegna hins mikla veldis Kína munu ein­hver ríki telja hag sínum betur borgið með því að fylgja þeim að málum. Þetta mun enn frekar styrkja stöðu Kínverja við að móta og setja reglur alþjóða­sam­fé­lags­ins.

Málið snýst því hvorki um hvað Banda­ríkja­menn telja til­hlýði­legt þegar kemur að lögum og reglu í skipun heims­mála, né hvort Kín­verjar vilji virða þær eða nokkuð af þeim vita. Það snýst um hver ákveður hvaða reglur eigi við, hvar og hvenær, og á 21. öld verða það ekki ein­ungis Banda­ríkin og þeirra banda­menn sem hafa rétt til þess. Kína mun verða virkt í sam­keppn­inni við að móta grund­vall­ar­heims­kerfið – þær hug­myndir, venjur og vænt­ingar sem stjórna alþjóða­stjórn­málum. Þetta er sam­keppni um við­mið, lög­mæti og um hver skrifar sög­una.

[adspot]

Þetta mun langt í frá bara snú­ast um hug­mynda­fræði­lega aðlöðun heldur miklu frekar hreina og klára við­skipta­hags­muni og hvernig þeir eru best tryggðir. Talið er að í Kína fylgist um hálfur millj­arður manna með körfu­bolta. Gott dæmi um það vald sem hinn risa­stóri mark­aður færir er þegar kín­versk stjórn­völd stöðv­uðu samn­ing upp á einn og hálfan millj­arð doll­ara, sem banda­ríska NBA-deildin hafði gert um útsend­ingar leikja deild­ar­innar í land­inu. Ástæðan var eitt tíst yfir­manns körfuknatt­leiksliðs­ins Houston Rockets þar sem hann studdi mót­mæl­endur í Hong Kong, sem hafa barist gegn kín­verskum stjórn­völdum.

Valkostirnir: Bandaríkin eða Kína?

Munurinn á banda­rískum og kín­verskum hug­myndum um skipan heims­mála er til­tölu­lega skýr. Eins og hér er haldið fram kjósa Banda­ríkin fjöl­þjóð­legt kerfi – að vísu þar sem sum ríki njóta sér­stakra for­rétt­inda, þau sjálf einna helst. En þeim er að minnsta kosti frekar umhugað um ein­stak­lings­rétt­indi og ákveðin frjáls­lynd grund­vall­ar­gildi: lýð­ræð­is­lega stjórn­ar­hætti, rétt­ar­ríki, mark­aðs­drifið hag­kerfi o.s.frv. Banda­ríkja­menn kunna að eiga til að leika ein­leik í alþjóða­sam­skiptum og þessum hug­sjónum er ekki alltaf fram­fylgt heima fyrir og stundum af ósam­kvæmni erlendis. En heilt yfir er stefnan þó langt frá því að vera bara orðin tóm.

Hins vegar eru Kín­verjar hallir undir frekar gam­al­dags hug­myndir um reglur alþjóða­kerf­is­ins, þar sem full­veldi ríkja er í fyr­ir­rúmi, afskipta­semi er mjög illa séð og rétt­indi ein­stak­linga eiga ekki upp á pall­borðið. Þessi fram­tíð­ar­sýn þeirra er þó ekki síður byggð á reglum en sýn Banda­ríkj­anna, eins og sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem Kín­verjar virða upp að vissu marki. Hún úti­lokar heldur ekki núver­andi alþjóð­legt sam­starf um við­skipti, fjár­fest­ingar og mik­il­væg mál eins og lofts­lags­breyt­ingar. Kín­verjar hafa því verið tals­menn fjöl­þjóða­sam­starfs, jafn­vel þótt raun­veru­leg hegðun þeirra brjóti stundum í bága við ríkj­andi við­mið.

Tilkoma Kína sem öfl­ugs mót­að­ila Banda­ríkj­anna mun einnig veita öðrum ríkjum fleiri val­kosti en þau hafa haft und­an­farið. Sem dæmi má nefna Íran, sem hefur for­sendur til að verða leið­andi í Mið-Aust­ur­löndum. Refsi­að­gerðir Banda­ríkj­anna gagn­vart land­inu kunna að vera þung­bærar, en olíu- og fjár­fest­ing­ar­samn­ingur sem Íranir gerðu við Kína sýnir vel hvernig þeir geta virt að vettugi margar þær kröfur sem Banda­ríkja­menn setja fram.

Hvort verður ofan á?

Því er spáð að lands­fram­leiðsla Kína verði innan fárra ára orðin meiri en Banda­ríkj­anna og bilið muni halda áfram að vaxa hratt. Þó er ólík­legt að valdastrúktúr heims­ins verði eins tví­póla eins og í kalda stríð­inu en ljóst að valda­blokkir munu mynd­ast í þá átt. Þetta gæti leitt til hat­rammrar bar­áttu þar sem látið verður sverfa til stáls, t.d. með til­heyr­andi lepp­stríðum, ef ekki beinum milli­ríkja­á­tökum. Í augna­blik­inu virð­ast núver­andi stjórn­völd í Banda­ríkj­unum þó vilja reyna beita mýkri aðferðum til að ná fram mark­miðum sínum.

Það er umsnún­ingur frá aðferðum Trump-stjórn­ar­innar sem gjarnan ein­kennd­ust af yfir­læt­is­legum flumbru­gangi. Bent hefur verið á að þó ekki væri nema að mæta á helstu sam­ráðsvið­burði á alþjóða­vett­vangi, koma fram við aðra þátt­tak­endur af virð­ingu og sýna sam­kennd, yrði það banda­rískum hags­munum til fram­dráttar. Og ef Kína­stjórn heldur sig áfram við diplómasíu sem kennd hefur verið við úlfa-stríðs­menn, mun þessi aðferð Banda­ríkj­anna verða enn áhrifa­rík­ari.

Rétt er að hafa í huga að heimur þar sem óskir Kína væru ríkj­andi yrði ólíkur þeim heimi þar sem sýn Banda­ríkj­anna er ofan á því þarna er ólíku er saman að jafna. Annars vegar er það hin þrönga sýn eins­flokks-ríkis sem telur kerf­is­bundið ofbeldi gegn eigin borg­urum og næstu nágrönnum sjálf­sagða stjórn­ar­stefnu. Þar helgar til­gang­ur­inn með­alið og gagn­rýn­is­raddir eru jafnan kæfðar – bók­staf­lega – strax í fæð­ingu.

Hins vegar er um að ræða heims­sýn rót­gró­ins lýð­ræð­is­ríkis sem byggir þrátt fyrir allt á þrí­skipt­ingu rík­is­valds­ins, virð­ingu fyrir ein­stak­lings­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti þjóða. Banda­ríkin eru vissu­lega ekki galla­laus eða alltaf sjálfum sér sam­kvæm, en valið á milli þess­ara tveggja kosta ætti að vera nokkuð aug­ljóst. Þegar reyndin er önnur ætti slíkt að hringja við­vör­un­ar­bjöllum.

Nýr raunveruleiki – Kínverjar svífast einskis

Milli­ríkja­við­skipti fara langt í frá alltaf eftir hug­mynda­fræði­legum línum. Á hinn bóg­inn þrýsta aðstæður gjarnan á að hug­mynda­fræði­leg prinsipp víki fyrir við­skipta­legum hags­munum og því þarf að stíga var­lega til jarðar. Íslend­ingar hafa van­ist því að sigla á milli skers og báru og eiga við­skipti við þá sem þeim þykir henta, má nefna umfangs­mikil milli­ríkja­við­skipti við Sov­ét­ríkin á meðan á kalda stríð­inu stóð. Hlut­irnir eru þó í eðli sínu öðru­vísi nú því Kín­verjar haga sér á allt annan hátt en Sov­ét­ríkin sál­ugu. Á meðan Sov­ét­ríkin hugs­uðu mest um að tryggja sinn bak­garð geys­ast Kín­verjar nú um allan heim til að ná fót­festu, beita til þess gríð­ar­legum efna­hags­legum mætti og svífast einskis.

Þetta þurfa íslensk stjórn­völd að hafa í huga þegar mörkuð er stefna í utan­rík­is­málum, eru utan­rík­is­við­skipti þar með talin. Þessi breytta staða mun enn frekar und­ir­strika mik­il­vægi ábyrgrar þátt­töku Íslands í alþjóða­stofn­unum en einnig svæð­is­bundnu sam­starfi eins og NATO, EES og á vett­vangi Norð­ur­land­anna, sam­starfi sem byggir á virð­ingu fyrir lögum og reglu. Hefð­bundnar stoðir íslensks atvinnu­lífs eiga enn afger­andi póli­tísk tengsl inn í íslensk stjórn­mál. Stjórn­völd hafa þó borið gæfu til tala skýrum rómi og forð­ast að stytta sér leið að efna­hags­legum ábata, fram hjá grund­vall­ar­reglum um lýð­ræði, mann­rétt­indi og umhverf­is­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár