Ríkið braut gegn Jóni Ásgeiri og Tryggva

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jónssyni. Þeir voru dæmdir tvisvar fyrir sömu brotin.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi brotið gegn þeim Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jónssyni. Dóm­stóll­inn dæmir ríkið til að greiða þeim fimm þús­und evrur hvorum, auk máls­kostn­aðar vegna máls­ins.

Jón Ásgeir og Tryggvi voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Kristínu Jóhann­es­dóttur. Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á þeim for­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til sekt­ar­greiðslu af yfir­skatta­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu því verið byggð á sama grunni.

Þeir töldu seinna málið því brjóta gegn meg­in­regl­unni um bann við end­ur­tek­inni máls­með­ferð, og undir að tók Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn. Málinu fyrir hönd Gaums var hins vegar vísað frá.

Þegar þeir voru dæmdir í Hæsta­rétti var Jóni Ásgeiri gert að greiða 62 millj­ónir króna í sekt og Tryggvi 32 millj­ónir króna. Þeir fóru fram á að fá þessar upp­hæðir greiddar frá íslenska rík­inu, en fram kom þó fyrir dómi að þeir höfðu aldrei greitt sekt­irnar, og því var ekki fall­ist á það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár