Stjórnvöld hafa tryggt bóluefni fyrir 87 prósent þjóðarinnar

Íslensk stjórn­völd hafa nú þegar tryggt sér bólu­efni fyrir um 200 þús­und ein­stak­linga. Á Þor­láks­messu verður skrifað undar samn­ing sem mun tryggja bólu­efni fyrir tæp­lega 120 þús­und í við­bót.

Íslensk stjórn­völd hafa tryggt bólu­efni sem dugir fyrir 87 pró­sent þjóð­ar­innar í gegnum sam­starf Evr­ópu­þjóða með samn­ingum fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands. „Samn­ingar sem Ísland hefur þegar lokið við lyfja­fram­leið­end­urna Pfizer og Astra Zeneca tryggja 400.000 bólu­efna­skammta sem nægja fyrir 200.000 ein­stak­linga,“ segir þar.

Þá verður samn­ingur við bólu­efna­fram­leið­and­ann Janssen und­ir­rit­aður 23. des­em­ber næst­kom­andi. Sá samn­ingur mun tryggja 235 þús­und skammta sem nægja fyrir 117.500 manns. Alls tryggja þessir þrír samn­ingar bólu­efni fyrir rúm­lega 317 þús­und ein­stak­linga. Þá verður samn­ingur við Moderna und­ir­rit­aður 31. des­em­ber næst­kom­andi en ekki liggur fyrir hvert umfang samn­ings­ins verður.

Til­kynn­ing stjórn­valda kemur í kjöl­far umfjöll­unar um úttekt Bloomberg frétta­veit­unnar sem fjallar um bólu­efni við kór­ónu­veirunni og hvernig stjórn­völdum víða um heim miðar í því að tryggja sér bólu­efni. Í úttekt Bloomberg eru íslensk stjórn­völd sögð vera búin að útvega bólu­efni fyrir um 103 þús­und manns eða um 29 pró­sent þjóð­ar­innar.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins má sjá yfir­lit um stöðu samn­inga Íslands og verður yfir­litið upp­fært reglu­lega eftir því sem málum vindur fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár