Segja skattrannsóknarstjóra misskilja frumvarp sem færir rannsóknir frá embættinu

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra telur að frum­varp sem færir rann­sókn á meiri­háttar skatt­rann­sóknum til hér­aðs­sak­sókn­ara muni valda meiri skaða en gagni.. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir emb­ættið mis­skilja frum­varpið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði frumvarpið um breytingar á skattrannsóknum fram.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði frum­varpið um breyt­ingar á skatt­rann­sóknum fram. Mynd: Golli

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra telur að frum­varp sem færir rann­sókn á meiri­háttar skatt­rann­sóknum til hér­aðs­sak­sókn­ara muni valda meiri skaða en gagni. Hætta sé á að sér­fræði­þekk­ing tap­ist. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir emb­ættið mis­skilja frum­varpið.

[links]Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið tekur ekki undir athuga­semdir emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra um breyt­ingar á núver­andi skipan skatt­rann­sókna og telur þær byggðar á mis­skiln­ingi. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem ráðu­neytið hefur skilað inn til efna­hags- og við­skipta­nefndar sem hefur frum­varp um breyt­ing­arnar til með­ferðar.

Kjarninn greindi frá því 21. mars að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefði í athuga­semd um frum­varpið sagt að áform um að breyta núver­andi skipan skatt­rann­sókna á þann hátt að færa rann­sókn á þeim brotum sem telj­ast meiri­háttar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ar gangi gegn til­gangi frum­varps til laga sem eigi að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð.

Verði frum­varpið að lögum leggst emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins af sem sjálf­stæð stofnun en verður þess í stað ein­ing innan Skatts­ins sem ætlað verður að fara með rann­sókn þeirra skatta­laga­brota sem ætla má að ljúka megi innan skatt­kerf­is­ins.

[adspot]Í athuga­semd­inni segir að verði það að lög­um, og hér­aðs­sak­sókn­ari eigi að rann­saka öll skatta­laga­brot sem telj­ast meiri­háttar fyrir eigin mann­afla, muni reyn­ast nauð­syn­legt að koma hjá því emb­ætti upp við­bót­ar­starfs­liði með næga sér­þekk­ingu til að valda rann­sókn stórra og flók­inna skatt­brota­mála. „Mun þá þurfa að starf­rækja í tveimur stofn­unum slíkar sér­hæfðar ein­ingar sem vart þjónar æski­legri hag­ræð­ingu og skil­virkni í rík­is­rekstri. Að auki mun slíkt fyr­ir­komu­lag óhjá­kvæmi­lega að ein­hverju marki hafa í för með sér að sömu mál muni sæta end­ur­teknum rann­sóknum er þau byrja annað hvort sem minni eða meiri háttar mál reyn­ast við nán­ari skoðun ekki eiga heima í byrj­un­ar­flokki sínum heldur hinum meg­in. Virð­ist það geta farið í bága við bann við tvö­faldri máls­með­ferð, sbr. hins vegar til­gang­inn að baki ákvæða frum­varps­ins.“

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur þegar afgreitt frum­varpið til ann­arrar umræðu með nefnd­ar­á­liti. Þar er ekki tekið til­lit til athuga­semda skatt­rann­sókn­ar­stjóra og lagt til að lögin öðlist gildi 1. maí næst­kom­andi.

Gert ráð fyrir samstarfi stofnana

Þessu er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ósam­mála, en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði frum­varpið fram.

Í minn­is­blaðið ráðu­neyt­is­ins, sem er dag­sett 22. mars, segir að ávallt hafi verið gert ráð fyrir sam­starfi stofn­ana í frum­varp­inu og í því skyni gert ráð fyrir að rík­is­sak­sókn­ari gefi nán­ari fyr­ir­mæli um hvaða málum skuli vísað til rann­sóknar lög­reglu. í grein­ar­gerð­inni eru sett við­mið fyrir rík­is­sak­sókn­ara um til hvers eigi að líta við gerð fyr­ir­mæl­anna. Með frum­varp­inu er lagt til að lög­festar verði sekt­ar­heim­ildir skatt­rann­sókn­ar­stjóra og þær auknar veru­lega. Mark­miðið er að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu innan skatt­kerf­is­ins og telur ráðu­neytið að skurð­punkt­ur­inn um hvaða mál­fari í refsi­með­ferð hjá lög­reglu eða hljóti með­ferð innan skatt­kerf­is­ins sé skýr. Þungi mála mun liggja hjá Skatt­inum, verði frum­varpið að lögum, en stærstu og alvar­leg­ustu málin hjá hér­aðs­sak­sókn­ara.“

Ráðu­neytið tekur undir með því sem fram kemur í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar um frum­varpið að eðli­legt sé að breyt­ingar taki tíma en með ríkri sam­vinnu megi leysa úr þeim vand­kvæðum sem upp kunni að koma. „ Þá er það mat ráðu­neyt­is­ins að verði frum­varpið sam­þykkt leiði það til auk­inna tæki­færa til sam­þætt­ingar á nýt­ingu upp­lýs­inga innan skatt­kerf­is­ins.“

Ekki tekið fyrir tvö­falda refs­ingu í dómi

For­saga frum­varps­ins er sú að þann 18. maí 2017 komst Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu að þeirra nið­­ur­­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­­­fest­inga­­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins á þeim for­­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­­skatta­­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­­­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­­­lendis að þeir sem sviku stór­­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­­goldnu skatta sem þeir skyldu end­­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt.

Þegar Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll­inn hafði kom­ist að nið­­ur­­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­­bæri­­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­­ur­­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­­kvæmd.

Sá dómur féll í lok sept­em­ber 2017.

Í dómi Hæsta­réttar var því ekki tekið fyrir tvö­falda refs­ingu. Þar var hins veg­ar, með vísun í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í norsku máli sem féll um ári áður og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sak­ar­efni sem sé til með­ferðar hjá bæði skatt­yf­ir­völdum og í saka­mála­rann­sókn séu þannig tengd að þau myndi eina sam­þætta heild að efni til. „Þetta feli ekki ein­göngu í sér að mark­miðin sem að er stefnt og aðferð­irnar til að ná þeim séu til fyll­ingar heldur jafn­framt að afleið­ingar þess lög­bundna fyr­ir­komu­lags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyr­ir­sjá­an­legur og að gætt sé með­al­hófs,“ segir í dómi Hæsta­rétt­ar.

Kjarn­inn greindi frá því að í lok árs 2017 að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hafi þurft að fella niður 66 mál vegna þess að rann­sókn þeirra féll ekki innan þess tímara­mma sem dóm­ur­inn sagði til um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár