Telja að heilbrigðisstarfsfólk sé mögulega að verða jákvæðara í garð dánaraðstoðar

Sjö þing­menn hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra verði falið að láta gera nýja könnun á afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til dán­ar­að­stoðar. Síðasta könnun af sama meiði var gerð árið 2010 og síðan hefur umræðan þró­ast.

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sjö þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn, Vinstri grænum, Pírötum og Sam­fylk­ingu standa saman að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að heil­brigð­is­ráð­herra verði falið að láta gera skoð­ana­könnun meðal heil­brigð­is­starfs­fólks um afstöðu þess til dán­ar­að­stoðar. Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Mark­miðið með gerð skoð­ana­könn­un­ar­innar á að vera að fá sem gleggsta mynd af afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til álita­efn­is­ins, sem hafi „fengið meiri opin­bera umræðu en áður eftir að skýrsla heil­brigð­is­ráð­herra um dán­ar­að­stoð kom út, og kanna á hlut­lausan og vand­aðan hátt hvort og hvernig afstaða heil­brigð­is­starfs­fólks hefur breyst svo unnt sé að vinna málið áfram.“

Þarna er vísað til skýrslu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra sem kynnt var síð­asta haust. Fram kemur í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni að dán­ar­að­stoð geti verið veitt með marg­vís­legum hætti, sem skipta megi í fjögur megin-und­ir­hug­tök.

„Þau eru eft­ir­far­andi, raðað eftir því hversu mikið inn­grip þau telj­ast vera í líf sjúk­lings, það væg­asta fyrst: Líkn­ar­með­ferð, óbein dán­ar­að­stoð, lækn­is­að­stoð við sjálfs­víg og loks bein dán­ar­að­stoð,“ segir í grein­ar­gerð­inni, en þing­menn­irnir telja nauð­syn­legt að spyrja bæði almennt um afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til dán­ar­að­stoðar og eins til afstöðu þess til und­ir­hug­taka sem til breyt­inga gætu heyrt.

Breskir læknar vilja að læknasamtökin láti af andstöðu sinni

Í grein­ar­gerð þing­mann­anna segir að í nýrri skoð­ana­könnun sem Bresku lækna­sam­tökin (BMA) létu fram­kvæma í febr­úar 2020 komi fram að meiri hluti breskra lækna vill að BMA láti af and­stöðu sinni við dán­ar­að­stoð.

[adspot]

„Nið­ur­stöður skoð­ana­könn­un­ar­innar voru mis­mun­andi eftir eðli spurn­inga og þess hversu mik­illi þátt­töku heil­brigð­is­starfs­fólks gert var ráð fyrir í ferl­inu. Athygli vekur að lækna­nemar voru jákvæð­ari í afstöðu sinni til dán­ar­að­stoðar en læknar sem höfðu starfað lengi. Þetta kann að vera vís­bend­ing um kyn­slóða­bil í afstöð­unni til álita­efn­is­ins. Helm­ingur þeirra sem tóku afstöðu, eða 50%, styðja hins vegar að læknum verði heim­ilt að fram­vísa lyfjum til sjúk­linga sem vilja nota þau sjálfir til að binda enda á líf sitt, en 33% eru því and­víg. Samtals 27% eru hlut­laus í afstöðu sinni eða óákveðin. Þegar spurt var hvort læknar mundu sjálfir vilja taka þátt með beinum hætti í dán­ar­að­stoð­ar­ferl­inu svör­uðu 36% ját­andi, 45% neit­andi en 19% voru óákveðin,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Ekki gerð könnun meðal heilbrigðisstarfsfólks hér síðan 2010

Í grein­ar­gerð­inni með til­lög­unni er fjallað um fyrri kann­anir sem hafi verið gerðar varð­andi afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til þessa álita­efnis. Ein slík birt­ist í Lækna­blað­inu árið 1997.

Þá töldu aðeins 5 pró­sent lækna og 9 pró­sent hjúkr­un­ar­fræð­inga líkn­ar­dráp, sem nú kall­ast almennt dán­ar­að­stoð, rétt­læt­an­legt undir ein­hverjum kring­um­stæðum. Einungis 2 pró­sent svar­enda gátu hugsað sér að verða við slíkri ósk.[links]

Þegar sam­bæri­leg könnun var gerð árið 2010 var nið­ur­staðan sú að líkn­ar­dráp, nú dán­ar­að­stoð, þótti rétt­læt­an­legt hjá 18 pró­sentum lækna og 20 pró­sentum hjúkr­un­ar­fræð­inga en áfram var aðeins örlít­ill hluti heil­brigð­is­starfs­fólks, eða 3 pró­sent, sem vildi verða við slíkri ósk.

„Nú er ára­tugur lið­inn frá því að þessi síð­asta könnun á við­horfi heil­brigð­is­starfs­fólks var gerð og í milli­tíð­inni hefur dán­ar­að­stoð fengið meiri umfjöllun og athygli í fjöl­miðlum en áður. Til að mynda hafa sam­tökin Lífs­virð­ing, félag um dán­ar­að­stoð verið stofnuð og miðlað fræðslu­efni um dán­ar­að­stoð á sam­fé­lags­miðlum, þar sem reynslu­sögur almenn­ings hafa verið birtar, auk þess að boða til fræðslu- og mál­efna­funda,“ segja þing­menn­irnir og bæta við að sam­kvæmt rann­sóknum og frétta­flutn­ingi frá Norð­ur­löndum á und­an­förnum árum megi greina að afstaða heil­brigð­is­starfs­fólk „hafi færst meira og meira í átt til frjáls­lyndis á síð­ustu 10 árum.“

„Þannig voru 30% norskra lækna hlynntir dán­ar­að­stoð árið 2019 en aðeins 15% árið 2009. Stuðn­ing­ur­inn hafði því auk­ist um helm­ing á ára­tug. Í Finn­landi voru 46% lækna hlynntir dán­ar­að­stoð en stuðn­ingur við slíka aðstoð var 29% í þeirra hópi árið 2002. Árið 2013 voru 33% sænskra lækna hlynntir dán­ar­að­stoð. Í Noregi voru 40% hjúkr­un­ar­fræð­inga hlynntir dán­ar­að­stoð árið 2019 en 25% tíu árum áður. Árið 2016 voru 74% finnskra hjúkr­un­ar­fræð­inga hlynntir dán­ar­að­stoð. Þessar nið­ur­stöður benda til þess að stuðn­ingur heil­brigð­is­starfs­fólks við dán­ar­að­stoð sé að aukast með árunum. Því er brýnt að fylgj­ast náið með þróun á afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til dán­ar­að­stoðar hér á landi,“ segja þing­menn­irnir sjö.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár