Telja áform stjórnvalda um færslu skattrannsókna ganga gegn yfirlýstum tilgangi

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra telur að frum­varp sem færir rann­sókn á meiri­háttar skatt­rann­sóknum til hér­aðs­sak­sókn­ara muni valda meiri skaða en gagni. Hætta sé á að sér­fræði­þekk­ing tap­ist.

Bryndís Kristjánsdóttir er skattrannsóknarstjóri. Hún er þó ekki skrifuð fyrir athugasemd embættisins heldur tveir aðrir starfsmenn þess.
Bryndís Krist­jáns­dóttir er skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Hún er þó ekki skrifuð fyrir athuga­semd emb­ætt­is­ins heldur tveir aðrir starfs­menn þess. Mynd: RÚV/Skjáskot

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins segir að verði áform um að breyta núver­andi skipan skatt­rann­sókna á þann hátt að færa rann­sókn á þeim brotum sem telj­ast meiri­háttar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara, þá gangi það gegn til­gangi frum­varps til laga sem eigi að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð.

Verði frum­varpið að lögum leggst emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins af sem sjálf­stæð stofnun en verður þess í stað ein­ing innan Skatts­ins sem ætlað verður að fara með rann­sókn þeirra skatta­laga­brota sem ætla má að ljúka megi innan skatt­kerf­is­ins.

Í athuga­semd sem emb­ættið hefur sent til efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem hefur frum­varpið til umfjöll­unar, segir að verði það að lögum, og hér­aðs­sak­sókn­ari eigi að rann­saka öll skatta­laga­brot sem telj­ast meiri­háttar fyrir eigin mann­afla, muni reyn­ast nauð­syn­legt að koma hjá því emb­ætti upp við­bót­ar­starfs­liði með næga sér­þekk­ingu til að valda rann­sókn stórra og flók­inna skatt­brota­mála. „Mun þá þurfa að starf­rækja í tveimur stofn­unum slíkar sér­hæfðar ein­ingar sem vart þjónar æski­legri hag­ræð­ingu og skil­virkni í rík­is­rekstri. Að auki mun slíkt fyr­ir­komu­lag óhjá­kvæmi­lega að ein­hverju marki hafa í för með sér að sömu mál muni sæta end­ur­teknum rann­sóknum er þau byrja annað hvort sem minni eða meiri háttar mál reyn­ast við nán­ari skoðun ekki eiga heima í byrj­un­ar­flokki sínum heldur hinum megin. Virðist það geta farið í bága við bann við tvö­faldri máls­með­ferð, sbr. hins vegar til­gang­inn að baki ákvæða frum­varps­ins.“

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur þegar afgreitt frum­varpið til ann­arrar umræðu með nefnd­ar­á­liti. Þar er ekki tekið til­lit til athuga­semda skatt­rann­sókn­ar­stjóra og lagt til að lögin öðlist gildi 1. maí næst­kom­andi.

Ekki tekið fyrir tvöfalda refsingu í dómi

Forsaga frum­varps­ins er sú að þann 18. maí 2017 komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirra nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins á þeim for­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­skatta­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem við­kom­andi þarf að að greiða sekt.

[adspot]Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafði kom­ist að nið­ur­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd.

Sá dómur féll í lok sept­em­ber 2017.

Í dómi Hæsta­réttar var því ekki tekið fyrir tvö­falda refs­ingu. Þar var hins vegar, með vísun í dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í norsku máli sem féll um ári áður og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sak­ar­efni sem sé til með­ferðar hjá bæði skatt­yf­ir­völdum og í saka­mála­rann­sókn séu þannig tengd að þau myndi eina sam­þætta heild að efni til. „Þetta feli ekki ein­göngu í sér að mark­miðin sem að er stefnt og aðferð­irnar til að ná þeim séu til fyll­ingar heldur jafn­framt að afleið­ingar þess lög­bundna fyr­ir­komu­lags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyr­ir­sjá­an­legur og að gætt sé með­al­hófs,“ segir í dómi Hæsta­réttar.

Kjarninn greindi frá því að í lok árs 2017 að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara hafi þurft að fella niður 66 mál vegna þess að rann­sókn þeirra féll ekki innan þess tímara­mma sem dóm­ur­inn sagði til um.

Telja frumvarpið ekki ná markmiði sínu

Vegna þessa ákvað Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að leggja fram frum­varp sem hafði það meg­in­mark­mið að koma í veg fyrir fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð.

Í athuga­semdum skatt­rann­sókn­ar­stjóra­emb­ætt­is­ins er því þó hafnað að það mark­mið náist með frum­varp­inu.

Þar segir að í núver­andi fyr­ir­komu­lagi rann­saki skatt­rann­sókn­ar­stjóri mál vegna skatta­laga­brota til enda, en þau mál sem flokk­ist sem alvar­leg brot, einkum sam­kvæmt við­miði út frá und­an­dregnum skatti, séu send til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferðar.

Þegar það ger­ist þurfi starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara að setja sig inn í hvert mál og efna til skýrslu­töku af sak­born­ingum þrátt fyrir að flestum málum sé haldið áfram á þeim grund­velli sem mót­aður hefur verið með rann­sókn­ar­skýrslu skatt­rann­sókn­ar­stjóra. „Að mati skatt­rann­sókn­ar­stjóra felur þessi til­högun í sér óæski­lega end­ur­tekna máls­með­ferð og ónóga skil­virkni. Vissu­lega er grein­ing máls og und­ir­bún­ingur til ákæru­með­ferðar nauð­syn­legt við­bót­ar­skref þannig að það er síður en svo álit skatt­rann­sókn­ar­stjóra að aðkoma hér­aðs­sak­sókn­ara sé létt­væg eða óþörf. Hins vegar telur skatt­rann­sókn­ar­stjóri að heppi­legra væri að rann­sak­endur máls hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra myndu kynna það og skýra fyrir sak­sóknurum en að starfs­lið hér­aðs­sak­sókn­ara tak­ist á hendur að koma sér frá grunni inn í skatt­rann­sókn­ar­mál til að und­ir­búa það fyrir sak­sókn­ara.“

Vilja að saksókn sé hjá skattrannsóknarstjóra

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur lengi haft þá skoðun að sak­sókn skatt­rann­sókn­ar­mála ætti að vera hjá emb­ætti, en ekki hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Sú skoðun er ítrekuð í athuga­semdum emb­ætt­is­ins og sagt að með því fyr­ir­komu­lagi yrðu mál fullrann­sökuð í einni sam­felldri rann­sókn og þá bæði gagn­vart sak­ar­þætti sem og end­ur­á­kvörð­un­ar­þætti.

Önnur leið til að sníða af þá agnúa sem séu á núver­andi fyr­ir­komu­lagi sé að sak­sókn­arar hér­aðs­sak­sókn­ara komi að rann­sóknum skatt­rann­sókn­ar­stjóra þegar sýnt þyki að um ræði mál sem sæta beri ákæru­með­ferð og að þeir geti hlut­ast til um fram­kvæmd rann­sókn­anna þannig að sak­ar­þáttur við­kom­andi til­viks sé rann­sak­aður til fulls í sam­ræmi við það sem sak­sókn­arar telji þörf á. „Þannig yrðu mál rann­sökuð með einni heild­stæðri rann­sókn án nokk­urrar end­ur­tekn­ingar, tví­verkn­aðar eða ann­arrar óskil­virkni. Er mjög litið á til­högun Svía á þessu sviði sem æski­lega fyr­ir­mynd af þeim sem til þekkja í skatt­kerfum Norð­ur­landa.“

Sérfræðiþekking gæti tapast

Af athuga­semd­unum er ljóst að þeir starfs­menn emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem taka þær saman hafa áhyggjur af því að sér­fræði­þekk­ing tap­ist ef frum­varpið verði að lögum, enda yrði þá að halda úti slíkri sér­fræði­þekk­ingu í tveimur kerfum.

[links]Afar mik­il­væg for­senda fyrir skil­virkum árangri við rann­sóknir skatta­laga­brota sé sá aðgangur sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi að upp­lýs­inga­kerfum skatt­yf­ir­valda, sem og hinar víð­tæku heim­ildir til að kalla eftir gögnum. „Þessar heim­ildir eru mun víð­tæk­ari en um ræðir varð­andi rann­sóknir ann­arra brota. Hinar rúmu heim­ildir rétt­læt­ast af eðli mála­flokks­ins og án þeirra yrði lítt ágengt við rann­sóknir skatta­lag­brota.“

Það er mat höf­unda athuga­semd­anna að hér­aðs­sak­sókn­ari gæti ekki náð við­un­andi árangri við rann­sóknir slíkra brota án þess­ara heim­ilda. Ekki verði séð að stað­ist gæti hér­aðs­sak­sókn­ari fengi svo víð­tækan aðgang að emb­ættið gæti nýtt hann að vild í hvers kyns málum heldur yrði óhjá­kvæmi­lega að ein­skorða heim­ild­irnar við nýt­ingu við rann­sókn skatta­laga­brota. „Yrðu því að vera þétt skil milli þeirrar ein­ingar emb­ætt­is­ins sem hefði það hlut­verk að rann­saka skatta­laga­brot og ann­arra þátta starf­sem­innar. Auk þessa er ekki víst að allir hlut­að­eig­andi aðilar væru fúsir að veita hér­aðs­sak­sókn­ara þann aðgang að kerfum sínum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur verið veittur. Getur þetta m.a. gilt um erlend skatt­yf­ir­völd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár