Framsóknarflokkurinn hefur ekki mælst stærri í rúm tvö ár

Framsókn hefur aukið fylgi sitt um 67 pró­sent frá því í byrjun des­em­ber í könn­unum MMR. Á sama tíma hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað 22,5 pró­sent af fylgi sínu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, getur brosað yfir stöðu flokksins í könnun MMR.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, getur brosað yfir stöðu flokks­ins í könnun MMR. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 12,7 pró­sent fylgi og hefur ekki mælst stærri í rúm tvö ár í könn­unum MMR. Hann hefur enn fremur ein­ungis einu sinni mælst með meira fylgi á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, í febr­úar 2019 skömmu eftir Klaust­urs­málið svo­kall­aða þegar fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist 13,5 pró­sent. Frá því í byrjun des­em­ber hefur flokk­ur­inn aukið fylgi sitt um 67 pró­sent, úr 7,6 pró­sentu­stigum í 12,7 pró­sent. Fylgið jókst um 1,3 pró­sentu­stig milli mán­aða.

Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir dala á milli mán­aða í könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 21 pró­sent fylgi og Vinstri græn með 11,7 pró­sent fylgi. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn hefur tapað 6,1 pró­sentu­stigi í könn­unum MMR frá því í byrjun des­em­ber 2020, sem þýðir að fylgi hans hefur dreg­ist saman um 22,5 pró­sent. Síð­ar­nefndi flokk­ur­inn tapar 1,8 pró­sentu­stigum milli mán­aða og yrði fjórði stærsti flokk­ur­inn á þingi ef nið­ur­staða nýj­ustu könn­unar MMR kæmi upp úr kjör­köss­unum. Vinstri græn voru næst stærsti flokkur lands­ins eftir síð­ustu þing­kosn­ingar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er enn fremur eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi en sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 45,4 pró­sent. Þeir fengu alls 52,8 pró­sent atkvæða haustið 2017.

[adspot]Sam­fylk­ingin bætir lít­il­lega við sig á milli mán­aða og mælist nú með 13,8 pró­sent fylgi. Það myndi gera flokk­inn að næst stærsta flokknum á þingi ef það yrði nið­ur­staða kosn­inga. Píratar sigla nokkuð lygnan og stöðugan sjó með 11,5 pró­sent fylgi og Viðreisn mælist með tíu pró­sent fylgi. Allir þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast yfir kjör­fylgi og myndu sam­an­lagt fá 35,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könnun MMR. Þeir fengu 28 pró­sent í októ­ber 2017.

Mið­flokk­ur­inn hress­ist milli mán­aða og nálg­ast kjör­fylgi sitt. Hann mælist nú með 9,3 pró­sent stuðn­ing. Flokkur fólks­ins bætir líka við sig fylgi frá því í febr­úar og mælist nú með 5,1 pró­sent stuðn­ing. Sós­í­alista­flokk­ur­inn rekur svo lest­ina af þeim níu flokkum sem mæl­ast í könn­unum MMR þessa stund­ina með 3,8 pró­sent fylgi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú 53,7 pró­sent. Könnunin var fram­kvæmd 5. - 10. mars 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 951 ein­stak­lingur, 18 ára og eldri.

Næst verður kosið til þings 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár