Lögregla segir það í andstöðu við vinnureglur að segja frá veru ráðherra í samkvæmi

Lög­reglan segir að það hafi verið á skjön við vinnu­reglur sínar að láta per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar fylgja með til­kynn­ingu til fjöl­miðla að morgni aðfanga­dags. Þar sagði frá því að „hátt­virtur ráð­herra“ hefði verið í sam­kvæmi sem lög­regla stöðv­aði.

Lögregluþjónn stendur heiðursvörð fyrir utan Alþingishúsið. Mynd úr safni.
Lög­reglu­þjónn stendur heið­ursvörð fyrir utan Alþing­is­húsið. Mynd úr safni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir það hafa verið á skjön við vinnu­reglur sínar að láta upp­lýs­ingar um að „hátt­virtur ráð­herra“ hafi verið á við­burði sem lög­regla stöðv­aði á Þor­láks­messu­kvöld fylgja frá­sögn sinni í svo­kall­aðri dag­bók lög­reglu.



Dagbók lög­reglu er upp­lýs­inga­póstur sem lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendir á fjöl­miðla með reglu­legu milli­bili.

Vinnu­reglan er sú, sam­kvæmt orð­send­ingu frá lög­reglu, „að afmá per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar úr dag­bók lög­regl­unnar þegar sam­an­tektir úr henni eru sendar hverjar sinni.“

Þetta fórst fyrir í sam­an­tekt­inni sem send var út á aðfanga­dags­morgun, segir lög­regla í til­kynn­ingu sem send var á fjöl­miðla í dag, vegna fjölda fyr­ir­spurna um málið.

„Ef mis­brestur verður á fram­an­sögðu er það ávallt skoðað til hlítar,“ segir einnig í til­kynn­ing­unni.

Í póst­inum frá lög­reglu snemma að morgni aðfanga­dags sagði að veit­inga­rekstur væri í umræddum sal sem félli undir svo­kall­aðan flokk II og því ætti sal­ur­inn að hafa verið lok­aður á þeim tíma sem sam­kvæmið var stöðv­að.

„Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í saln­um, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Tölu­verð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt,“ sagði meðal ann­ars í dag­bók­ar­færslu lög­reglu.

Mikill samkvæmisleikur hófst

Eftir að tölvu­póstur með þessum upp­lýs­ingum barst til fjöl­miðla reyndu þeir eðli­lega að kom­ast að því hvaða ráð­herra hafði verið staddur í sam­kvæm­inu sem lög­regla þurfti að stöðva vegna brota á sótt­varna­reglum.[links]

Vísir og Frétta­blaðið greindu svo frá því að um hefði verið að ræða Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem var staddur í Ásmund­ar­sal. Skömmu síðar stað­festi Bjarni það og baðst afsök­unar, með færslu á Facebook.

Málið hefur vakið nokkra ólgu í stjórn­mál­unum og víðar í sam­fé­lag­inu og kallað hefur verið eftir afsögn fjár­mála­ráð­herra. Hann sjálfur hefur sagt að hann hygg­ist ekki segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins.

Leið­togar hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja hafa ekki gert kröfur um afsögn Bjarna og telja stjórn­ar­sam­starf sitt við Sjálf­stæð­is­flokk geta haldið áfram, nú þegar hann hafi beðist afsök­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár