Þórólfur: Stöndum á krossgötum

Sótt­varna­læknir segir að á sama tíma og að mikið ákall sé í sam­fé­lag­inu um að aflétta tak­mörk­unum megi sjá merki um að far­ald­ur­inn gæti verið að fara af stað enn á ný.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Ellefu manns greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Allir eru þeir búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Átta voru ekki í sótt­kví.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi í morgun að heldur meiri fjöldi væri að grein­ast núna og sömu­leiðis væru fleiri utan sótt­kvíar en síð­ustu daga. Hann hefur skilað til­lögum til heil­brigð­is­ráð­herra um fram­hald aðgerða frá og með 2. des­em­ber. Ekki sé tíma­bært að greina frá hverjar þær eru en ef að sýnt þyki að útbreiðslan á COVID-19 sé aftur að vaxa í sam­fé­lag­inu gæti hann þurft að end­ur­skoða til­lög­urnar fyrir þann tíma.

„Almennt er bylgjan sem við erum að berj­ast við vel á nið­ur­leið en ennþá erum við að greina fleiri utan sótt­kvíar heldur en áður og er það áhyggju­efni,“ sagði Þórólfur. Smitum inn­an­lands hafi farið fækk­andi síð­ustu daga sem sýnir árangur af aðgerðum og góðri þátt­töku almenn­ings í þeim. „En hins vegar eru vís­bend­ingar um að þró­unin gæti verið að snú­ast við miðað við fjölgun í sam­fé­lags­smitum und­an­farna daga sem erfitt er að rekja.“ Einnig nefndi Þórólfur að gögn vís­inda­manna við Háskóla Íslands bentu til að smit­stuð­ull gæti verið að fara aftur upp á við.

Smitin sem greinst hafa síð­ustu daga má m.a. rekja til stórra versl­un­ar­stöðva, að fólk hafi farið óvar­lega í veislu­höldum, sér­stak­lega um síð­ustu helgi, og líka þess að fólk í sótt­kví færi óvar­lega. „Við biðlum til fólks að gæta vel að sér á öllum þessum sviðum.“

Vísbendingar víða

[links]Þórólfur sagði ástæðu til að fara var­lega í allri hópa­myndun á næst­unni. Nokkuð margir eru að grein­ast á landa­mær­unum þessa dag­ana og í gangi væru aðgerðir til að halda fólki við efnið til að minnka áhætt­una á því að smit kom­ist þaðan inn í sam­fé­lagið. „Nú ríður á að við stöndum okkur öll í okkar ein­stak­lings­bundnu sýk­inga­vörnum,“ sagði Þórólfur. „Við stöndum á ákveðnum kross­götum þar sem mikið ákall er eftir aflétt­ingu en á sama tíma erum við að sjá merki um að far­ald­ur­inn gæti verið að fara af stað enn á ný.“ Sagði hann að sam­staðan hefði skilað árangri og að hún verði að vera áfram því „ekki viljum við missa far­ald­ur­inn úr hönd­unum á þess­ari stundu“.

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn sagði vís­bend­ingar um að fólk væri farið að slaka of mikið á. Hann minnti á að nú væri und­ir­bún­ingur fyrir jóla­há­tíð­ina í hámarki. Fyrir mörg okkar yrði þessi tími frá­brugð­inn því sem við værum vön. Verið sé að leggja loka­hönd á ráð­legg­ingar og leið­bein­ingar varð­andi hátíð­ar­höldin og verða þær gefnar út fljót­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár